Tölvumál - 01.07.2001, Síða 17

Tölvumál - 01.07.2001, Síða 17
Persónuvernd Vakin er athygli á því að öll vinnsla við- kvæmra persónuupp- lýsinga sem ekki er leyfisskyld er tilkynn- ingaskyld. reglnanna og er því hvorki tiikynninga- skyld né leyfisskyld: • Vinnsla einstaklings á persónuupplýs- ingum sem eingöngu varða einkahagi hans eða er ætluð til persónulegra nota. • Vinnsla sem fram fer í tengslum við rannsókn eða könnun þar sem skráðar upplýsingar eru hvorki merktar með persónuauðkennum, númerum né öðr- um rekjanlegum auðkennum. í reglum Persónuverndar er sérstaklega bent á að undanþágur frá tilkynninga- skyldunni gildi ekki um: 1. Vinnslu upplýsinga urn mat á árangri einstaklinga, s.s. um einkunnir nem- enda og frammistöðu starfsmanna. 3. Vinnslu með persónusnið, skv. 23. gr. laga nr. 77/2000. 4. Vinnsla sem felur í sér flutning per- sónuupplýsinga úr landi. Hvenær er vinnsla leyfisskyld? Eftirfarandi vinnsla persónuupplýsinga er leyfisskyld sbr. reglur Persónuverndar: 1. Vinnsla sem lýtur að samkeyrslu skráar sem hefur að geyma viðkvæmar per- sónuupplýsingar við aðra skrá, hvort sem sú hefur að geyma almennar eða viðkvæmar persónuupplýsingar. Siík samkeyrsla er þó ekki leyfisskyld bygg- ist hún á fyrirmælum laga eða ef ein- vörðungu eru samkeyrðar upplýsingar úr Þjóðskrá urn nafn, kennitölu, fyrir- tækjanúmer, heimilisfang, aðsetur og póstnúmer. Sama á við ef samkeyrðar eru skrár sama ábyrgðaraðila. 3. Vinnsla sem tengist framkvæmd erfða- rannsóknar nema aðeins sé unnið með ópersónugreinanlegar upplýsingar. Erfðarannsóknir eru þó ekki leyfis- skyldar séu þær nauðsynlegar vegna læknismeðferðar. 4. Vinnsla upplýsinga um refsiverðan verknað manns og sakaferil, upplýsing- ar um lyfja-, áfengis- og vímuefnanotk- un, kynlíf og kynhegðan, nema vinnsl- an sé nauðsynlegur og eðlilegur þáttur í starfsemi viðkomandi aðila. 5. Söfnun og miðlun persónuupplýsinga um fjárhagsstöðu og lánstraust einstak- linga. 6. Vinnsla upplýsinga um félagsleg vandamál manna eða önnur einkalífsat- riði, s.s. hjónaskilnaði, samvistarslit, ættleiðingar og fóstursamninga. 7. Vinnsla viðkvæmra persónuupplýsinga sem ekki fellur undir ákvæði 1. mgr. 9. gr. laga nr. 77/2000. Óheimilt er að hefja ofangreinda vinnslu fyrr en fyrir liggur skiáflegt leyfi Persónuverndar, sem hún veitir að feng- inni umsókn frá ábyrgðaraðila. Að öðru leyti er, án leyfis Persónu- verndar, óheimilt að hefja vinnslu al- mennra eða viðkvæmra persónuupplýs- inga, geti hún falið í sér sérstaka hættu á að raskað verði réttindum og frelsi manna. Vakin er athygli á því að öll vinnsla við- kvœmra persónuupplýsinga sem ekki er leyfisskyld er tilkynningaskyld. Um framkvæmd leyfisumsóknar og til- kynningar til Persónuverndar Það er mikilvægt að allir þeir sem halda skrár með persónuupplýsingum kynni sér nýju lögin og þær reglur sem Persónu- vernd hefur sett. Bent er á að frestur til að tilkynna um skrá sem var þegar orðin til þann l.janúar2001 vartil 1. júlí2001. Hægt er að nálgast lögin, reglur og eyðu- blöð fyrir tilkynningar og leyfisumsóknir á vef Persónuverndar: www.personu- vernd.is. Einnig er hægt að nálgast prent- uð eyðublöð á skrifstofu Persónuverndar. Gert er ráð fyrir að alla jafna berist til- kynningar um vinnslu til Persónuverndar beint gegnurn heimasíðuna. Guðbjörg Sigurðardóttir, tölvunarfræðingur, formaður Verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið. 1 frumvarp til breytinga á lögum nr. 77/2000 er nú til meðferðar í þinginu og er gert ráð fyrir að breyt- ingar verði gerðar á 8. gr. laganna. 2 frumvarp til breytinga á lögum nr. 77/2000 er nú til meðferðar f þinginu og er gert ráð fyrir að breyt- ingar verði gerðar á 9. gr. laganna. Tölvumál 17

x

Tölvumál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tölvumál
https://timarit.is/publication/239

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.