Vísir - 30.12.1963, Qupperneq 3
V í SIR . Mánudagur 30. desember 1963.
„Göngum við í kringum eini-
berjarunn, einiberjarunn, eini-
berjarunn“. Ómurinn barst á
móti okkur er við nálguðumst
Laufásborg s. 1. föstudag. Þar
var heldur en ekki glatt á hjalla,
því að tæplega eitt hundrað
börn á aldrinum eins til fimm
ára voru þar saman komin á
jólatrésskemmtun. Dagheimilið
Laufásborg var fagurlega
skreytt og í tveim stofum stóðu
skrautlýst jólatré.
Þegar okkur bar að garði var
jólasveinninn nýfarinn og þurfti
heldur betur að segja okkur frá
honum. „Það kom jólasveinn“,
sagði ein litii hnáta og brátt
tóku fleiri undir þangað til all-
ir sögðu í kór: „Það kom jóla-
sveinn það kom jólasveinn“.
„Gjörið svo vel að koma og
drekka“ — og allir þustu inn
í borðstofurnar, þar sem lang-
borðum hafði verið komið fyrir
og á þau bomar skreyttar rjóma
tertur og fagurlega útskornar
piparkökur. Með þessu var
Þessi ungi herra var dálítið
óheppinn og í stað þess að fara
upp í litia munninn, fór rjóma-
tertan á fínu skyrtuna hans. En
ein fóstran brá skjótt við og
kom tii hjálpar.
Hún var ósköp ung, og þegar lítið bar á, laumaðist hún til að skoða
Ieyndardóma jólatrésins — sem annars mátti ekki snerta.
drukkinn ávaxtasafi.
„Mfn piparkaka er líka eins
og jólatré“ — „og mín er eins
og bra, bra“ — „og mín éins og
stelpa“ — „og mín er“ — „og
mín er“. . . aiiir þurftu að sýna
hvernig piparkökur þeir hefðu
fengið.
Þegar allir höfðu fengið eins
og þá Iysti var aftur farið að
leika á orgel og ganga i kring-
um jólatréð — og er vlð gengum
út barst okkur til eyma ómur-
inn af „Adam átti syni sjö“.
Kökurnar voru gómsætar og brögðuðust vel og hér situr ungfrú Halla og hefur hvorki meira né minna
en tvo borðsherra, þá Kára og öm.
Göngum við í kringum...
km