Vísir - 03.07.1963, Page 16
VISIR
Miðvikudagur 3. júlf 1963.
Færeyskur kór
á Akureyri
Akureyri í morgun.
Færeyskur söngflokkur, 17
nianna blandaður kór, svokallaðar
Söngvitnisflokkur, er væntanlegur
til Akureyrar á morgun.
Á Akureyri heldur kórinn hljóm-
leika í samkomuhúsinu dagana 5—
7. þ. m. Ennfremur verða þar
flutt erindi. Söngstjóri er Ösur
líerghamar en fararstjóri Pétur
Háberg ritstjóri og kaupsýslumað-
ur í Þórshöfn. Tveir einsöngvarar
verða með kórnum.
Smkeppni um Norræna húsii
Eins og. skýrt var frá hér í
blaðinu í gær, hófst fundur
menntamálaráðherra Norður-
landa f gærmorgun. Á þeim
fundi var rætt um Norræna
húsið, og þar var formlega frá
þvf skýrt, að ákveðið hafi verið
að reisa húsið á Háskólalóðinni.
Einnig var skipuð nefnd til und-
irbúnings ,sem efna mun til
arkitektasainkeppni um teikn-
ingu hússins. Skýrt var frá því,
að tryggt hafi verið fé hjá öllum
ríkisstjórnum Norðurlandanna
til byggingar þessa Norræna
húss. Byggingin er þó íslandi að
mestu kostnaðarlaus.
í undirbúningsnefndina voru
tilnefndir:
Framh. á bls. 5.
Arekstur út qt_
NorðíjarSurhomi
Enskur tognri stnkk nf eftir áreksturinn
Sá atburður gerðist í morgun,
10 sjómílur út af Norðfjarðarhomi,
að vélbáturinn Guðbjörg IS 14 og
Grimsbytogarinn Ephesian 604 rák-
ust á í niðaþoku. Árekstur þessi
var mjög harður, en engin meiðsli
urðu á mö'nnum. Borðstokkurinn
bakborðsmegin á Guðbjörgu er rif-
inn af á 3—4 metra kafla, og hlið-
in meira skemmd, svo og stefnið.
En skemmdirnar eru allar ofan sjáv
ar og komst því enginn sjór í skip-
ið. Togarinn fylgdi Guðbjörgu inn
að Dalatanga og þóttist skipstjór-
inn ætla að koma á eftir henni inn
á Seyðisfjörð. Guðbjörg kom til
Seyðisfjarðar um kl. 11 f. h. f dag,
en kl. 12 á hádegi, þegar Vísir hafði
samband við Seyðisfjörð, var tog-
Framh. á bls. 5
Frá fundi menntamálaráðl.erra Norðurlanda í gær.
40 keppendur ú sjú-
stangaveiðimóti
Kvennahópurinn á sjóstangaveiðunum um helgina.
ÞÓRÓLFUR BECKmeð KR
gegn finnsku meisturunum
Hver íþróttaviðburðurinn rek-
ur nú annan.
Hingað kom í gærdag finpska
knattspyrnuliðið Haka frá Vai-
keakoski. Er liðið hingað kom-
ið í boði Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur og mun leika hér
3 leiki.
Liðið kom með lelguflugvél
til Keflavíkur kl. 15.00, en með
í förinni eru konur leikmanna
og um 40 aðrir farþegar, alls
um 75 manns, sem mun dvelja
á Hótel Garði til 9. júlí, að flug-
vélin sækir hópinn til Keflavík-
ur.
Liðið varð sigurvegari f
finnsku deildakeppninni 1960
og 1962 og leiðir nú í 1. deild
eftir 10 leiki. í iandsliðinu sem
Iék gegn Dönum og Norðmönn-
um í siðasta mánuði voru 4
leikmenn frá Haka.
Framh. á bls. 5
Önnur sjóstangaveiðikeppnin milli
Sjóstangaveiðifélags Reykjavíkur
og Sjóstangaveiðifélags varnarliðs-
manna fór fram um s.l. helgi. Róið
var frá Keflavík og voru þátttak-
endur alls fjörutíu, er það nokkuð
meiri þátttaka heldur en f fyrri
keppninni ,enda hefur þátttaka f
sjóstangaveiðum farið ört vaxandi
með ári hverju.
Það sem einkum vakti athygli
við keppnina var að í fyrsta skipti
tók þátt í sjóstangaveiðikeppni
kvennasveit, skipuð fimm hörku-
duglegum konum, sem hlutu í
verðlaun fyrir þátttöku sína fagran
silfurbikar er Bæjarstjórn Kefia-
víkur gaf.
. Tannlæknarnir reyndust ekki
eins harðdrægnir á þessu móti og
undanfarið. — Hákon Jóhannsson,
kaupmaður í Sport bar sigur úr
býtum, dró alls 545 pund úr sjó
báða dagana. Auðunn skipstjóri á
Silfra hlaut skipstjóra-bikarinn í
annað sinn,‘en bikarinn hlýtur sá
skipstjóri sem rær með aflahæstu
sveitina.
Veður var eins og frekast verð-
ur á kosið, blæjalogn og hiti og
óhætt að fullyrða að allir þátttak-
endur höfðu hina beztu skemmtun
af keppninni.
Eftir að keppni lauk héldu varn-
arliðsmennirnir boð inni fyrir þátt-
takendur og voru þar giæsileg
verðlaun veitt, en bæjarstjórinn í
Kefiavík sleit mótinu með stuttri
ræðu.
Myndina hér að ofan tók Loftur
Guðmundsson rithöfundur af hinni
vösku kvennasveit, sem hlaut bik-
ar bæjarstjórnar Keflavíkur.
Er Fnjóskúrbrú
«
in að gefa sig?
Akureyri í morgun.
Bifreiðastjórar á stórum bifreið-
um og þungum sem nýlega hafa
farið yfir Fnjóskárbrú hjá Skógum
telja sig hafa orðið vara við ó-
eðlilega mikinn titring á brúnni
þegar þeir hafa ekið yfir hana.
Hafa sumir þessara bifreiða-
stjóra látið í ljós, að þeir myndu
helzt ekki vilja aka þungum bif-
reiðum yfir brúna vegna þess
arna. Nýlega ók bifreið niður úr
brúargólfinu, en viðgerð hefur far-
ið fram á þvi. Bendir þetta til þess
að brúin þoli ekki þá þungu og
miklu umferð sem nútímaumferða-
tækni krefst, enda valjalaust ekki
reiknað með henni, þegar brúin var
byggð 1908. Hún var byggð að
fyrirsögn dansks manns og er ein
elzta steypta brúin hér á landi.
Það óhapp vildi til þegar verið var
að leggja síðustu hönd á brúna að
flóð kom í Fnjóská og ruddi brúnni
niður í ána, þannig að hefja varð
smíði hennar algerlega á nýjan leik.
Fari svo að þungir bílar hætti
Framh. á bls. 5