Vísir - 31.01.1964, Blaðsíða 3
VÍSIR . Föstudagur 31. janúar 1964. JJ
Bakað i IÐNSKOLANUM
Klukkan eitt sl. miðvikudag
mættu fyrstu bakaranemarnir í
verklega kennslu í bakaraiðn í
Iðnskólanum. Myndarlegu bakaríi
hefur verið komið upp á efstu
hæð skólans og ekki er hægt að
segja annað, en það marki tíma-
mót í bakaraiðninni. Verkleg
kennsla í iðnskóla fyrir bakara-
lærlinga er gamalt baráttumál
bakara.
Nú á seinni árum, þegar flest
bakarí hafa vélar næstum til alls,
hefur skiljanlega skapazt mikil
einhæfing. Áhugi virðist nú vera
að vakna hjá unglingum á bak-
araiðninni og um þessar mundir
stunda fjórir unglingar nám i
bakaraiðn í Iðnskólanum, þar af
eln stúlka. Skólabakaríið er hið
vistlegasta i alla staði og vel bú
ið að tækjum. Þar geta 6 lærling
ar stundað verklegt nám f einu,
en mun fleiri geta notið þar sýni
kennslu.
Myndirnar í Myndsjánni f dag
tók B. G., ljósmyndari Vísis, í
Iðnskólanum fyrsta daginn sem
verkleg kennsla f bakaraiðn fór
þar fram.
Á efstu myndinni er Gísli Ól-
afsson bakarameistari með þrem-
ur af nemendum sínum í bakarí-
inu. Á tveggja dálka myndinni
neðst til hægri er Bjarni Egils-
son að hræra deig.
Á þriggja dálka myndinni sést
Evert Evertsson með hlaðna plötu
af vinarbrauðum. Myndin fyrir
ofan er af Sigurbimi Sigurbjarts-
syni, og er hann að taka eina
plötuna úr ofninum.