Vísir - 30.01.1963, Blaðsíða 15

Vísir - 30.01.1963, Blaðsíða 15
V1SIR . MiBvikudagur 30. janúar 1963. 15 hennar áf einskærum feginleik. Blökkumennirnir kveiktu bál, Hitinn var óþolandi. Hún var alls ekki svöng. Saltkjötið, sem verið var að steikja yfir eldin- um, freistaði hennar ekki. Það mundi að eins auka þorsta henn ar, ef hún neytti þess. Og vatns- birgðir þeirra voru af skornum skamti — þau höfðu ekki enn fundið neitt drykkjarvatn. Rommið, sem Georges bauð henni bragðaðist illa. Henni leið enn verr, er hún hafði neytt þess. Hún lá þreytt og sljó og mókti, og þegar hún loks vakn- aði sá hún að blökkumennirnir höfðu kastað tvíbökunum, sem Georges hafði gefið þeim. — Það er alltaf sama sagan, — engu tauti hægt að koma við hjúin. Hið skoplega við þessi orð, mælt þarna í miðjum frumskóg- inurn, fóru ekki fram hjá Karó- línu. Hún tók nú værðarvoð sína og lagði hana á jörðina skammt frá bálinu. Reykurinn frá því var heinni til óþæginda, en hann bægði frá flugum og skorkvik- indum. Hún breiddi horn af voð- inni yfir höfuð sér og reyndi að sofna. Þegar hún var að festa svefninn fann hún, að hönd var lögð á öxl henni. Það var leið- sögumaðurinn. Reið á svip leit hún upp: — Hvað er það nú? Hann benti á skó hennar. — Slæmt — sofa með skó á fótunum. Georges bætti við: —• Hann veit, að það hindraði eðlilega blóðrás. Karólína dæsti, reis upp og kippti af sér skónum, og vafði sig svo inn í voðina. Leiðsögumaðurinn sat á hækj- um sínum nálægt henni. — Vefja höfuð— vel — tepp- inu, sagði hann. Karólína fór að ráði hans og vafði voðinni að höfði sínu svo þétt að hún gat vart dregið andann. Fyrri hluta nætur dreymdi hana um frú de Coigny. Hún mætti henni á götu í Cay- enne og kallaði til hennar: Eruð þér ekki dauð? Og hún svaraði: Nei í minni ætt deyjum við aldrei. Þegar hún vaknaði var eldur- inn slokknaður. Blökkumennirn ir sváfu. Fuglarnir voru að byrja morgunsöng sinn. Geston lá við Cecil Saint - Laurenf: NÝ ÆYINTÝRI í tali þeirra og blökkumennirnir veittu því athygli, og er þau urðu þess vör brostu þau hvort til annars og þögðu um stund. En Georges gat ekki þagað lengi. Honum fannst hann verða að létta á sér með því að segja Karólínu frá hörmungum þeim, sem hann hafði orðið að þola frá því hann var handtekinn — en allt sem hann þá hafði lifað var svo gerólíkt því frjálsa lífi undir beru lofti, í frumskógin- um, fjarri mannabyggðum, er þau nú lifðu, að hann gat ekki orða bundist. — Ég er ekki að segja; þér það til að hræða þig, Karólína, en það var engin leið að festa blund, því að rotturnar hentust fram og aftur allan liðlanga nótt ina, og þær voru ekkert smeyk ar, hoppuðu enda upp í rúmið. Eina nóttina vaknaði ég við, að ein sat á öxlinni á mér. Það fer enn hrollur um mig, er ég hugsa um það .... Karólína leit út eins og hún hefði fyllst viðbjóði og hrolli og aádvarpgðki^ i— Guði sé lof, að þú nýtur nú verndar gegn svo skaðlegum kvikindum! Það fór alveg fram hjá Georg es, að -Karólína hafði mælt í nöprum háðstón og hélt áfram eins og hann væri gersamlega áhyggjulaus um það, sem fram undan væri: — Þetta hefur sannarlega byrjað vel. Ef allt gengur svona vel framvegis gætum við verið komin innan viku ^að Chini- ánni, þar sem við getum leigt eintrjáningsbát og nýjan leið- sögumann. Og þá þurfum við ekki annað að gera en að halda til hafs eftir ánni. Það verður stórkostlegt. Eg gæti trúað að við yrðum komin þar til strand- ar þremur vikum fyrir burtför skipsins. Allt í einu brá eins og skugga á andlit hans. — Ef maður gæti nú verið viss viss um, að þar væru engir franskir varðflokkar. — En ég get ekki um annað hugsað en hætturnar, sem við okkur blasa nú. Við getum villzt í frumskóginum. Hér er allt mor andi af hættulegum skorkvik- indum og eiturjurtum. Og svo eru slöngurnar og villidýrin og við getum ekki verið viss um, að Indíánarnir taki okkur vel. — Af því hef ég engar áhyggj ur, sagði Georges. Ég trúi á það góða í mönnunum. Og þessir villimenn haga sér alltaf eftir því, hvernig komið er fram við þá. Ef þeir sannfærast um, að menn séu heiðarlegir og tilgang ur þeirra vinsamlegur, þá munu þeir bjóða okkur inn á heimili sín og að neyta með þeim hinn- ar hollu fæðu, sem náttúran sjálf fráimleiðir óg tííreiðir handa þeim svo ríkulega sem reynd ber vitni. Það varð að endurtaka marg- sinnis fyrirskipun til burðar- mannanna, að leggja af stað. Loks vörpuðu þeir nú byrðun- um á bak sér, en Georges gekk við hlið konu sinnar. Stundum leiddi hann hana og við og við kyssti hann hana á kinnina. — Karólína lét sér það vel líka, þar til hún fann að hann mundi brátt verða ágengari, og þá hitn aði henni í hamsi og sleit sig af honum. \ — Nei, hættu þessu, ég er varla með sjálfri mér af hræðslu við slöngur og eiturjurtir og guð veit hvað, og þér finnst þetta réttur tími til þess ... — Karólína, skilurðu ekki hve ég hef kvalizt, — hversu löng- un mín eftir þér vaknaði á þess- um stuttu samverustundum í sjúkrahúsinu, en í dag í þessu dásamlega umhverfi... Þessi orð reyttu hana enn frek ara til reiði og gerðu hana sam- tímis óstyrka. Loftslagið — hin annarlegu áhrif náttúrunnar, — allt stuðlaði að því — og það leið ekki á löngu þar til hún leit til hans öðruvísi skapi far- in, örvandi, jafnvel þakklát. En skyndilega minntist hún þess, að í Cayenne hafði hún hugleitt, að það hefði verið skammarlegt af henni að yfir- gefa Gaston til þess að láta Ge- orges í té alla umhyggju sína, — um hann einan hafði hún hugsað, og nú þegar hún hafði frelsað harin úr fangelsinu fannst henni hún vera frjáls og óháð, langaði burt frá þessari dularfullu ey, þar sem hættur voru við hvert fótmál — þráði að komast burt til elskhuga síns.. Þegar þau höfðu gengið nokkr ar klukkustundir var hún alveg að gefast upp. Sjálf hafði hún haldið, að hún væri langtum þrekmeiri en maður hennar, eft- ir allt, sem hún hafði reynt. í upphafi ferðarinnar var hún ekki í vafa um, að hann mundi gefast upp löngu á undan henni, meðfram vegna illrar meðferð- ar og veikinda, og hún gat ekki annað en dáðst að þreki hans, er hann stikaði áfram og minnti á grasafræðing, sem er í jurta- söfnunarleiðangri eða einhvern slíkan.’Hún vónaði, að blökku- mennirnir færu að kvarta um þreytu, en þeir þrömmuðu nú áfram möglunarlaust, þótt þeir hefðu áður kvartað yfir þreytu. Loks neyddist hún til að stinga upp á, að numið væri stað ar. — Ættum við ekki að taka okkur hvíld hér? Leiðsögumaðurinn svaraði, orðin streymdu af vörum hans, og henni skildist, að hann vildi halda áfram, en loks lét hann unÖan. Karólína athugaði jarð- veginn og hneig svo niður og Hvem and ... er þessi staur að gera hér um hábjartan daginn ... ? hlið hennar. Hún varð þess vör hve andardráttur hans hafði örf ast, fann áhrif hugaræsingar hans, er hann ryendi að færa hana úr karlmannsfötunum, og blóð hennar fór að streyma ör- ara, unz það ólgaði, og er hún var vakin streittist hún ekki lengur á móti. Eftir margra mán aða þrá eftir ást var hún reiðu- búin að fagna þeirri gleði sem bauðst, og aldrei hafði hún kom- ið til móts við Georges sem hér mitt í frumskóginum, en hún hafði enga hugmynd um það, að áhorfendur voru að ájstarleik þeirra — blökkumennirnir höfðu vaknað og allra augu beindust að þeim. Hún hratt Georges frá sér og sveipaði um sig voðinni. — Hvað er að, Karólína? spurði Georges undrandi. — Gerirðu þér ekki grein fyr- ir hvað ég nú verð að þola — blökkumennirnir sáu til okkar. Hann leit I kringum sig, hag- ræddi klæðum sínum, sparkaði í öskuhrúguna, svo að nokkrir neistar sem eftir voru.flugu upp og dóu, svo vafði hann saman voð sinni og sagði: — Af stað! Og eftir að menn höfðu gleypt eitthvað í sig var lagt af stað. Karólína hafði sofið illa um nótt ina og henni var það kvöl, er blökkumennirnir litu hver á ann an. Henni fannst tillit þeirra lýsa því betur en orð, sem þeir vildu sagt hafa um það sem fyrir hafði komið í morgunsárið. — Henni fannst sem bundið væri blý við fæturnar og hún gæti vert dragnast áfram. Mundi hún aldrei komast út úr þessum skógi? T A R Z A N C&mw TARZAM, 5ILL ALWOMP' AM7 THE USANPA KESI[7EMTS F&SPEKATELY 5ATTLEF THE RAGIMS PIKES-- UNTIL FINALLY THE LAST FLAWE WAS EXTINGUISHEF. "THOSE FIKTV P’OGSl" GASPEP SILL. *I L1. SHOW THEVi--y *ÍLL R.0UM7 UF ALL W HUMTEeS'-WE’LL G0T0THE VILLAGE AN!7 SHOOT EVEKY NATIVEIN SIGHT!" Tarzan, Bill Almond og menn verið slökktur. Bill: „Þessi skít- ... Ég ætla að safna saman öll- fæddra og skjótum hvern þann hans börðust nú ákaft við eld- menni. Ég skal aldeilis sýna þeim um veiðimönnunum mínum — — sem við getum“. inn, unz síðasti neistinn hafði síðan förum við til bústaða inn- Hún leit upp og sá andlit Georges yfir sér. — Vertu alls ósmeyk. Þú hras aðir og það leið yfir þig. Til allrar hamingju var skammt til lindar. Ég baðaði andlit þitt . . . — En það er orðið dimmt, hvenær . ... ? Það eru næstum 12 klukku- stundir síðan. Þú vaknaðir fyrst, þegar við komum að lindinni. Þú tautaðir eitthvað og leiðst svo út af aftur. Við höfðum borið þig á tágarbörum allan daginn. — Það er skelfilegt til að

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.