Vísir - 30.12.1963, Page 1
VISIR
53. árg. — Mánudagur 30. desember 1963. — 275. tbl.
NÝJU GOSIN VIÐ EYJAR
Hér birtist fyrsta myndin á nýju gosunum við Eyjar, sem eru á sprungu rúma mflu norðaustur af
Surtsey. Myndina tók Sigurður Þórarinsson jarðfræðingur í gær, sjást tveir strókar risa upp af
haffletinum, annar kolsvartur með ösku og sóti, hinn hvítur úr vatnsgufu. Milli þess sem strókamir
rísa upp kraumar í sjónum eins og í potti. Þama hefur þegar myndazt undirstaða að nýrri eyju
og vantar ekki mikið á að gosefnin teygi sig upp úr haffletinum. í grein sem dr. Slgurður Þórarinsson
skrifar í blaðið i dag leggur hann til að nýi gosstaðuriim verði kallaður Surtla.
HY SOSIHAFIHU VIO EYJAR
Fréttamaður Vísis, Þorsteinn Jósefsson flaug í morgun yfir nýja gosstaðinn í sjónum við Vest-
mannaeyjar og bauð dr. Sigurði Þórarinssyni jarðfræðingi með f förina. Þá var hörkugos i Surtsey
og sífelid eldieiftur yfir henni. Surtsey er nú orðin geysihá eða um 160 metrar. Á staðnum þar sem
nýja gosið hófst sá í fyrstu enga breytingu á sjónum, nema að á alistóru svæði var öskugráma í
sjónum sem benti til goss. Enda kom fljótt í ljós meiri ókyrrð þar.og risu bráðiega upp af hafflet-
inum smá strókar, sumir dökkir aðrir Ijósir. Þeir náðu aðeins Iítið upp fyrir yfirborð sjávar, en
þeim fylgdi mikil ólga líkt og syði í potti.
Enn er þarna því aðeins
neðansjávargos og engin eyja
hefur enn komið þar upp. Ekk
ert er þó líklegra en að brátt
örli á heroni, ef gosið heldur
áfram í sjónum.
Dr. Sigurður Þórarinsson sagð
ist telja allar iíkur benda til
þess, að samband væri á milli
gossins í Surtsey og hins nýja
neðansjávargoss og telur hann
að meðan hamfarir eru svo
miklar í Surtsey sé naumast
hægt að búast við miklum krafti
<S>
i nýja gosinu.
í Vestmannaeyjum eru menn
nú mjög uggandi yfir þessu nýja
gosi. Menn voru farnir að vona,
að gosið i nýju eyjunni væri í
rénun, en þá byrjar gos á nýjum
stað. Eyjarbúar eru orðnir afar
þreyttir á vatnsieysinu og sót-
inu sem er afleiðing gossins.
Sótið er á öllum götum og gang
stéttum. Vatn hefur ekki verið
hægt að taka af þökum síðan
gosin hófust. Ef þau halda á-
fram verður ómögulegt að verka
skreið í Eyjum. Sumir eru jafn-
vel svartsýnir á að vertíðarfóik
fáist til að koma til Eyja.
VISIR
Vísir óskar lesendum sínum
[nær og fjær gleðilegs árs og
, þakkar hið liðna. Blaðið kemur
[ekki út á morgun þar sem ekki
' unnið f prentsmiðjunni á
[ gamlársdag. Næsta töiublað
> Vísis kemur út 2. janúar.
WVWS^WWVWWWV'
3 aýir gígir á
einni gossprungu
Skiptiurmur stóð á sér
Sjópróf hófust í morgun vegna
áreksturs Skjaldbreiðar og Akra-
borgar . aðfangadag. Vélstjórar á
Skjaldbreið segja að skiptiarmur,
sem stýrir snúningi vélar hafi stað
ið á sér en vélsími milli vélarrúms
og stjórnpalls starfaði eðliiega.
Skipstjórinn á Skjaldbreið Högni
Jónsson kom fyrstur fyrir réttinn
I morgun. Hann skýrði frá því að
hann hefði hvað eftir annað gefið
fyrirskipanir um vélsímann, ýmist
um hæga eða fulla ferð aftur á
bak og eitt sinn stöðvun vélar,
fengið eðlileg svör úr vélarrúmi en
hins vegar hefði skipið sýnilega
stöðugt aukið ferðina, á leið sinni
inn höfnina. Afleiðingar urðu þær
sem kunnar eru af fréttum að
Skjaldbreið rakst á Akraborg, er
Framhald á bls. b
Grein eftir dr. Sigurð Þórarinsson
Laugardaginn 25. desember
bárust þær fregnir frá Vest-
mannaeyjum að farið mundi
vera að gjósa víðar en í Surts-
s dag
Bls. 3 Myndir frá jólatrés
skemmtun barna.
— 6 Jóianótt við höfn-
ina. Stjörnuspá árs-
ins 1964.
— 7 Leikdómur: Fangam
ir í Altona.
— 8-9 Annáil ársins 1963.
ey. Erfitt var að átta sig á þeim
fregnum, var bæði sagt að gos
væri sunnan við Surtsey, einnig
var talað um ólgu f sjónum miili
Surtseyjar og Geirfuglaskers.
Ráðiegast þótti þó að vara skip
við að halda sig þama nærri og
var svo gert.
Á sunnudagsmorgun tilkynnti
flugvél, sem flaug þarna yfir,
að gufa sæist stíga upp norð-
austur af Surtsey og væri þar
ólga í sjó, sem benti til neðan-
sjávargoss. Klukkan nær 13,30
flaug Sigurður Þórarinsson til
gosstöðvanna í flugvél Fiugmála
stjórnarinnar, sem flugmála-
stjóri stýrði. Björn Pálsson var
þar meðal fleiri i för, en flug-
málastjóri var méðál farþega, er
Björn Pálsson flaug flugvél
sinni, sömu gerðar, f fyrstu flug
Framh. á bls. 5.
Frá sjóprófunum vegna áreksturs Akraborgar og Skjaldbreiðar. Á myndinni eru (t.v.) Jón Sigurðsson
skipstjóri, meðdómandi, Kristján Jónsson, borgardómari, forseti dómsins, bak við hann situr Hallgrfmur
Jónsson, vélstjóri. Sveinbjöm Halfiðason, stud jur. er dómsritari. Fyrir framan dómsforseta er Högni Jóns-
son skipstjóri á Skjaidbreið. Ingólfur Jónsson, lögfræðingur skipaútgerðar rikisins, situr til hliðar við
hann. (Ljósm. Visis I.M.)