Tölvumál - 01.07.2001, Qupperneq 24
CeBIT 2001
Búnaður þessi er ein-
faldaður eins og kost-
ur er með sérhæft
hlutverk eins og að
geta tengst Vefnum
og/eða unnið með
tölvupóst
Þýskur sjónvarpsfram-
leiðandi hefur kynnt
sjónvarp sem „skilur"
vefföng sem geta
birst á skjánum og
tengt áhorfandann á
viðkomandi heima-
síðu
með BLIP er að hýsa upplýsingar sem
notendur blátannarvæddra síma og/eða
lófatölva gætu nálgast þráðlaust en inn-
byggður í BLIP er WAP miðlari og mögu-
legt að vista heimasíður. Stýrikerfið er af-
brigði af Linux en tækið getur verið
frístandandi eða tengt staðarneti eða jafn-
vel með raðtengli við tölvu. Ericsson sér
fyrir sér sem dæmi að tækið gæti verið
uppstillt í búðarglugga og þeir sem vildu
forvitnast nánar um ákveðna hluti sem í
boði væru gætu tengst viðkomandi BLIP
og sótt ítarefni. Annar möguleiki væri á
veitinga- og skemmtistöðum þar sem
matseðlar og slíkt væri hýst í tækinu.
Drægið er um 10 metrar og fyrsta kyn-
slóðin getur tengt einn notanda í senn en
sú næsta allt að sjö í einu. Eitt hið fyrsta
sem undirritaður rakst á fyrsta dag sýning-
arinnar var samt ekki blátannartæki heldur
sérstök gleraugu til að horfa á bíómyndir
af DVD-ferðaspilara. Hljóðið kemur úr
spöngunum en myndinni er varpað á agn-
arsmáa skjái sem eru rétt framan við aug-
un. Gæðin voru alveg þokkaleg en ekki
skal um það dæmt hvort hægt væri að hafa
slíkt áhald á andlitinu í langan tíma
þyngdarinnar vegna. Verð? Þorði ekki að
spyrja...
Léttbiðlarar og boðtól
Talsvert hefur verið rætt og ritað um
tækjakost sem á ensku er kallaður „Infor-
mation Appliance“ og nefnd hér boðtól og
þann sem á íslensku má kalla léttbiðlara
sem þýðingu á „Thin Client“. Búnaður
þessi er einfaldaður eins og kostur er með
sérhæft hlutverk eins og að geta tengst
Vefnum og/eða unnið með tölvupóst. í
seinni tíð hefur tæknin orðið fyrir fáeinum
áföllum og ekki gengið betur en svo að
framleiðslu hefur verið hætt fyrirvaralaust
eins og í tilfelli Netútvarpsins Kerbango
frá 3Com og Audrey frá sama aðila en
Audrey var ætlað til notkunar í eldhúsi og
búið ýmsum þægindum í því umhverfi. Þó
er alls ekki svo að búið sé að leggja árar í
bát, öðru nær. Margir framleiðendur eru
bjartsýnir og vaxtatölur benda til að tím-
inn vinni með þessum geira en nú er talið
að um þrjár milljónir manna í Evrópu noti
boðtól eða léttbiðlara og því er spáð að sú
tala eigi eftir að fara í 126 milljónir á
næstu fjórum árum.
Sumir lesendur eru efalaust þegar kunn-
ir lausnum sem falla undir flokkinn létt-
biðlarar, sérstaklega þar sem leiðandi
framleiðendur tölva hafa sett á markað
tæki sem hafa yfirbragð fyrirferðalítilla
tölva en búnar Windows CE, Internet Ex-
plorer, smágerðum útgáfum af Word og
Excel og USB tenglum en engum diskum
eða drifum. A CeBIT-sýningunni mátti sjá
ýmsar útfærslur bæði fyrir þráð og þráð-
laust og þau sem fylla flokk þess síðar-
nefnda líkjast fremur bókum en tölvum.
Önnur sem fylla flokkinn boðtæki eru
æði róttæk og líkjast ekki neinum „venju-
legum“ tölvum og má taka sem dæmi eld-
hústæki sem tengja má við Netið og einn
þýskur sjónvarpsframleiðandi hefur kynnt
sjónvarp sem „skilur“ vefföng sem geta
birst á skjánum og tengt áhorfandann, ef
hann vill, á viðkomandi heimasíðu. Það
nægir að styðja á hnapp á fjarstýringunni
og má skoða vefsíðuna samtímis því sem
horft er á dagskrána en nægt minni er í
sjónvarpstækinu fyrir nokkrar síður aftur í
tímann.
Það sem kannski einna helst stendur
búnaði sem þessum fyrir þrifum er að
verðið þarf að vera vel samkeppnishæft
við hefðbundnar tölvur og nú þegar far-
tölvur eru að sækja í sig veðrið ásamt auk-
inni notkun á þráðlausum netum má
spyrja hvor hafi betur. Vel má vera að á
heimilum og skrifstofum framtíðarinnar
muni að fínna jöfnum höndum hvort
tveggja. Kannski má einnig sjá fyrir að
með betrumbættum og hraðari fjarskiptum
muni einföld tæki eiga sinn sess ef sækja
má þann hugbúnað sem þörf er á í leigu í
stað þess að þurfa að kaupa hann og vista
á eigin diskum. í öllu falli virðist alveg
borðleggjandi að viðhald verði einfaldara
24
Tölvumál