Vísir - 30.12.1963, Side 4
4
Kl
V1 S IR . Mánudagur 30. desember 196Í
HEIMILISTRYGGING
ER ÖRYGGI HEIMILISINS
s
tt
Jólahátíðin fer í hönd
Farið varlega með óbyrgð ljós.
Setjið ekki kertaljós í glugga eða
aðra staði, þar sem kviknað getur
í gluggatjöldum eða fötum.
Algengustu orsakir eldsvoða
eru íkviknanir í kyndiklefum,
óvarkárni með ýmiss konar
rafmagnstæki og lélegar
raflagnir.
Umboðsmenn um land allt.
rr
CR
o
' ö:
r
&9
c
CTQ
&s
o
CfQ
'Oerndið heiiniliyðar....
MEÐ HAGKVÆMUM TRYGGINGUM
BRUNABÓTAFÉLAG ÍSLANDS
16 nim filmuleiga ;
Kvikmyndavélaviðgerðir
Skuggamyndavélar
Flcstar gerðir sýningarlampa
Odýr sýningartjöld
Filmulím og fl.
Ljósmyndavörur
Filmur
Framköllun og kópering
Ferðatæki (Transistor)
FILMUR OG VÉLAR
Freyjugötu 15
Sími 20235
Vtnptskabe
Dokumentskabt■
Boksanlag
Boksdtre
Gardtrobtskabt
PALL OLAFSSON & CO.
Sveinn Þorláksson
símstjóri, Vík í Mýrdal
Austur í Vík, litla þorpinu við
sendnu brimströndina undir háu
grasbrekkunum, fer fram jarðarför
í dag. Allir Víkurbúar, sem því
mega við koma, munu safnast sam-
an á kveðjustund f fallegu kirkj-
unni sinni uppi í klettinum fyrir
austan þorpið til að þakka einum
elzta samborgara sínum fyrir langa
samveru og heillarfkt starf. Það er
Sveinn Þorláksson fyrrum símstöðv
arstjóri. Hann lézt að heimili sínu
f Vik 22. þ. m. 91 árs að aldri.
Það er oft svo til orða tekið,
að sá, sem um er rætt, hafi „sett
svip á bæinn".
Mér finnst ekki hægt að komast
hjá þvi um Svein Þorláksson og
þorpið hans. Það er svo bókstaf-
lega satt. Þetta tvennt: Vfkurþorp
Og sfmstjórinn þar er alveg óað-
skiljanlegt f huga mínum frá því
ég kynntist honum fyrst, og Vfkin
■"erður önnur en hún var, nú eftir
að hann er horfinn þaðan.
Sveinn náði svo háum aldri, en
Vfk, er svo ungt þorp, að það fór
fyrst að vaxa eftir að hann var
búinn a$ stofna þar heimili sitt og
tekinn til við iðn sína — skósmíð-
ina. En brátt hlaut hann annað
starf, embætti, sem hann var kunn-
ur fyrir að rækja af mikilli prýði,
kunnur ekki aðeins í sínu byggð-
arlagi heldur langtum yfðar — um
allt Suðurland. Árið 1914 var sím-
inn lagður til Víkur. Tók Sveinn þá
strax við vörzlu hans og hafði hana
á hendi fram yfir sjötugt. Það starf
rækti hann með miklum ágætum.
Þar var ekki verið að hugsa um
vinnutíma , eða launaflokk, heídur
hitt, hvecnig hægt væri að láta sím-
ann .koma öllum að sem fyllstum
notum, hversu mikið sem .símstjór-
inn og hans fólk þurfti á sig að
leggja. Helga dóttir Sveins tók við
stöðvarstjórninni af honum. Hefur
hún dyggilega fetað f fótspor föður
sfns og stundað starfið, ásamt Guð-
nýju dóttur sinni af mikilli árvekni
og sýnt öllum símnotendum sér-
staka greiðvikni og Iipurð.
Eftirlifandi ekkja Sveins er Ey-
rún Guðmundsdóttir frá Ytri-Dalbæ
f Landbroti. Þau eignuðust 15 börn
og eru 11 þeirra á lífi: Anna verk-
smst. í Reykjavík, Guðný hjúkrun-
arkona f Kópavogi, Helga, sfmst.-
stj. Vík, Sigrfður húsfr. Rvfk, Þor-
björg húsfr. Vík, Guðmundur full-
trúi Rvík, Kjartan símaverkstj.
Rvfk, Ólafur Ioftskm. Rvík, Páll
starfsm. Rvíkurborgar, Sigurður
bóndi, Hrauni í Landbroti/Þorlák-
ur bóndi, Sandhól, ölfusi. öll eru
þessi mörgu systkin dugnaðar- og
greiðafólk, sem koma sér hvarvetna
vel.
Sveinn Þorláksson náði háum
aldri og hann hélt sálarkröftum
sínum óskertum til hinztu stund-
ar. Það var honum mikil gæfa, sem
hann óskaði að fá að njóta — að
þurfa ekki að leggjast á kararbeð.
Dag hvern var hann að hitta á
stöðinni, þar sem hann sat við
skriftir og reikninga. Þangað var
gaman að koma og skrafa um liðna
tímann við þennan öldung, sem
hafði lifað tíma tveggja kynslóða,
séð þorpið sitt blómgast og vaxa,
séð fólkið hefja sig úr örbirgð til
bjargálna og þjóðina skapa full-
valda menningarrfki úr danskri hjá
lendu. Sjálfur lagði hann fram sinn
skerf til þpss ríkis. Það gerði hann
með sparsémi sinni, trúmennsku,
ósérhlífni í starfi og grandvarleik.
1 nafni fjölmargra vina og sam-
herja tjái ég þessum látna sæmd-
armanni þakkir fyrir lífsstarf hans,
um leið og ég votta ekkju hans og
börnum samúð mína í söknuði
þeirra nú þegar hann er horfinn.
G. Br.
Járnsmíði — rennismíði
Getum bætt viB okKur verkefnum í jámsmíSi og
rennismíSi SmfSum einnig handriS á stiga og svalir.
JÁRNIÐJAN s.f. MiSbraut 9. Seltjamaruesi
Simar 20831 - 24858 - 37957.
Úra- Og
skartgripaverzlun
Skólavörðustíg 21
(við Klapparstíg).
Gull — Silfur — Kristall — Keramik — Stálborð-
búnaður - Jólatrésskraut — Úr og klukkur
JÓN DALMANNSSON, gullsmiður
SIGURÐUR TÓMASSON, úrsmiður
íbúðalán
Húsnæðismálastjórn ítrekar eftirfarandi
auglýsingu sína varðandi iánshæfni um-
sókna um íbúðalán:
1. Frá 1. janúar 1964 verða allar umsóknir
um íbúðalán að hafa hlotið saniþykki
húsnæðismálastofnunarinnar, áður en
framkvæmdir við byggingu hússins eru
hafnar og afrit af teikningu (í tvíriti)
þess, samþykkt af viðkomandi bygging-
aryfirvöldum, að hafa áður verið viður-
kennt með stimpli og uppáskrift stofn-
unarinnar.
2. Þeir umsækjendur uni lán, er hafa í
hyggju að kaupa íbúðir í húsum, sem eru
í smíðum, verða á sama hátt að tryggja
sér samþykki húsnæðismálastofunarinn-
ar áður en gengið er frá kaupunum.