Vísir - 30.01.1963, Blaðsíða 1

Vísir - 30.01.1963, Blaðsíða 1
53. árg. — Miðvikudagur 30. janúar 1963. — 25. tbl. Drottnuigin kom til Reykja víkur f gær og hafði hún m. a. meðferðis milli 30 og 40 fær- eyskar stúlkur sem koma hing- að í atvinnuleit. Er enginn vafi á því að þær fá fljótt nóg að gera, þvf að vinnuafl skortir mjög í frystihúsunum. Þær dreif ast f ýmsar áttir, sumar vinna f frystihúsum í Reykjavík, aðrar fara suður í Keflavík og Sand- gerði og til Vestmannaeyja. Ljósmyndari Vísis tók þessa mynd niðri á hafnarbakka í gær af fjórum hinna færeysku stúlkna. Þær í fremri röð heita Marita Hansen og Malan Simon sen en þær fyrir aftan. Anna Joensen og Jorunn Toftum. Þessar fjórar sögðust vera að bíða eftir bílnum suður í Sand- gerði en þar ætla þær að vinna í frystihúsi Garðs h.f. Viðskiptamálarádherra í morgun Ekki tesigsl við EBE eins og sakir standa Eins og sakir standa tel ég að ekki komi til greina fyrir íslendinga að leita neinna tengsla við Efnahagsbandalagið. Þannig komst Gylfi Þ. Gísla- son viðskiptamálaráðherra að orði við Vísi skömmu fyrir há- degtð í dag. Vísir lagði þá spumingu fyrir ráðherrann hvaða áhrif sfðustu atburðir í Brussel myndu hafa á afstöðu Islands til bandalagsins. Viðhorfin hafa breytzt svo gjörsamlega ,sagði ráðherrann, að lslendingar hijóta að draga fyrmefnda ályktun af þessum viðburðum, enda eru utanríkis- viðskipti okkar við Efnahags- bandalagið, eins og það er nú, aðeins 20% af heildarutanrfkis- viðskiptum okkar, en viðskipti okkar við fríverzlunarbandalag sjöveldanna (EFTA) hins vegar 30-40% af viðskiptum okkar. — Hvað teljið þér liklegt að gerizt á næstunni i þessum málum? Öllum þjóðum V-Evrópu er mikill vandi á höndum í sam- bandi við það sem nú hefir gerzt, og mun viðleitni til þess að leysa vandann áreiðanlega halda áfram. Hugsanlegt er að viðræður hefjist um allsherjar tollalækkanir, sem Bandaríkin taki þá einnig þátt f, hugsan- legt cr að gcrðar verði tilraun- ir til þess að stórefla Frfverzlun arbandalag sjöveldanna. Það er jafnvel hugsanlegt að endurvak in verði hugmyndin um að koma á fót fríverzlunarsvæði milli Efnahagsbandalagsins og EFTA. í öllu falli má búast við að Efnahags- og framfarastofn un Evrópu (OECD) f Paris, þar sem flestar Vestur-Evrópuþjóð imar, Bandarfkin og Kanada Framh. á bls. 5. Gylfi Þ. Gfslason viðskipta- málaráðherra. iKKl L0KA0SKUR, AÐ AÐILDIN VAR FELLD vohbrigðum, áð aðildin en engin ástæða sé tií að náði ekki fram að ganga, I Frh á bls 5 Dóanefnd skipuð Stjórnmáialeiðtogar í Washington telja áformin um nánari vestræn tengsl og samstarf hafa beðið hnekki við, að aðild Bret- lands að EBE náði ekki fram að ganga, en ekki sé um neinn loka-ósigur að ræða, — De Gaulle geti ekki breytt stefnunni í Evrópu eftir eigin höfði, því að í reyndinni séu flestir á móti honum, — en brezka útvarpið kemst að þeirri niðurstöðu að lok- inni athugunum á ummæl- um manna og umsögnum í gær, að það hafi valdið Skipuð hefir verið dómnefnd til þess að dæma um hæfni þeirra, er sóttu í vetur um prófessorem- bætti í fornbókmenntum við há- skóla íslands. Dómnefndina skipa dr. Steingrímur J. Þorsteinsson, formaður, tilnefndur af Heimspeki- deild háskólans. Dr. Finnur Sig- mundsson tiinefndur af mennta- málaráðherra og Jón Helgason prófessor tiinefndur af Háskóla- ráði. Sex umsækjendur eru um fyrr- nefnt embætti, sem dr. Einar Ólaf- ur Sveinsson gegndi þar til hann var skipaður fyrsti forstöðumaður Handritastofnunar Islands í vetur. Umsóknarfrestur um embættið var útrunninn 5. des. sl. og var búizt við að dómnefndin tæki þá þegar til starfa þar eð veita á embættið frá 1. marz n.k. og nefndin mun þurfa allt að þriggja mánaða starfs tíma ef dæma má af hliðstæðri reynslu. En hún var ekki fullskipuð fyrr en í gær. Vísir hefir haft fregnir af því að 'erfiðlega hafi gengið að til- nefna suma fulltrúana í nefndina og leitað hafi verið m.a. til prófess Wanna Einars Ólafs Sveinssonar og Sigurðar Nordal. en þeir beðizt undan að taka sæti í nefndinni. i —*»'i iw ririm— .í’hiwim—M—w Islenzka fíánm lilíi ísöldinn nf Bylting á grascsfræðiþekkingu þjóðnrinnar Steindór Steindórsson menntaskólakennari á Akureyri hefir komizt að allt annarri niður- stöðu um uppruna ís- lenzku flórunnar en áð- ur var talið. Vísar hin nýja kenning hans hinni gömlu algjörlega á bug, þeirri að plöntur hafi komizt hingað af sjálfs- dáðum eftir ísöld, nema í örfáum tilfellum. En þetta hefir aftur þá afleið ingu í för með sér, að gróður- ríki landsins, hin-íslenzka flóra, segir okkur ekki minnstu vit- und um hver hin eiginlegu gróð urskilyrði landsins eru nú. Þessi voru orð skógræktarstjóra, Há- kons Bjarnasonar, í erindi sem hann futti í fyrradag. Og hann bætti því við, að flestir náttúrufræðingar lands- ins hefðu fallizt á þessa skoðun Steindórs. Hana hefir hann ný- lega sett fram í bók, sem hann nefnir On the Age and Immi- gration of the Icelandic Flora. Hér er raunverulega um að ræða algjöra nýjung í vitneskju þjóðarinnar um grasafræði sina og íslenzkt plönturíki að ræða, og verður þessi niðurstaða Steindórs að teljast einn hinn merkasti viðburður í íslenzkum náttúruvísindum um langan tíma. Steindór hefur unnið að þess um rannsóknum sínum undan- farin 25 ár og rannsakað is- lenzku flóruna með hliðsjón að útbreiðslu einstakra tegunda betur en nokkur annar, sagði skógræktarstjóri. Frh á bls 5. Steindór Steindórsson. T

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.