Vísir - 03.07.1963, Síða 1
VISIR
83. árg. — Miðvikudagur
1963. — 149 tbl.
GÓÐ SÖL TUNARSÍLD I
BERST NÚ AÐ LANDI
Á Raufarhöfn er nú salt- eru allir sem vettlingi mál og tunnur og fór sá
að af fullum krafti og geta valdið á staðnum afli allur í söltun. Veður
j
Ákvörðun bíður enn
— segir ÞÓRUNN
komnir í söltunina. Var
saltað fram á nótt í gær
og aftur í morgun. Barst
mjög góð síld til Raufar
hafnar og reyndar ann-
ars staðar í land, í gær,
síld sem veiddist norð-
austur af Raufarhöfn.
Veiddust þar 13—14 þús.
er gott og útlitið einnig,
þannig að mjög er að
lifna yfir mönnum
nyrðra.
Síðastliðinn sólarhring fengu
40 skip um 21 þús. mál og
tunnur og veiddist sú síld bæði
á fyrrnefndu svæði og einnig í
Reyðarfjarðardjúpi. Var farið
með síldina til Raufarhafnar,
Húsavíkur, Clafsfjarðar og eitt
Framh. á bls. 5
í Moskvu eins og skýrt var frá í
blöðum í morgun. Pórunn svaraði
því til að því hefðl verið lýst yfir
fyrir nokkrum dögum að svo gæti
farið, hjns vegar væri ekki búið
að lýsa yfir endanlegum ákvörð
unum þeirra hjóna, þar sem þau
ættu eftir að hugsa málið, og
myndu ekki taka ákvörðun fyrr en
eftir nokkra daga. Þau hefðu talað
um að skýra frá fyrirætlunum sín-
um á morgun eða föstudag, en
það gæti dregizt.
Móttökurnar voru frábærar
Snorri Gunnarsson afhendir Geir Hallgrímssyni borgarstjóra kveðjur frá Vancouver. Hjá þeim standa
Gunnþór Hinriksson og Jón Sigurðsson.
V7’ísir spurði Þórunni og Asken-
azy að þvi í morgun hvort
þau hefðu ákveðið að setjast að
— segja foringjar
Vestur - íslendinga
Við dáumst að þvl sem er að
gerast í Reykjavík, þeirri miklu
uppbyggingu, sem á sér stað í
borginni. Hér er meiri hreyfing
í 70 þúsund manna borg en í
Vanvouver, sem telur hálfa mill-
jón íbúa, sagði Jón Sigurðsson,
ræðismaður íslands i Vancouver
við fréttamann Visis í morgun,
er þeir hittust á skrifstofu borg-
arstjórans í Reykjavík, Geirs
Hallgrímssonar.
Þar voru staddir þrír Vestur-
íslendingar, Jón Sigurðsson og
Gunnþór Hinriksson ásamt
Snorra Gunnarssyni, fararstjóra
110 Vestur-íslendinga frá Kyrra
hafsströnd, sem var þar til að
afhenda borgarstjóranum kveðj-
ur Franck Fredriksson, sem hér
á landi er þekktur sem flugmað-
ur og fyrrv. fyrirl. íshockeyliðs
Kanada, en Franck var settur
borgarstjóri Vancouver, þegar
Vestur-íslendingarnir héldu hing
Fimm drukknir
Lögreglan í Reykjavík tók síð-
astliðna nótt 5 ölvaða ökumenn
við stýrið.
Eins og Vísir hefur áður skýrt
frá hefur mjög mikið borið á ölv-
un við akstur að undanförnu, en
langmest um helgar eða undir
vikulokin. Hins vegar er það.fátítt
að svo margir séu teknir á einni
nóttu í miðri viku sem sl. nótt.
að í heimsóknina, sem nú er að
ljúka.
Fréttamaður Vísis spurði þá
félaga hvernig þeir teldu ferð-
ina hafa tekizt.
Snorri svaraði: Ég hef verið
'beðinn um að koma á framfæri
innilegustu þökkum fyrir mót-
tökurnar. Þær hafa verið frá-
bærar.
Jón bætti við: Þær voru langt
fram úr því sem við bjuggumst
við. Fólk lagði mikið á sig til
að gera þær sem beztar.
Þeir félagar áttu ekki nægi-
lega sterk orð til að lýsa ánægju
sinni yfir framförum og ávinn-
ingum Islendinga á undanförn-
um árum, svo fréttamanni datt
í hug að spyrja hvort þeim
fyndist samt ekki eitthvað á-
bótavant eða gallað, hvort þeir
hefðu ekki séð eitthvað sem
hefði mátt betur fara. Snorri
svaraði strax: Við veittum því
ekki athygli. Sé um eitthvað
ábótavant að ræða hefur það
alveg horfið í skuggann.
— Gerið þið ráð fyrir annarri
ferð á næsta ári?
— Við höfum pantað flugvél
fyrir næsta sumar, enda gerum
við ráð fyrir að fleiri langi til
að heimsækja Island eftir þetta.
En þetta er óákveðið. Hins veg-
ar veit ég að ferðaskrifstofurn-
ar í Vancouver hafa nú allar
upplýsingar um ísland og ferða-
skrifstofan, sem skipulagði ferð
okkar hefur undirbúið 8 ferðir
til íslands næsta sumar. Meðal
þeirra sem koma í þeim ferðum
verða þrir Islendingar.
Vestur-lslendingarnir frá
Kyrrahafsströndinni halda utan
á sunnudag.
Hingað konia hjónin á föstudag
og Askenazy heldur konsert
á laugardag. Þar mun hann lejka
tvær sónötur eftir Beethoven og
fjórar ballöður eftir Chopin.
— Ég ætla að taka son okkar
með til íslands, mig Iangar til að
amma hans sjái hann.
— Hafið þér sótt um íslenzkan
ríkisborgararétt?
— Ég hef spurzt fyrir um hvort
það væri mögul. að fá hann. Mér
skilst maður verði að búa í land
inu einhvern tíma, áður en það
er hægt. En ég vil helzt fá ís-
lenzkan ríkisborgararétt, sagði
Þórunn ^ð lokum.
Hækkandi markaösveri ásíldarlýsi
En mikið selt fyrirfrom
undir núverundi verði
Verð á sildarlýsi hefur farið
hækkandi á heimsmarkaðinum
undanfarið og er nú 62 sterlings
pund og 10 shillingar tonnið
CIF, og er það mikill munur frá
þvi á síldarvertíðinni í fyrra. Þá
var lýsisverð óvenju lágt, fór
lækkandi í allt fyrrasumar og
komst niður í 29 pund s.l. haust.
Má því segja að munurinn sé
mikill frá þvi í fyrra, og þó er
verðið enn eigi talið hátt, rétt
sæmilegt.
Það er þó verst að mikið
af lýsisframleiðslu þessa árs er
selt fyrirfram á lægra verði en
nú er orðið, eða á 44—50 pund
tonnið, en núverandi markaðs-
verð er sem fyrr segir 62 pund
og 10 shillingar. Það er venju-
legt að selja lýsið fyrirfram, ef
hægt er, en það getur alltaf
komið illa út fyrir framleiðend-
ur þegar markaðsverðið fer
hækkandi, eins og verið hefur
síðan í vetur.
Þessar upplýsingar um lýsis-
verðið hefur Vísir eftir Gunnari
Petersen ,sem er þeim málum
manna kunnugastur. Hann sagði
aftur á móti um síldarmjölið, að
það gengi illa að selja það, eink-
um vegna mikils framboðs á
þeirri vöru frá Perú og fleiri
löndum. Viðskiptadeild utanrik-
isráðuneytisins hefur I samráði
við framleiðendur ákveðið lág-
marksmjölverð til útflutnings,
14 shillinga og 9 pence á pró-
teineiningu pr. kílógrömm. En
það gengur mjög treglega að
selja fyrir það verð og hefur
svo til ekkert verið selt fyrir-
fram af mjölframleiðslu þessa
árs.