Vísir - 03.07.1963, Síða 6
Fengu /slondsferi
í söluverðlaun
i dag er væntanlegur til landsins
me5 flugvél frá italíu hópur 80
ftalskra sölumanna. Eru þeir komn-
ir hingað í skemmtiferð, sem þeir
fengu f verðlaun f sölukeppni hjá
fyrirtæki því sem þeir vinna hjá,
en þaíLer stórt þýzkt iðnaðarfyrir-
tæki.
Fyrirtæki þetta hefur oft áður
efnt til slíkrar samkeppni og hefur
verið farið til ýmissa landa, en
þetta er f fyrsta skipti sem Island
verður fyrir valinu.
ftalirnir eru væntanlegir til lands
ins síðdegis í dag og mun þá verða
fyrir þá síðdegisboð á Hótel Sögu,
og snæða þeir þar sfðan kvöldverð.
Þeir munu búa á Hótel Sögu meðan
þeir dveljast hér.
Á morgun, miðvikudag og fimmtu
dag ferðast þeir um Iandið, fara
m.a. að Gullfossi og Geysi ,til
Komungar stúlkur, eflaust með sínar fyrstu tunnur, leggja hönd á plóginn.
Kýrsuvfkur og upp f Borgarfjörð.
Þeir fara aftur utan á föstudag.
Byggag orlofsheimilis
verkalýisfélaganna hafin
Hafnar eru framkvæmdir við
orlofsheimili verkalýðsfélag-
anna, sem áformað er að rfsi í
landi Alþýðusambandsins undir
Reykjafjalli og stakk forseti
Alþýðusambandsiins fyrstu
skóflustunguna að grunni fyrsta
sumarhússins s.l. laugardag.
Hér er um að ræða orlofs-
heimilishverfi og er það þannig
hugsað að f landinu rtsi aðal-
bygging, vandað, fburðaria'ust
nýtízkuhótel, en í nágrenni
þess verði byggð um 30 smá-
hýsj og séu þau eign einstakra
vérkalýðsfélaga.
Hvert smáhýsi er 39 ferm. að
grunnfleti og er þar fyrirkomið
stofu, þremur svefnklefum, e!d-
húskrók, anddyri, salérni, fata-
skáp og áhaldaskáp. Er við það
miðað að fbúarnir geti sjálfir
ráðið því af hve miklu leyti þeir
notfæri sér þjónustu frá aðal-
stofnuninni.
Skipulagning svæðisins gerir
ráð fyrir því að byggð verði lít-
il sundlaug og ennfremur knatt-
leiksvellir og bílastæði. — Ætl-
að er að í þessum orlofsheim
ilum geti 200 til 250 notið hvíld
ar í sumarleyfinu samtímis.
Rikisstjórnin hefur þegar
veitt af fjárlögum milli 4 og 5
milljónir króna til orlofsheimil-
Erlendir skúgrækt
armenn tilíslands
Á fimmtudagskvöldið kemur er
væntanlegur til Reykjavíkur yfir-
maður skógræktarmála Vestur-
Þýzkaiands, W. Mann ráðuneytis-
stjóra. Mann mun dvclja hér hálfa
aðra viku og ferðast um iandið.
W. Mann dvelur hérlendis að
nokkru leyti á vegum Skógræktar
ríkisins og munu íslenzkir skóg-
ræktarmenn ferðast með honum
um landið og kynna honum m. a.
skógræktaraðstæður.
í sambandi við komu hins þýzka
ráðuneytisstjóra má geta þess að
góð samskipti hafa verið meðal
vestur-þýzkra og i'lenzkra skóg-
ræktarmála á undanförnum árum
og hafa Þjóðverjarnir m. a. boðið
þrem íslenzkum skógfræðingum og
skógræktarmönnum heim, þeim
Hákoni Bjarnasyni skógræktar-
stjóra, Baldri Þorsteinssyni og
Snorra Sigurðssyni.
Þá eru Væntanlegir til landsins
þrír kunnir skógræktarmenn frá
Noregi f boði Skógræktar ríkisins.
Þeir koma um miðjan júlfmánuð,
dvelja hér í hálfan mánuð og ,;ferð-
ast um landið.
Koma þeirra' er í beinu fram-
haldi af fyrri samskiptum Norð-
manna og íslendinga í skógræktar-
málum, en við Norðmenn hafa Is-
lendingar haft nánari samvinnu í
þeim efnum og lært meira af þeim
en af nokkurri þjóð annarri.
Sa/tað á Sigfufírði
Arnbjöm Jóhannsson, fyrrverandi bóndi, við hverflsteininn, en ekkl
veitir af að hafa kutana vel brýnda þegar að söltuninni kemur.
í gær birti Vfsir fyrstu sölt-
unarmyndirnar á þessu sumri
og i dag birtir hann fleiri slíkar.
Þykir okkur vel við eiga að
birta söltunarmyndir, síidar-
myndir, síldarsöltunarmyndir,
sem allra, allra flestar þessa
dagana. Allt snýst um þennan
flsk, veiðamar og vinnsluna,
allt landið um kring, og öll þau
verðmæti sem þessu umstangi
fylgja, verða aldrei f peningum
talin.
Undanfama daga hefur söltun
arundirbúningur verið í fullum
gangi, öll tæki hafa verið und-
irbúin, „söltunarplönin" lagfærð
og söltunarstúlkumar hafa
streymt til staðanna albúnar til
að vinna nótt sem nýtan dag.
Sjaldan fæst þó nóg af vinnu-
krafti og þegar mest gengur á,
er hver „raftur á sjó dreginn“.
Uppi er þá fótur og fit, ungir
sem aldnir ieggja leið sfna á
verkunarstöðvamar og Ieggja
hönd á plóginn.
Myndirnar hér á sfðunni eru
frá Siglufirði. Skýra þær sig
sjálfar enda dæmigerðar á sfna
vfsu.
V í SIR . Miðvikudagur 3. júlf 1963. •