Vísir - 03.07.1963, Blaðsíða 2
2
V í S IR . Miðvikudagur 3. júli 1963.
Krlstleifur og Benedikt Jakobsson — Myndin er tekin af þeim eftir
hindrunarhlauplQ frækilega, auk þess að vera landsliðsþjálfari er Bene-
dikt þjálfari Kristleifs og hefur verið síðan Kristleifur hóf hlaupaferil
sinn fyrir 8 árum.
///y/m
1 1 pl 0= rö i ru 1 1 u
/////////// i i w////////
Danir unnu fyrsta sigur
sinn í frjálsíþróttalands-
keppni yfir íslandi í gær-
kvöldi í nöpru veðri í Laug
ardal. Lokatalan var 135:
77, 58 stiga munur, sem
nær étur upp forskotið
sem landslið undanfarinna
ára hafa safnað saman.
„Við eigum samt eftir
„innstæðu“ með 11 stig-
um“, sagði Guðmundur
Lárusson fyrrum 400
metra hlaupari, sem Danir
þekktu betur á baksvipn-
um, enda varð hann þeim
oftast snjallari eins og svo
margir af eldri mönnum
okkar í frjálsíþróttum. Að-
eins 2 sigrar sigldu í okkar
skaut í gærkvöldi eins og
í fyrrakvöld, Jón Þ. Ólafs
son í hástökki með 2.02,
og „sætur sigur“ Kristleifs
Guðbjörnssonar í 3000
metra hindrunarhlaupi,
sem hleypti landskeppnis-
stemingu í áhorfendur
meðan það fór fram. Danir
unnu 10 af 20 greinum með
tvöföldum sigri og bæði
boðhlaupin voru danskar
greinar. Enginn sigur varð
tvöfaldur hjá íslandi. ís-
land vann sigur í 4 grein-
um stangarstökki, lang-
stökki, 3000 m hindrunar-
hlaupi og hástökki.
-k 200 metrarnir færðu tvöfaldan
sigur dönskum. Mayer og Jensen
komu rólegir í mark vel á undan
hinum ungum ungu hlaupurum
okkar Ólafi Guðmundssyni og
Skafta Þorgrimssyni. Timarnir
voru slakir: Mayer 23.0, Jensen
23.2, Skafti 23.6, Ólafur 24.0 —
Valbjörn Þorláksson meiddist i
grindahlaupinu daginn áður og var
ekki með.
Stigin eftir 200 metrana: DANIR
8 (73) — ÍSLAND 3 (44).
★ 800 metra hlaupið var sömu-
leiðis tvöfalt fyrir Dani. Kristján
Mikaelsson, sem kom þriðji í mark
eftir vonlausa baráttu náði þó
bezta tíma sínum, 1.58.9 þrátt fyrir
að hann var hálflasinn og illa fyrir
kallaður, en hann lá rúmfastur i
fyrrakvöld og gat ekki tekið þátt
í 400 metra hlaupinu eins og
kunnugt er. Listamálarinn ungi
Jörgen Dam vann sigur í þessu
hlaupi í skemmtilegri baráttu við
landa sinn Knud Erik Nielsen. Tím-
ar þeirra voru 1.55.2 og 1.55.5.
Valur Guðmundsson fékk tímann
2.04.1.
Stigin: DANIR 8 (81) —• ÍS-
LAND 3 (47).
★ Spjótkast var frá byrjun til
enda dönsk grein. Spjótið flaug
hátt og yel hjá Dönunum báðum
en skorti kraftinn. Claus Gad varð
fyrstur með 65.56 en Jochumsen
var með 64.23. Kristján Stefánsson,
handknattleiksstjarna úr Hafnar-
™ S8 sflgp munnr á liðunum er
Dunmörk vnnn sinn fyrstu sigur í Innds-
keppni gegn Islnndi í frjnlsum íþróttum
s :
/.s s
Tímaverðir bera saman tíma sína £ Laugardal í gær. Það er Jóhann Bernhard, yfirtímavörður, sem
er á miðri myndinni, en við borðið situr Gúðrún Svava Svavarsdóttir, hlaupritarl. Fyrir aftan hana
er efnileg KR stúlka Halldóra Helgadóttir, sem starfaði við keppnina.
Dönsku þrístökkvararnir Bödker og Petersen brosa að loknum
tvöföldum sigri í sinni grein. Eftir þann sigur hefðu Danir eins
getað gefið þær greinar sem eftir voru og unnið örugglega samt.