Vísir - 03.07.1963, Blaðsíða 8
Útgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR.
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinsson.
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen.
Ritstjórnarskrifstofur Laugavegi 178.
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstrseti 3.
Áskriftargjald er 65 krónur á mánuði.
1 lausasölu 4 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur).
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
„Stöðvunarvaldið"
Þrátt fyrir öll skrif Tímans um að úrslit kosning-
anna hafi verið mikill sigur fyrir Framsóknarflokk-
inn, leyna vonbrigðin sér ekki yfir því, að „stöðvun-
arvaldið“, sem Framsókn bað um, náðist ekki. Hið
mikla traust, sem þjóðin vottaði viðreisnarstjóminni,
sýnir að meiri hluti landsmanna vill að haldið verði
áfram á sömu braut og gert var síðasta kjörtímabil.
Til hvers ætlaði Framsókn að nota stöðvunarvald-
ið? Mundi hún hafa beitt því með þjóðarheill fyrir
augum eða sjálfri sér til framdráttar? Um það þarf
enginn að efast, sem þekkir sögu Framsóknarflokks-
ins. Maður, sem um langt skeið átti sæti á Alþingi og
kynntist þar vel vinnubrögðum Framsóknarflokksins,
Iét eitt sinn þau orð falla, að þeir hugsuðu ævinlega
fyrst um það í hverju máli, hvort flokkur þeirra gæti
hagnazt á því. Þess vegna væri aldrei hægt að hafa
við þá heilbrigt samstarf, aldrei hægt að treysta þeim.
Framsókn hefur leikið það hvað eftir annað, að
hlaupa úr ríkisstjóm án nokkurs tilefnis, búa til ein-
hvern ágreining og heimta nýjar kosningar, í von um
að geta bætt við sig fylgi í skjóli ranglátrar og úreltrar
kjördæmaskipunar. í öllum samsteypustjórnum hefur
Framsókn setið á svikráðum við samstarfsflokka sína,
þakkað sér það sem vel hefur verið gert, en kennt
þeim um það sem miður fór. Þegar Sjálfstæðismenn
og Framsókn hafa staðið saman að ríkisstjóm, hefur
Tíminn haldið uppi látlausum árásum og svívirðingum
á Sjálfstæðisflokkinn, þannig að eftir þeim skrifum
hefði mátt ætla að blaðið væri í stjómarandstöðu.
Með slíkum flokki er ekki hægt að vinna, og því var
það mikil gæfa fyrir þjóðina, að hún skyldi hafna
beiðni Framsóknar um „stöðvunarvaldið“.
Draumur sem ekki rætist
Framsóknarflokkurinn hefur lengstum verið í ríkis-
stjórn frá því að hann var stofnaður, og hann hefur oft
misnotað þá aðstöðu á hinn herfilegasta hátt til þess
að skapa sér forréttindi. Foringjum hans líður illa utan
stjórnar, enda trúðu þeir því sumir, a. m. k. til skamms
tíma, að þeir væra fæddir til þess að sitja í ráðherra-
stólum. Síðustu 5 árin hefur þó verið hægt að komast
af án þeirra þar, og allt útlit er fyrir að svo verði
næstu 4 árin að minnsta kosti.
Að þeim tíma liðnum má búast við að enn fleiri
kjósendur hafi áttað sig á því, að forréttindastefna
Framsóknarflokksins er ekki leiðin til þess að byggja
upp heilbrigt stjómarfar á íslandi. Héðan af er ólíklegt
að draumurinn um „stöðvunarvaldið“ verði nokkru
sinni að veruleika.
V a S IR . Miðvikudagur 3. júlí 1963. **
☆
í síðustu viku var brezk
ur togari tekinn í land-
helgi, og var sökudólgn-
um þegar stefnt til Seyð-
isfjarðar. Þar fóru réttar
höld fram, togaraskip-
stjórinn sekur fundinn
og afli og veiðarfæri
gerð upptæk, auk hinnar
venjulegu sektar. Má
segja að gangur málsins
hafi verið hinn venju-
legi fram að úrskurði
dómsins. En þá brá hins
vegar svo við, að í stað
þess að togarinn héldi
þegar úr höfn og á miðin
á ný, hefur hann verið
kyrrsettur í höfninni á
Seyðisfirði. Ástæðan:
Trygging fyrir greiðslu
sektarinnar hefur enn
ekki borizt frá útgerð-
inni.
Enski pilturinn gengur um borð ásamt Birni Jönssyni lögregluþjóni
á Seyðisfirði.
Aldrei í fíallgöngu aftur
vr* W’
Eins og að líkum lætur hef-
ur hinum brezku sjómönnum
ekki allskostar líkað að sitja að-
gerðarlausir i togaranum bundn
um upp við landssteinana, og
hafa þeir þvi nokkuð verið á
stjái um plássið og nágrenni
þess. Sjóararnir hafa m. a. geng
ið þar á fjöll og unnið fleiri
athyglisverð afrek. Fjallgangan
endaði þó með slysalegum
hætti, því einn togarasjómann-
anna eða göngugarpanna hrap-
aði í hlíðinni og meiddist nokk-
uð. Var hann lagður inn á
sjúkrahús.
Á laugardaginn fékk garpur-
inn þó að fara frá sjúkrahús-
inu, enda voru meiðsl hans ekki
eins slæm og haldið var '
fyrstu. Hann reyndist ekki
brotinn, en mikið marinn og
með skrámur í framan. Hrapið
hefur haft þær örlagaríku á-
hrif á sál mannsins og lífsskoð-
un, að hann hefur gefið hátíð-
lega yfirlýsingu um, að aldrei
muni hann halda í aðra fjall-
göngu ótilneyddur.
Frá þessu slysi var sagt í
fréttum, en ekki ítarlega. Skal
þess því getið að hrapið varð
í hamrinum innan við fossinn á
leiðinna að Strandartind. Sá er
hrapaði, var unglingspiltur um
tvítugt.
Þegar hann fór um borð að
nýju átti hann mjög erfitt með
gang, en bar sig þó mannalega
og vildi engan láta styðja sig.
Birtist hér mynd af því, þegar
hann gengur um borð. Á und-
an honum gengur Björn Jónsson
lögregluþjónn sem starfað hef-
ur á Seyðisfirði um fjölda ára,
og lent í ýmsu um dagana og
unnið margt sér til ágætis.
Björn er m.a. brautryðjandi í á-
haldaleikfimi hér á landi, og
hefur nú í bígerð bók méð mjög
ítarlegum leiðbeiningum í þess-
ari fþrótt. Þá hefur hann haldið
nákvæma dagbók um menn og
atburði á Seyðisfirði, og er sú
dagbók víðfræg á staðnum.
Allt um ísskápinn
Á s. 1. ári breyttu Neytenda-
samtðkin úrgáfu sinni þannig,
að brot Neytendablaðsins var
stækkað og leiðbeiningabækling
ar þeirra felldir inn í það. Jafn-
framt var blaðinu valinn hinn
vandaðasti pappír. Komu tvö
tölublöð hins nýja blaðs út s.
1. haust, en á þessu ári munu
verða gefin út a. m. k. 6 tbl.
Blaðið er einungis sent meðlim
um samtakanna, en ekki haft til
sölu, og er innifalið í árgjaldi
félagsmanna, sem er kr. 100.00
Nýlega hefur þeim verið send
tbl. 2—3 1963, og er það stærsta
og fjölbreyttasta rit, er samtök-
in hafa gefið út, enda helgað 10
ára afmæli þeirra. í tilefni þess
ritar viðskiptamálaráðherra,
Gylfi Þ. Gíslason, ávarpsorð, og
saga Neytendasamtakanna og að
dragandi að stofnun þeirra er
rakinn í stórum dráttum. Er
það þó aðeins lítill hluti af efni
blaðsins.
Holl ráð
og ódýr.
Undir þessari yfirskrift eru
birtir nokkrir kaflar úr síðustu
leiðbeiningabók Neytendasam-
taka Bandaríkjann— Fjalla þeir
m. a. um tannhreinsun, tann-
krem og staðhæfingar auglýsing
anna, kvefmeðul, svefnlyf, lykt-
eyðandi efni, sápur, svitameðul
-i. fl. Þær leiðbeiningar og upp
lýsingar, sem þar eru gefnar,
eru mönnum vissulega margra
peninga virði, en jafnframt
meira.
Leiðbeiningar
um notkun ísskápa.
1 Neytendablaðinu er einnig
ýtarleg og fróðleg grein um
notkun ísskápa. „Verið hagsýn
og raðið rétt í ísskápinn". heitir
greinin, sem skýringarmynd fylg
ir. Þar er einnig birt tafla, sem
sýnir mesta og venjulegan
geymslutíma auðskemmanlegra
matvæla í heimilisísskáp — t.
d. hámarksgeymshitíma, ef gæði
vörunnar eiga að vera viðun-
andi. Margt f'eira efni er f rit-
inu, m. a. kartöflurannsóknin
síðasta og lokunartímar sölu-
búða.
Nýir meðlimir fá þegar þau
5 tbl. Neytendablaðsins, sem út
hafa komið eftir stækkun blaðs-
ins. Bókaverzlanir Sigfúsar Ey-
mundssonar og ísafoldar taka
— óti nýjum félagsmönnum og
afhenda löðin, en skrifstofa
samtakanna, Austurstræti 14, er
opin daglega kl. 5—7 e.'h. Sími
þeirra er 1 9V 22. Pósthólf 1096.