Vísir - 30.12.1963, Síða 9
VlSIR
tmamam
Mánudagur 30. desember 19631
hreyfla vél, sem ungir áhuga-
samir menn höfðu keypt I Ame
riku fórst á ieiðinni yfir hafið
og tveir fórust Flugvélin Sól-
faxi brann I flugskýii I Græn-
landi.
Brunar hafa verið venju frem
ur fáir, mestir þeirra ísaga-brun
inn og bruninn að Laugavegi
11, þar sem myndasafn Kaldals
eyðilagðist. Mannskaðabruni
varð í Múlakampi.
Af þessum atriðum, sem stikl
að hefur verið á má sjá, að árið
1963 hefur verið eitt mesta slysa
ár, sem yfir okkur hefur komið
og ætti það að vera aðvörun til
allra að gæta meiri varúðar.
*
>f
skorti á iðnaðarmönnum, svo að
allar byggingar hafa dregizt á
langinn.
*
'C’n árið hefur einnig einkennzt
af hjálparstarfsemi. Björn
Pálsson fékk hingað til lands
sína nýju flugvél Lóu, sem gerði
honum jafnvel kleift að fara (
sjúkraflug til Færeyja og Skot-
lands. Segja má, að hann hafi
stöðugt verið á ferðinni í sjúkra
flugi. Þyrilvængjur Varnarliðs-
ins hafa einnig oft hjálpað eins
og þegar þær sóttu sjúkan mann
að Hrafnabjörgum í Arnarfirði
við hættulegustu skilyrði. Á
þessu ári eignaðist skátasveitin
í Hafnarfirði sporhund sinn
Nonna og liggur að baki því
fórnfúst starf. En Nonni hefur
ekki reynzt eins vel og menn
vonuðu. En það er mikið starf,
sem liggur f þeim fjölmörgu leit
um að týndu fólki sem fram
hafa farið á árinu. Víðtækasta
leitin var að gömlu hestakon-
unni Sigríði Jónu. Hún var
spurð hvort hún vissi, hvað leit
in að henni hefði kostað. Það
hafði hún ekki hugsað út (.
Það var líka leitað að rjúpna-
skyttum og sjómanni á trillubát
inni ( Sundum. Vélbáturinn Ell-
iði fannst f Elliðaey. Og frönsk
sýningarstúlka á háum hælum I
nælonsokkum var villt f þoku á
Mývatnsöræfum.
Á þessu ári var hið glæsilega
Hótel Saga opnað, byrjað
var að byggja turn Hallgrlms-
kirkju, Skálholtskirkja var vígð
og staðurinn afhentur kirkjunni.
Bankamir hafa verið að færa út
kvfamar, þrjú bankaútibú voru
opnuð í Keflavfk, Tónlistarskól-
inn flutti f nýtt hús, Austurvöll
ur var endurnýjaður, Sakadóm-
ur flutti f nýtt hús, Valhöll á
Þingvöllum var endurbætt, bætt
var úr sfmaskorti f Reykjavfk og
nágrenni og sjálfvirkar sfmstöðv
ar settar upp f ýmsum kaup-
stöðum, en stefnt að þvf að allt
símakerfi landsins verði sjálf-
virkt, ný ungfrú klukka tók til
starfa, hvolfþakið á fþróttahöll-
inni var loksins steypt og var
búið að bíða eftir góðu veðri f
heilt ár. En þegar loksins var
farið að steypa það skall yfir
Á rið 1963 var ár mikilla verk-
falla. Til dæmis má geta
þess að dagblöðin f Reykjavfk
stöðvuðust þrisvar sinnum, sam
tals f 40 daga og veldur slfkt
blöðunum miklum erfiðleikum,
fyrst var það blaðamannaverk-
fallið, sfðan tvisvar sinnum
verkfall prentara.
Hinn merki kjaradómur var
kveðinn upp á þessu ári, þar
sem laun opinberra starfsmanna
voru lagfærð og skipað meira
en áður eftir menntun. En aðrar
stéttir gerðu Ifka kröfur, bænd
ur kröfðust 40% hækkunar og í
allsherjarverkfallinu f vetur
voru gerðar kröfur allt upp í
45%. Verkfræðingar áttu þó met
ið í kröfugerð og varð að beizla
þá með sérstökum bráðabirgða
lögum. Undirrót þessara krafna
var e. t. v. sfldarvertíðin í fyrra
sumar, þegar tekjur sjómanna
ruku upp úr öllu valdi og fylltu
aðrar stéttir öfund. En nú f sum
ar brást sfldveiðin að miklu
leyti, svo að óframkvæmanlegt
var að ganga að svo háum kröf
um nema skaða efnahagslíf þjóð
arinnar og þvf skall saman í
verkföll. Fyrir síðasta verkfallið
hamstraði fólk nauðsynjavarn-
ingi, húsmæður keyptu 40 mjólk
urhyrnur og skortur varð á
smjörlfki í jólabaksturinn.
Þrátt fyrir þessa verkfallsóár
án hafa framkvæmdir og fram
farir verið gífurlegar. Að vísu
er húsnæðisskortur f Reykjavík.
en hann stafar af feikilegum
40 falskar ávísanir á veitinga-
húsi eftir eina nótt.
fárviðri. Nýi Landakotsspítalinn
tók til starfa og hluti nýju
Landsspítalaálmunnar. Horn-
steinn var lagður að lögreglu-
stöð, risareykháfur reis f Laugar
nesi. Otvegsbankinn og Silli og
Valdi hófu stórfelldar byggingar
framkvæmdir í Austurstræti.
Þýðingarmestu framkvæmdim
ar eru þó e. t. v. lagning full-
kominna vega og malbikaðra
gatna, en þessar framkvæmdir
hafa mikil og bein áhrif á vellíð
an þjóðarinnar, að þurfa ekki
stöðugt að aka um forugar og
holóttar götur. Keflavíkurvegin-
um fleygði áfram. Unnið var við
veg um Ólafsvfkurenni, um
Stráka og í Ólafsfjarðarmúla, ný
vegalög samþykkt, stórkostleg
malbikunarstöð f Reykjavík tók
-rr>
Ný ungrfú klukka.
til starfa og tók þá litinn tíma
að malbika Melana, Nóatúnið
Hlíðarnar og Laugarásveginn.
>f
TTm fyrri áramót voru 50 stór
fiskiskip í smfðum fyrir okk
ur erlendis og komu þau heim
sem óðast fram eftir árinu.
Frægast var að sá mikli afla-
kóngur Eggert Gíslason sigldi
heim sfnum Sigurpáli og hélt
tign sinni glæsilega þó skipt
væri um skip og nafn. Eimskipa
félagið eignaðist Mánafoss og
Bakkafoss og samdi um smfði á
tveimur flutningaskipum til við-
bótar, nýr Jökull kom tíl lands
ins og Hafskip og Kaupskip eign
uðust hvort sltt nýja skip. Það
var að vísu áfall, að Gullfoss
brann úti 1 Kaupmannahöfn, þeg
ar kviknaðl f 60 tonnum af oliu
undir honum, en viðgerð tók ó-
trúlega skamman tfma. Áður en
það óhapp henti varð Gullfoss
frægur af því að sigla um Isa
á Eyrarsundi.
Ýmsar nýjungar voru á seyði
f útveginum. Frystitæki voru
sett í Narfa og sjómenn tóku að
veiða þorsk í nót f stórum stfl
og komust þannig upp f 50 tonn
yfir daginn. Þó flestar aðrar
veiðar gengu verr en áður varð
humaraflinn þrefalt meiri en ár-
ið áður.
>f
>f
TJTeyskapur gekk illa viðast um
land vegna veðurfarsins. Þ6
gerðist sá atburður núna i
fyrsta sinn, að íslenzkt hvefti
var malað og bakaðar úr því
hveitikökur og íslenzkt bygg var
sent til Skotlands og átti að
brugga úr því Johnnie Walker
viskf. En á sama tfma gerðust
þau undur að Islendingar fóru
að flytja inn óáfengt vfn f stór
um stfl og hafði slfkt ekki áður
gerzt.
>f
Arið 1963 var mikið kosninga-
ár og pólitfskt ár. Fyrst
voru það Aiþingiskosningar og
sfðan prestkosningamar miklu í
Raykjavfk og hitl f báðum. Upp
komst um alvarlegt njósnamál
Rðssa og voru þeir teluiir glðð-
volgir upp við Hafravatn. Þá
T andhelgisgæzlan hafði f
mörgu að snúast. Hún elti
nú uppi togveiðibáta og krækti
f yfir þrjátfu. Sama varðskipið
tók þrjá brezka landhelgisbrjóta
f einum rykk við Vestfirðt. Þá
mældi hún út stöðu togara úr
landi og kom að óvörum að fs-
lenzkum togara innan landhelgi,
sem hafði um leið orðið fyrir
þvf óhappi að innbyrða tundur-
dufl. Brezkur togari var eltur f
heilan sólarhring frá Dýrafirði
og austur á Húnaflóa. Frægast
ur og mestur varð þó éltinga-
Ieikurinn við togarann Milwood,
sem lyktaði með næstum full-
um sigri íslendinga, að‘þvf und
anskyldu, að þrjóturinn John
Smith varð aldrei dreginn fyrir
rétt. En lengi mátti Milwood
ryðfalla í Reykjavfkurhöfn. Síð-
an kom Anderson og slæddi
tundurdufl og forsetinn drakk te
með Elísabetu drottningu og
Brefar og,tíslendingar eru aft
ur vinir.
>f
Á liðnu ári gengu 40 þúsund
íslendingar undir próf í ein
hverri mynd, milli 30 og 40 þús-
und tóku þátt í verkföllum. Bíla
leigur, tízkuskólar og gufuböð
spruttu upp eins og gorkúlur. í
matargerð ruddu kjúklingar sér
til rúms. Camembert ostur og
skorpulaus ostur ruddu sér til
rúms. Guðrún Bjarnadóttir
sigraði á Langasandi og Thelma
Á þessu liðna ári var mikið
keypt af nýjum flugvélum.
Björn Pálsson fékk sfna Lóu
heim og Tryggvi Helgason lét
sig ekki muna um það en keypti
fjórar tfu sæta flugvélar á elnu
bretti í Bandarikjunum. Flug-
félagið keypti tvær flugvélar.
Flugið er okkur ákaflega ofar
lega f huga, sem sést af því
að íslenzkur hugvitsmaður gerði
drög að nýrri flugvélartegund
og ungur piltur í Vestmannaeyj
um vann að smfði þyrilVængju.
Færeyjaflugið stóð yfir sumar
mánuðina. Við höfum einnig
fylgzt vel með baráttu Loftleiða
við stórveldið SAS og gleðilegt
að íslenzka félagið hefur staðið
af sér öll ólög.
Seinni hluta árs komu upp
deilur milli fslen^ku flugfélag-
anna þegar Loftleiðir óskuðu eft
ir lækkun á fargjaldinu til Lux
emborgar og var þá farið að
ræða um sameiningu flugfélag-
anna, óvfst í hve mikilli alvöni
bað var. Pan American hóf þotu
ferðir um ísland.
Stærstu þjófnaðir f sakamála-
sögu landslns.
f Helsingfors. Kvikmyndaleik-
konan Maj Zetterling bjó lang-
tfmum á Hótel Sögu. Það var
áhugi fyrir kvikmyndatöku. Hita
veitukvikmynd var gerð, gull-
grafarakvikmynd á Mývatnsör-
æfum var undirbúin en fór út
um þúfur og ný kvikmynd um
vandamál æskunnar var frum-
sýnd.
Tiltölulega fáir víðfrægir er-
Iendir gestir hafa heimsótt land-
ið á þessu ári. Luns utanríkis-
ráðherra Hollands og Lenz vís-
indaráðherra Þjóðverja. En sjálf
ur Johnson þáverandi varafor-
seti Bandaríkjanna kom hingað
um haustið og vann það frægð-
arverk að slá vopn úr höndum
öfgahóps sem mótmælti komu
hans. Hann sva' aldrei f sfnu
fræga rúmi. Tengdasonur ls-
lands Askenasy kom og heillaði
fólk með snilld sinni. Hafði hann
þá getið sér frægð fyrir að flýja
land. Seinna um árið eignuðust
þau hjónin telpu og voru ham
ingjusöm í útlegðinni. Rafmagns
tónlist ruddi sér til rúms og var
talað um hana sem útflutnings
vöru. Listasafn rfkisins hlaut
milljónaarf og Bjarnveig gaf Ár-
nessýslu 41 málverk. Á meðan
sátu listamenn í hriplekum og
köldum sýningarskála sínum við
hliðina á Alþingishúsinu.
>f
sagði Einar Olgeirsson: — Þarna
lágu Rússar í þvf. Sfðar urðu
kommúnistar fyrir miklu áfalli,
þegar gamall vinur þeirra Lax-
ness sagði þeim sannleikann f
Skáldatfma. Þá hófust upp heift-
arlegar deilur í kommúnista-
flokknum um það hvort leggja
ætti flokkinn niður og taka á sig
nýtt gervi. Deilt var á þingi um
28 nýja olíugeyma f Hvalfirði.
Höfundar njósnaskýrslna kröfð-
ust höfundalauna.
T eðurskjaldbaka veiddist norð-
^ ur á Ströndum, dr. Finnur
merkti rjúpur í Hrísey og Skot-
ar merktu álftir á Tvidægru.
En mesta náttúruundrið var auð
vitað uppkoma nýrrar eyjar við
eldgos hjá Vestmannaeyjum. En
ömurlegt var það, að Islendingar
skyldu ekki einu sinni bera gæfu
til að vera sammála um nafn á
þennan landauka sinn. Og
franskir blaðamenn léku á Iand-
ann, þegar þeir reistu trfkolor-
inn yfir eyjunni.
*
Á nð sem er að líða var mikið
og óvenjulegt afbrotaár og
veldur það öllum góðum mönn-
um áhyggjum, hvernig afbrota-
aldan hækkar stöðugt svo að við
erum að verða engu betri en
stórþjóðirnar. Það var ljót að-
koma f Þjórsárdal um hvíta-
sunnuna. Ennþá alvarlegri eru
þó lfkamsárásirnar og nauðgan
irnar, sem fara nú stöðugt vax-
andi. Piltar ráðast að gomlum
konum og ræna þær veskjum
sínum. Hópur skólapilta ræðst
að skólasystur í Hljómskála-
garðinum og ætla ið nauðga
henni. Á þessu ári voru framd-
ir mestu innbrotsþjófnaðir I
sakamálasögu okkar, úraþjófn-
aðimir hjá Jóhannesi Norðfjörð
og Jóni Sigmundssyni, þar sem
verðmætið skipti hundmðum
þúsunda króna. En íslenzka rann
sóknarlögreglan sýndi slíka af-
burða færni við að leysa þessar
gátur að Scotland Yard má fara
að vara sig. Þá er ávfsanafals
orðið tíður glæpur. Eitt veitinga
hús kærði 40 falskar ávísanir
eftir eina nótt og kunnur veit-
ingamaður var gripinn fyrir stór
fellda ávísanafölsun og verzlun
armaður var handtekinn fyrir að
selja erlendum banka 650 þús-
und fslenzkar krónur.
>f
höfum misst ýmsa merka
menn úr hópnum þetta ár.
Fáeina skal nefna: Eggert Stef-
ánsson söngvara, Einar Ás- f"
mundsson fyrrum ritstjóra, Val- |||
tý Stefánsson ritstjóra, Indriða *
Waage leikara, Sigurð Sigurðs- f
son sýslumann, Þuru í Garði ■
kvæðakonu, Vilhjálm frá Ská- f
holti, GÚnnlaug Blöndal listmál- f
ara, Benedikt Bjarklind stór-
templar, Bjöm Þórðarson fyrr- If :
um forsætisráðherra, frú Guð- |
rúnu Pétursdóttur og ísak Jóns-
son skólastjóra.
En alltaf ’-emur maður f f
manns stað. Norður á Akureyri
fæddust meira að segja þrfburar. }
Jjannig hverfum við inn f nýtt |-;
ár reynslunni ríkari og von- ,s'
um að nýja árið verði viðburð- f
arikt eins og það sem er að * j
lfða, en mættum við aðeins - ;
biðja um færri slys en á slysa-
árinu 1963. i