Vísir - 03.07.1963, Síða 3
V í SIR . Miðvikudagur 3. júlí 1963.
3
jjjjijHÍifS!
• <>
'J . §1 &• 1
firði, kastaði 58.83, en fyrir stuttu
hafði hann aðeins æft 3 eða 4
sinnum í sumar. Hvað hefði hann
kastað EF hanr. hefði æft? Kjartan
Guðjónsson kastaði 57.46.
Stigin: DANIR 8 (89) — ÍS-
LAND 3 (50).
•Ar 3000 metra hindrunarhlaupiO
færði líf í tuskurnar á áhorfenda-
pöllunum, sem báru nú mun færri
en fyrra kvöldið, enda var fólk
ekki mjög spennt eftir ófarirnar
kvöldið áður. Kristleifur hljóp
mjög skemmtilega, hélt sig í hópi
Dananna tveggja þar til um 300
metrar \fc>ru eftir að hann kvaddi
þá og hljóp léttum, öruggum skref-
um siðasta spölinn og óðum togn-
aði sundur með honum og Tofte-
gaard, sem kom á óvart með því
að sigra landa sinn Petersen, sem
er methafi f greininni. Tími Krist-
leifs var 9.08.8. — Toftegaards
9.12.8, sem er hans bezta afrek í
ár — Petersen hljóp á 9.19.9 og
Agnar Leví rak lestina á 9.40.6.
Stigin: DANIR 5 (94) — ÍS-
LAND 6 (56).
★ 400 metra grindahlaupið fór tals-
vert á annan veg en reiknað hafði
verið með, — ísland náði öðru
sætinu, þegar Helgi Hólm kom
skjögrandi og algjörlega útblásinn
í markið nokkrum metrum á undan
Hans Henrik Sand, sem sótti óðum
á. Preben Kristensen fyrirliði Dana
á leikvelli vann þarna öruggan
sigur á 55 sek. sléttum, — Helgi
á sínum bezta tíma 57.9, sem hann
á örugglega eftir að bæta — þriðji
San á 58.5 og Sigurður Lárusson
siðastur á 60.6 sek. Þarna kom
Hinn þindariausi Thögersen.
Helgi þægilega á óvart með hörku
sinni.
Stigin: DANIR 7 (101) — ÍS-
LAND 4 (60).
•k Sentimetrastríð var í þrístökk-
inu, en Danir unnu fyrstu tvö sæt-
in. Bödtger með 14.60, Petersen
með 13.93. íslendingarnir fengu
nokkru lakari árangur: Ingvar Þor-
valdsson með 13.70 og Bjarni Ein-
arsson 13.57. Ingvar kom inn sem
varamaður fyrir Jón Þ. Ólafsson,
sem hafði öðrum hnöppum að
hneppa, var sem sé í hástökkinu.
Stigin: DANIR 8 (109) — ÍS-
LAND 3 (63).
★ Sleggjukastið var rammdönsk
grein, sem fór illilega í taugarnar
á knattspyrnuáhugamönnum, sem
leizt illa á þegar hin þunga sleggja
tætti upp völlinn. Hinn vlkinglegi
Orla Bang kastaði langlengst
56:08, en hann hefur sjáifur kastað
tæpa 59 metra og er mjög snjall
kastari. Poul Toft kastaði 52,81,
en Þórður B. Sigurðsson veitti ekki
Hindrunarhlaup Kristleifs hressti áhorfendur upp eftir heidur drungaieg úrslit 1 mörgum greinum. Kristleifur var í endasprettinum, það
tognaði sundur með honum og Dönunum tveim og þetta má gjöria lesa í andlitum áhorfenda, ef þau eru skoðuð nánar, Meðal þeirra, sem
klappa Kristleifi lof í lófa er Helgi Sæmundsson formaður Menntamálaráðs, hægra megin við miðbik myndarinnar.
keppni, kastaði 50.87 en
Guðjónsson átti bezt 44.62.
Stigin: DANIR 8 (117) -
LAND 3 (66).
Bigir
★ Hástökkið stóð yfir lengi kvölds
og var allskemmtileg grein. „Við
gerum okkur vonir um danskt met
f hástökkinu f kvöld“, sögðu Dan-
ir. Þetta rættist þó ekki. Eftir að
Sigurður Ingólfsson og Papsöe
féllu úr stukku Jón og Breum
fyrst 1.95 og síðan 2 metra, Jón í
bæði skiptin léttilega f fyrstu til-
raun, en Breum í annarri. Þegar
hækkað var í 2.02, — mettilraun
fyrir hinn 17 ára Sven Breum, en
danska metið á Ole Papsöe og er
2.01 sett í fyrra. Breum felldi í öll-
um tilraunum sínum en Jón flaug
yfir í fyrstu tilraun sinni. Jón
reyndi við 2.06, en mistókst, var
hræddur við hæðina, en hefur ör-
ugglega getu til að stökkva þessa
hæð. Kalt var orðið þegar þeir
Jón og Breum gerðu mettilraunir
sínar og hafði það að vonum slæm
áhrif. Papsöe, sem varð 3. stökk
1.90 en Sigurður Ingólfsson 1.80.
Stigin: DANIR 5 (122) — ÍS-
LAND 6 (72).
10.000 metra hlaupið var hrein
sýning Dananna Tögersens og
Andersens. Þau mistök urðu þó að
hringirnir í hlaupinu rugluðust
þannig að úr varð hálfgerð
„hringavitleysa". HIupu hlaupar-
arnir einum hring of lítið og var
tími þeirra því „grunsamlega" góð-
ur, Tögersen 35 sek. undir danska
metinu og Andersen talsvert undir
meti einnig, en varamaður fslenzka
liðsins, Halldór Jóhannesson var á
10 sek. lakari tíma en metið. Hann
hljóp mjög vel og kom léttur og
leikandi í mark og hefði örugg-
lega getað náð mun betri tíma, en
þorði ekki að hlaupa á hraðara
„tempói“ enda hefur hann ekki
hlaupið þessa vegalengd fyrr. Tím-
arnir f þessu 9600 metra hlaupi:
Tögersen 29.10.4 — Andersen
29.14.8 — Halldór Jóhannesson
31.47.6 og Jón Guðlaugsson
36.09.0.
Stlgin DANIR 8 (130) — IS-
LAND 3 (75).
■Ar Nú var aðeins eftir 4X400
betra boðhlaup, enn ein rassskell- ^
Framh. á bls. 5.
Hindrunarhlaupið — íslenzkur sigur í uppbyggingu. Kristleifur ieyfir Dönunum tveimur að hafa for-
ystuna um miðbik hlaupsins. Agnar fyigir enn eftir. Það er Bjame Petersen, sem Ieiðir en Toft-
gaard er annar.
Hlutdrægni dóm.
veg fyrír
Handknattleikslið Víkings,
sem verið hefur á keppnisferða
lagi í Tékkóslóvakíu að undan
förnu er nú komið til Þýzka-
lands og mun keppa í Frankfurt,
Koblenz og Wiesbaden áður en
haldið verður heim. Víkingar
hafa enn ekki unnið sigur, en
eitt jafntefli hafa þeir fengið,
1/1-1vegn Telnic, 7. bezta liði
Tékka.
Á fimmtudaginn léku Víking-
ar við Subric en hitinn var bug-
andi og hafði slæm áhrif á bæði
liðin, — ekki sízt íslendingana,
sem töpuðu með 25:17. Subric
er mjög sterkt lið og tapaði f
vetur með aðeins einu«marki á
heimavellj sínum fyrir Dukla.
en með þrem mörkum á heima-
velli Dukla í Prag.
Á Iaugardag átti að leika við
■Dukla Prag, hið stolta hand-
knattleikslið Tékka, — eitt
bezta handknattleikslið Tékka,
en svo illa tókst til að vegna
misskilnings var búið að gefa
leikmönnum sumarfrí svo ekki
varð af leik vlð Dukla, en í stað
hess var leikið við Gottwaldov
og lyktaði þeim leik með sigri
Gottwaldov 17:12 (12:8). Hitinn
Framh. á bls. 13