Vísir - 31.01.1964, Síða 5
V'I SIR . Föstudagur 31. janúar 1964.
, . ' ; . ... o
útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun útlönd í morgun
► De Gaulle hefir fund með
fréttamönnum í dag og gerir
þeim grein fyrir ákvörðuninni
um að viðurkenna kommún-
istastjórnina kínversku.
^ Mikil fundahöld eru f Lon-
don í dag til þess að ræða
tillögur Breta um að senda
gæzlulið frá Nato til Kýpur.
► íbúar Ajaccio gengu fylktu
liði um göturnar í gær og
mótmæltu banni frönsku
heilbrigðisstjórnarinnar á
notkun hvítblæði-serums
þess, sem Naessens liffræð-
ingur fann upp. Mikið um-
ferðaröngþveiti varð er mest
gekká.
i , \ . * þ 'v i. j j^ í,
#■,/»,' V- \ ■1 v’ : , ’ .
Slítur S- Víetnam stjámmálu■
sambandi við Frakklund?
Khanh hershöfðingi tók völd-
in f gær í Saigon og var út-
varpað tilkynningu, um að
Suður-Vietnam myndi slíta
stjórnmálasambandi við Frakk-
land.
Nguyen Khanh hershöfðingi
tók völdin í gær f Suður-
Vietnam eftir að gerð hafði
verið misheppnuð byltingartil-
raun, sem var „sviðsett" til þess
að koma £ veg fyrir samsæri
----------------------------------=S>
RAN6CR VIÁ LCID
TIL TUN6LSINS
Tungflaugin Ranger VI, sem
Bandaríkjamenn skutu á loft í
gær frá tilraunastöðinni á Kenne
dyhöfða, var í morgun um klukk
an hálf átta komin 161,000 km.
frá jörðu, og stóð þá til að
$> Forvextir voru hækkaðir í gær
í Sviþjóð um y2% í 4.5 af
hundraði.
Chou-En-lai kínverski forsætis-
ráðherrann kom til Asmara í
Eþíópíu f gær í opinbera heim-
sókn. Þangað kom hann frá
Khartoum f Sudan.
^ Farið hefir verið fram á nýja
frestun réttarhalda í máli sænska
njósnarans Stig Wennerström.
Saksóknari segir að ekki hafi
reynzt nægur tími til undirbún-
ings og fór hann fram á frest
til febrúarloka.
breyta stefnunni með merkjum,
svo að hún kæmist á rétta braut
til tunglsins, en það skakkaði
um næstum 1000 kílómetrum að
hún væri á réttri braut. Mun
verða ljóst í kvöld hvort þetta
hefir tekizt.
Ranger VI er 20 metra há og
vegur 400 kg. Hún er búin fjöl-
mörgum myndatöku- og sendi-
tækjum, og gangi allt vel gætu
borizt frá henni allt að 6000
myndir, með mikilvægustu upp
lýsingum.
Ætlunin er, að tunglflaugin
lendi á tunglinu á sunnudags-
morgun kl. 8—10. Yrði hún þá
um 66 klukkustundir á leiðinni.
Rússar skutu á Ioft tveimur
gervihnöttum í gær, Elektrón I.
og Elektrón II. til öflunar vís-
indalegra upplýsinga.
um að stofna til hlutlausrar
stjórnar. Hershöfðinginn hefir
Iagt fyrir sendiherra Bandaríkj-
anna skjöl, sem eiga að sanna
áform um að taka völdin og fá
þau í hendur hlutlausri stjórn,
en þeir, sem að þessu hafi stað-
ið hafi notið stuðnings Frakkl.
og þeirra, sem í fyrra voru við-
riðnir áform um að koma é
hlutlausri stjórn, — hér væru
að verki menn, sem reyndu að
ota sínum tota í eiginhagsmuna
skyni, og myndu ekki víla fyrir
sér að ofurselja landið komm-
únistum.
Þrátt fyrir, að herlið tæki allt
í sínar hendur í birtingu i gær
og handteknir væru ráðherrar
úr hershöfðingjastjórninni var
ailt kyrrt fram eftir degi í gær
í borginni, og það var ekki fyrr
en á daginn leið, að menn átt-
uðu sig á hvað hafði gerzt.
Khanh hershöfðingi lét til
skarar skrlða eftir margra
klukkustunda árangurslausar
samkomulagsumleitanir við for-
mann hershöfðingjastjórnarinn-
ar, Duongh van Minh hershöfð-
ingja, en hann neitaði kröfu um
að fjórir hershöfðingjar úr
stjórninni yrðu settir af. Þeir
voru síðar handteknir og flutt-
ir til bæjar 600 km. fyrir norðan
Saigon.
Gagnkvæm viðurkenning.
Önnur og þriðja umræða um
frv. ríkisstjórnarinnar fóru fram
í efri deild í gær.
Fundur hófst
með því, að
framsögumaður
meirihl. fjárhags
nefndar Ólafur
Björnsson (S)
flutti álit meiri-
hl. Sagði hann
m. a. Það virðist
öllum nauðsynlegt, einnig stjórn-
arandstöðunni, að hjálpa þurfi út-
flutningsframleiðslunni. Ep hins-
vegar greinir menn á um leiðir.
Stjórnarandstaðan telur ekki þörf
á neinni tekjuöflun. Heldur mæta
auknum útgjöldum með greiðslu
afgangi s. 1. ár. Það er að vísu
rétt, að hækkun söluskatts hækk
ar vlsitöluna. En þetta verður ekki
leyst með fé úr jöfnunarsjóði.
LÆKKUN VAXTA.
Framsókn hefur haft í frammi
mikinn áróður í samb. við lækkun
vaxta. En þess ber að geta, að
þetta mun hafa sáralítil áhrif
vegna þess að vextir af rekstrar
lánum til framleiðslunnar eru lág-
ir. Óbein lækkun þeirra mundi
þýða aukna dýrtíð vegna þess að
fólk yrði sízt fúsara að spara og
eftirspurnin eftir lánsfé mundi
aukast og þar af leiðandi lánsfjár
skorturinn, sem þegar er orðinn
mikill.
Framsókn hefur ekki alltaf ver-
ið þessarar skoðunar a. m. k. ekki,
þegar hún hefur verið í stjórn.
Nýsköpunarstjórnin hélt vöxtun-
um lágum, en strax og Framsókn
komst í stjórn 1947 hækkaði hún
vextina og aftur 1952. En nú er
allt annað upp á teningnum. __
VANDINN, SEM
SKAPAZT HEFUR
Það er í fyrsta lagi, að kaup-
gjald hefur hækkað um 30%.
Þetta hlýtur að valda röskun. Ó-
hugsandi er að þjóðartekjur geti
hækkað svo mikið. Helgi Bergs
(F) hefur sagt hér á þingi, að eðli-
legast væri að þær hækkuðu um
6%. Ég get vel verið honum sam-
mála um að hún geti ekki verið
meiri.
Slík kauphækkun sem þessi
bitnar mest á útflutningframleiðsl
unni því hún á ekki kost á sömu
hækkun og hin innlenda.
AFNÁM UPPBÓTA-
OG HAFTAKERFISINS
Staðreyndin er sú, að þetta kerfi
hefur aldrei verið afnumið með
öllu t.d. hafa alltaf verið greiddar
uppbætur á útfluttar Iandbúnaðar
afurðir. Og aldrei hefur þótt fært
að afnema alveg innflutningshöft
vegna jafnvirðislandanna, ekki
vegna gjaldeyrisskorts heldur verð
ur að takmarka- innflutning frá
þessum Iöndum. Og rétt gengis-
skráning tryggir ekki að fullu að
útflutningurinn geti staðið án alls
stuðnings.
GALLAR ÞESSA
KERFIS.
1) Þetta kerfi getur aldrei geng
ið til frambúðar. Uppbætur eru
ekkert annað en fleiri gengi á fsl.
kr. til útflytjenda. Og tilhneiging-
in er sú að þau verða sífellt fleiri.
í árslok ’59 voru þau milli 40 og
50. Vinstri stjórnin sló Franco á
Spáni út í þessu tilliti.
2) Með uppbótarkerfinu eru opn
uð ný fiskimið fyrir þá sem þeirra
eiga að njóta. Þá sé um að gera
fyrir þá, að komast að sem bezt-
um samningum við viðkomandi
stjórnarvöld um sem mestar upp-
bætur.
3) Uppbótarkerfið stöðvar alla
framfaraviðleitni er frá líður.
Stjórnarvöldin hafa tilhneigingu
til að hafa þær sem minnstar, og
eru þess vegna metnar hverju
sinni. En ef hagur einhverrar fram
leiðslu batnar, þá minnka uppbæt
urnar að sjálfsögðu. Virðist þvf
vera lítil ástæða fyrir fyrirtækið
að bæta hann.
Og að lokum. Þetta frv. er að-
eins til bráðabirgða. En ekki er
þar með sagt að ekki verði leitað
nýrra leiða sem verði til fram-
búðar. Á eftir ræðu Ólafs tóku til
máls þeir Helgi Bergs (F) fram-
sögumaður minnihl. og þá Gils
Guðmundsson (Ab).
Jón Þorsteinsson (A) hvatti rík-
isstjórnina til að gera róttækar
ráðstafanir og það sem skjótast.
Forsætisráðherra, Bjarni Bene-
diktsson, þakkaði mönnum mál-
efnalegar umræður en bað þá
geyma allsherj-
aruppgjör til
betri tíma. Að
vfsu skorast ég
ekki undan
slíku, en það
þarf að líta á
hvert mál fyrir
sig og hér er
mál sem þarfn-
ast skjótrar afgreiðslu. Orsakir
verðbólgunnar ná miklu lengra
aftur fyrir myndun núverandi rík
isstjórnar, og hér er mikið verk-
efni framundan. Svaraði hann síð
an nokkrum atriðum í ræðu Björns
Jónssonar (Ab) frá því daginn áð-
ur, sagði að hvað sem mætti um
þær tölur segja, þá væri það stað
reynd, að hagur almennings hér
hefði ekki versnað á sfðustu ár-
um og vöruverð hér væri sambæri
legt við Norðurlöndin. Og að lok-
um sagði ráðherrann í sambandi
við 6. gr. sem veitir ríkisstjórn-
inni heimild til að fresta fram-
kvæmdum, að þessi heimild hefði
verið f fjárlögum 1947 þegar Fram
sóknarmenn voru f stjórn, og
hann minntist þess ekki að hafa
heyrt þá mótmæla þessu. Þeir
hefðu þvert á móti verið mjög
sammála. En viðureigninni við
verðbólguna verður ekki lokið
með þessu frv. Það er mál sem
þarfnast íhugunar.
☆
i