Vísir - 03.07.1963, Side 5
VÍSIR . Miðvikudagur 3. júlí 1963.
Verkfall taiað
Verkalýðsfélagið á Seyðis-
firði hefir boðað vinnustöðvun
með viku fyrirvara, hafi samn-
ingar ekki tekizt fyrir þann
tíma, það er 10. þ.m. Almenna
kaupkrafan er 7y2% hækkun
og sérkröfur varðandi verk-
smiðjuna- á staðnum og söltun-
arstöðina Ströndina. Samninga-
fundur hefir verið boðaður með
deiluaðilum kl. 9 í kvöld.
Barði Friðriksson frá Vinnuveit
endasambandi fslands er farinn
til Seyðisfjarðar f sambandi við
lausn þessarar kaupdeilu.
Brei
enn
Brezki togarinn sem tekin var
við ólöglegar veiðar fyrir réttri
viku síðan, liggur enn kyrrsettur
við bryggju á Seyðisfirði. Ástæðan
er sú, að enn hefur ekki borizt
trygging fyrir greiðsiu sektarinnar,
Framhald af bls 16.
Þórir K. Þórðarson prófessor
fslandi, Egil Thrane Danmörku
formaður, Ragnar Meinande1'
Finnlandi, frú K .Sönnerlund
Svíþjóð ög Oddvar Hedlund
Noregi.
Á fundi ráðherranna f gaér
var endanlega sambykkt að
setja á stofn lýðháskólann í
Kungálv til reynslu í 5 ár. fs-
land hefur enga fjárhagslega
þátttöku í því máii.
Þá voru samþykktar starfs-
reglur norræns búsýsluháskóla,
sem á að veita háskólamenntun
í búsýslu og bústörfum. Er því
þannig fyrir komið að hægt er
að taka hina vmsu bætti náms-
ins í einstökum háskólum á
Norðurlöndum. Fyrsta deildin
mun taka til starfa næsta haust
í háskólanum í Gautaborg.
Þá var samþykkt að efla flug-
tæknideild Stokkhólmsháskóla
og veita aðgang að beim skóia
flugvélaverkfræðingum frá Dan-
mörku og Noregi.
Fundum verður fram haldið í
dag og lvkur ráðherrafundinum
í kvöld. Á morgun fara ráðherr-
arnir og fylgdarlið þeirra í
ferðalag um Suðvesturlandsund-
irlendið.
Íþróttir —
Framhald bls 3
ing af hálfu danska landsliðsins,
sem hreinlega stakk af og varð um
70 metra á undan í markið á
3.20.6 en íslenzka sveitin fékk
3.32.0 og þar með var þessari
landskeppni lokið. Reyndar höfðu
Danir þegar verið búnir að sigra
eftir þrfstökkið, en þá höfðu Danir
efni á að gefa þær 4 greinar sem
eftir voru og sigra samt örugglega.
LOKAÚRSLIT: DANIR 135 —
ÍSLAND 77.
★
í dag mun danska landsliðið
ferðast um nágrenni Reykjavíkur
og skoða markverða staði en í
kvöld verður haldinn kveðjudans-
leikur fyrir þá, en flogið til Kaup-
mannahafnar að loknum dansi,
kiukkan 2 eftir miðnætti.
en skipstjóri togaranr, var fundinn
sekur og dæmdur í kr. 260. þús.
sekt.
Afli, sem metinn var á 32 þús.
kr. og veiðarfæri metin á 180 þús.
kr. voru oe f'ero upptæk, en þess
má geta að þetta mun vera hæsta
mat á veiðarfærum sem þekkist.
Það hefur verið venja að togar
ar þeir, sem teknir hafa verið í
landhelgi og dæmdir, hafa þegar
getað siglt úr höfn, að dóminum
fengnum, enda getað látið trygg-
ingu í té. Togarinn, Dorade, sá er
tekinn var s.l. miðvikudag, liggur
j þó enn kyrrsettur á Seyðisfirði eins
og fyrr segir, nær viku eftir að dóm
ur er genginn í málinu.
Samkvæm't viðtali við Geir
Zoega. umboðsmann hér á landi,
er tryggingin væntanleg á hverri
! stundu, og bfður Geir eftir símtali
| við útgerðina í dag. Er þess því að
I vænta að togarinn verði leystur
: úr kyrrsetningunni í dag.
Síldin —
Pramnalct ; t bls I
hvað til Seyðisfjarðar. í morgun
var búið að salta 500 tunnur á
Raufarhöfn. Þessi skip fengu
afla:
Pétur Sigurðsson 100, Héftinn
100, Stígandi 100, Jón Jónsson
250, Bára 600, Þorbjörn 400,
Ólafur Magnússon EA 1300,
Vonin 500, Sigurpáll 600, Guð-
rún Þorkelsdóttir 1700, Fagri-
klettur 450, Huginn 400, Bjarni
600, Garðar 450, Mummi frá
Fla'o' ■’ 203 Frapi 8R0. Svanur
RE 300, Vörður 200, Erlingur
III, 200, Hrönn II 400, Héðinn
1400, Kópur 1450, Sigurvon 550,
Valafell 200, Gissur hvíti 550,
Dalaröst 500, Arnarnes 500, Vig
fús Bergmann 500, Bragi 500,
Gunnar 1100 Ingiberg Ólafsson
400, Akurey 400, Leifur Eiríks-
son 350, Víkingur II 100, Mána-
tindur 60, Grótta 400, Guðbjörg
ÓS 200, Einar Hálfdáns 200,
Svanur ÍS 200.
Áfrýjað
Sagt var hér í blaðinu í gær frá
dómi í bæjarþingi Hafnarfjarðar
þar sem tryggingarfélag var skyld-
að til þess að greiða rúðubrot á
bifreið sem steinn undan hjólum
annarrar bifreiðar hafði orsakað.
Er það nýmæli, því fram að þessu
hafa tryggingarfélögin neitað að
greiða bætur fyrir slíkan skaða. Nú
hefir það tryggingarfélag sem hér
um ræðir, Samvinnutryggingar, á-
rýjað þessum dómi til Hæstaréttar.
Ný njósnamál skjóía upp
kollinum næstum daglega,
en gömul eru rædd af ríkis
stjórnum, í þingsölum og
höfuðefni blaða í gær voru
harðar umræður um örygg
is- og njósnamál í neðri
málstofunni og í morgun
fréttist um handtöku fjög-
urra Rússa í Bandaríkjun-
uni, vegna njósna.
Einn þeirra var starfsmaður
Sameinuðu þjóðanna og er sak-
aður um að hafa njósnað og kona
hans, en tveir aðrir Rússar, sem
bandaríska leynilögreglan telur
hafa verið riðna við njósnir,
fóru frá New York í maí. Tveir
Rússar voru handteknir í Washing-
ton. Villtu þeir á sér heimildir með
því að nota nöfn fólks, sem er á
Íífi.
I neðri málstofu brezka þings-
ins neitaði Macmillan reiðilega, að
^óróifur —
Framhald áf bls 16.
Fyrsti Ieikur liðsins verður á
fimmtudagskvöld á Laugardals-
vellinum og verður hann gegn
K.R.
Þórólfur Beck mun væntan-
lega leika með K.R.
Annar leikurinn verður gegn
Reykjavíkurúrvali á laugardag
og sá þriðji gegn tilraunalands-
| liði á mánudag.
j Heyrzt hefur að Reykjavíkur-
úrvalið verði þannig skipað:
Geir, Fram, Ámi, Val, Bjarni,
K.R., Hrannar, Fram, Halldór,
I Fram, Sveinn, K.R., Gunnar G.,
K.R., Bjöm H., Fram, Baldvin,
Fram, Jens, Þrótti, Axel, Þrótti.
Þess skal getið að Valsmenn
verða farnir utan, þegar þessi
leikur fer fram.
hann hefði ekki gætt skyldu sinnar,
en Wilson hafði minnt hann á, að
sem forsætisráðherra' bæri hann
ábyrgð á öryggismálunum. Wilson
hafði einnig spurt hvort Macmillan
vildi skipa sérstakan dómara í
Philbymálinu.
Það er hann, sem er „þriðji
maður“ í Burgess og McLean-mál-
inu. Og þingmenn stjórnarandstöð-
unnar spurðu margs, og telja sig
hafa fengið loðin svör. Þetta kom
til eftir að Edward Heath aðstoð-
ar-utanríkisráðherra hafði ksýrt
frá því, að Harold Philby væri
maðurinn, sem hefði aðvarað
Burgess og MacLean, að öryggis-
lögreglan væri á hælum þeirra
1951, og tókst þeim þá að flýja
til Sovétríkjanna og eru þar enn.
Harold Philby er nú líka austan j
tjalds, en hans var saknað frá
Libanon fyrir allmörgum mánuð-
um. Heath sagði, að Philby,
hefði játað sekt sína fyrir brezkum
leynilögreglumö'nnum fyrir fimm
mánuðum. Og stjórnarandstaðan
telur, að stjórnin hafi verið knúin
til játningarinnar nú, af ótta við að
um þetta fréttist frá FBI í Banda-
ríkjunum. Stjórnin hafi þannig
mánuðum saman haldið leyndum
upplýsingum, sem málstofan átti
rétt á að fá.
Þetta mál kann að verða vatn á
mylnu stjórnarandstæðinga til þess
að koma Macmillan frá — og
vissulega er hætt við, að þessar
nýju upplýsingar veiki aðstöðu
Hrúin ««
Framhald af bls. 16.
að fara yfir Fnjóskárbrú hjá Vögl-
um torveldast samgöngur norður
í Þingeyjarsýslu, því nýlega hefur
brúin yfir Fnjóská hjá Laufási
verið rifin, en þar er unnið að
smíði nýrrar brúar sem stendur.
Þriðja brúin yfir Fnjóská er lengst
inni í Fnjóskárdal og á allan hátt
óhentugt um samgöngur yfir hana.
hans í flokknum á ný, en þess var
farinn að sjást vottur í seinustu
skoðanakönnunum, að hún væri
aftur að eflast.
Og ofan á þetta allt bætist svo
yfirlýsing í morgun frá brezka
blaðinu
Observer, en Harold Philby
starfaði fyrir það í Austurlönd-
um nær, og var yfirlýsingin
þess efnis, að það hefði verið
að uppástungu utanríkisráðu-
neytisins, að Philby var ráðinn
að blaðinu fyrir 7 árum, og
aldrei borizt nein aðvörun frá
því þess efnis, að honurn
væri ekki að treysta.
Toiar'nn —
Framhald af bls. 16.
arinn ókominn þangað og létu sum
ir sér til hugar koma að hann
myndi ekki koma inn. Ástvaldur
Kristófersson, umboðsmaður útgerð
arfélags togarans á Seyðisfirði, var
þá einmitt að reyna að ná sambandi
við skipstjórann, en það hafði ekki
tekizt, er blaðið fór í prentun.
AfmæI" —i '
Fh. af bls. 9:
aldrei hefir haggazt í stormum og
stríði lífsins. En þótt mér finnist
þetta tilkomumesta hlið persónu-
leika þfns, væri synd að segja, að
bú æftir ekki fleiri Frásagnar-
hæfileiki þinn, orðgnótt og skop-
skyn hafa margan glatt f geði. Ég
vona og óska þér þess, að allt það
bezta, sem þú býrð yfir, megi end
ast þér til sannrar upplyftingar að
hinztu stundu. Hafðu hjartans þökk
mína og minna fyrir öll okkar
samskipti.
„Blessi þig Drottinn um ókomin ár
andi þér blær hans um vanga.
Sé blessað hvert einasta bros þitt
og tár
— og blessuð þín síðasta ganga“.
Baldvin Þ. Kristjánsson.
Glæsileg sumarfer
VfÍSIR skýrði fyrir nokkrum
dögum frá hinni glæsilegu
og fjölmennu skemmtiferð Varð
ar um síðustu helgi, en í henni
tóku þátt 650 manns — og
komust færri að en vildu. Ferð-
azt var um fjórar sýslur, Kjós-
arsýslu Borgarfjarðarsýslu.
Mýrasýslu og Árnessýslu. Birt-
um við í dag mynd af hópn-
um í einum áningarstaðanna.
Meira en tuttugu langferða-
bílar voru í ferðinni, en veður
var hið ákjósanlegasta. Árni
Óla ritstjóri var leiðsögumaður
og flutti hann stutt erindi á
Drageyri, hjá Húsafelli og Bola-
bási. Ásgeir Pétursson sýslum.
kom til móts við hópinn við
Hraunfossa og bauð hann vel-
kominn í héraðið.
Á Húsafelli flutti formað-
ur Sjálfstæðisflokksins, Bjarni
Benediktsson ræðu og gerði
kaupgjaldsmálin og landhelgis-
málið að umræðuefni.
Undir miðnætti var aftur
komið í bæinn og luku allir
þátttakendur upp einum munni
um að ferðin hefði bæði verið
mjög skemmtileg ag óvenju
fróðleg.