Vísir - 31.01.1964, Qupperneq 8
$
Ctgefandi: Blaðaútgáfan VÍSIR
Ritstjóri: Gunnar G. Schram.
Aðstoðarritstjóri: Axel Thorsteinson
Fréttastjóri: Þorsteinn Ó. Thorarensen
Ritstjómarskrifstofur Laugavegi 178
Auglýsingar og afgreiðsla Ingólfsstræti 3
Áskriftargjald er 70 krónur á mánuði
1 lausasölu 5 kr. eint. — Sími 11660 (5 línur)
Prentsmiðja Vísis. — Edda h.f.
Aðeins bráðabirgðalausn
p'orsætisráðherra hefir í Ijósu og skorinorðu máli
gert grein á þingi fyrir rökum þeim, sem hníga að
hækkun söluskattsins í þágu sjávarútvegsins. Með
hækkun hans er komið í veg fyrir vaxandi verðbólgu
og forðazt halla á ríkissjóði, sem ella yrði. Þetta er
kjarni málsins. Þær röksemdir hefir stjórnarandstað-
an ekki getað hrakið. Og athygli hefir vakið að önn-
ur úrræði hefir hún ekki haft. Mjög hefir hún talað
um að lækkun vaxta útvegsins sé hér eitthvert töfra-
bragð, sem öllu bjargi á þurrt. Hér í blaðinu hefir
verið bent á hver firra þetta „bjargráð“ er. Allar vaxta-
greiðslur frystihúsanna vegna afurðalána bankanna í
fyrra námu ekki nema 15 millj. króna, eða 1% af fram-
leiðsluverðmæti þeirra. Slík upphæð er ekki nema
upp í nös á ketti, þegar á heildarmyndina er litið.
Stjómarandstaðan hefir þannig viðurkennt, að
meginstefnan er rétt í lausn vandamála útvegsins. En
indirstrika þarf, að sú lausn er aðeins til bráðabirgða.
5kki má halda aftur á refilstigu uppbótanna. Þær
/erður að afnema og finna heilbrígða heildarláusri
síðar á vetrinum.
Engan Álftanesflugvöll?
Qrð Ingólfs Jónssonar flugmálaráðherra hér í blað-
inu í gær vöktu mikla athygli. Ráðherrann sagði skor-
inort, að það væri sín sannfæring að aldrei yrði gerð-
ur flugvöllur á Álftanesi. Og orsökin: Gífurlegur kostn-
aður, jafn líklega 1000 milljónir króna sem hálf sú
upphæð.
Að baki þessari afstöðu flugmálaráðherra liggur
auðvitað sú staðreynd að ágætur og stór millilanda-
flugvöllur er í nágrenni höfuðborgarinnar, Keflavíkur-
flugvöllur. Þangað verður innan skamms ekki nema
hálftíma ferð, eftir að vegurinn er allur steinlagður.
Getur hann því sem bezt annazt allt utanlandsflug
íslendinga. Mun lengra er til flugvalla ýmissa höfuð-
borga álfunnar og þykir það þó ekkert neyðarúrræði.
Fyrir millilandaflugið er því algjörlega óþarft að byggja
íýjan flugvöll á leiðinni til Keflavíkur.
j\okkru öðru máli gegnir með innanlandsflugið.
Reykjavíkurflugvöllur hefir aldrei verið vinsæll af
þeim, sem í næstu hverfum hans búa. En flugmála-
stjóri hefir nýlega látið framkvæma rannsókn, sem
sýnir að hann er öruggur flugvöllur og af honum staf-
ar engin sérstök hætta. Gæti hann því enn lengi þjón-
að sem innanlandsflugvöllur — og væri þa ástæðu-
laust að fara út á Álftanes með það flug. Öll hagsýni
mælir því með afstöðu ráðherra, og vandséð er, að
þróun flugsins krefjist stórs flugvallar nær Reykjavík
en Keflavíkurflugvöllúr er.
V í SIR . Föstudagur 31. janúar 1964.
Tvær bækur Grétars Fells
ÞAÐ ER SVO MARGT,
eftir Grétar Fells. Otgef-
andi: Skuggsjá. Prent-
smiðja Guðmundar Jó-
hannssonar.
Árið 1961 kom út fyrsta bindi
af ritsafni Grétars Fells, skálds
og rithöfundar, annað bindið
kom úr 1962.
Eins og nafn ritsafnsins gefur
til kynna er efnið víðfeðmt, en
ber þó að mestu að sama brunni.
Hin ýmsu viðfangsefni eru rædd
frá hinu guðspekilega sjónar-
horni og fjallar einn kaflinn með
al annars um drauma í fyrsta
bindi ritsafnsins. Skiptir höfund-
ur draumum í fjóra aðalfiokka:
spádrauma, tákndrauma,
drauma, sem eru meira eða
minna óljósar endurminningar
og venjulega drauma. Er fróð-
legt að kynnast skoðunum þessa
þroskaða manns á draumlífinu
og mun fleirum en mér hafa vel
líkað. Auðvitað eru til fleiri
skoðanir á draumum, eins og
t. d. kenningar ;t>r;';$íéígái;i*ií*
urss og fleiri aðila, en fram-
tíðin mun leiða í ljós hvað sann-
ast reynist í þessum efnum sem
öðrum.
Kaflinn „Lögmál Hringsins",
sem fjallar um endurholdgun,
skýrir ástæðurnar fyrir endur-
holdgun og þar rennir höfund-
ur mörgum traustum stoðum
undir skoðanir slnar varðandi
endurholdgunina. Kenningin er
í stuttu máli sú, að vér verðum
að fæðast hér aftur á jörðunni
í slfellu í líkama manna og
kvenna þar til við höfum að
fullu tileinkað okkur og lært
það námsefni, sem til er ætlazt
af okkur á þessu stigi málsins.
Rannsóknir sálfræðinga styðja
nú einnig 1 ríkara mæli þessar
kenningar og má meðal annars
benda á niðurstöður Dr. Karls
Muller, hins þýzka sálfræðings,
en hann hefur rannsakað þús-
undir tilfella af persónum, sem
muna síðustu jarðvistir. Grein
eftir hann birtist í tlmaritinu
„World Digest" fyrir skömmu,
þar sem hann telur endurholdg-
un fyllilega sannaða sem vís-
indalega staðreynd. Á það skal
einnig bent að meiri hluti mann
kynsins játar trúarbrögð, sem
leggja endurholdgun og sálræna
þróun að grundvelli kenninga
sinna, Enda ekkert eðlilegra. Á
það skal einnig bent, að frum-
kristnir menn voru endurholdg-
unarsinnar, þótt eftirkomendur
þeirra hafi haft bæði pólitískar
og trúarlegar ástæður til að
hafna henni, en það er of langt
mál til þess, að það verði rakið
hér.
Vígsla Dauðans nefnist næst
síðasti kafli fyrsta bindis og
fjallar eins og nafnið bendir til
um dauðann og afleiðingar hans.
Væri mörgum ráðlegt að kynna
sér viðhorf Grétars Fells til dauð
ans, sérstaklega þeim, sem á-
vallt búa I skugga hans og finnst
hann ógnarlegur. Vera má að
ótti þeirra hyrfi og jafnvel að
þeir litu til dauðans á allt annan
hátt en nú tlðkast. Það er nokk-
uð leitt til þess að vita að margt
fólk gerir andleg mál að að-
hlátursefni, þangað til það miss-
ir skyndilega einhvern náinn ást
vin, þá er skyndilega snúið við
blaðinu, þegar alvara dauðans
gín við. Það verður að teljast
nokkuð dýrkeyptur kennari
Norðurljós, Sálfarir, Myndln ar
Kristi, Meistarar, Leyndardóm-
ar kirkjunnar, Leyndardómur
andlegs þroska, Er nokkuð hir
um megin? Dulheimar náttúr-
unnar, Barnasjúkdómar andlegs
lífs, Ilmur fortíðarinnar, For-
ingjar og fylgilið, Maðurinn, sem
vissi, hvað hann vildi, Guðspek-
in og gáta dauðans, Sannleikur-
inn um Nirvana, Musteri must-
eranna, Sálin hans Jóns míns.
Eins og getur að líta kemur
skáldið víða við enda er hátt
til lofts og vítt til veggja I and-
legum salarkynnum þess. Þar er
enga fátækt að finna, heldur auð
Iegð. Það getur engum bland-
azt hugur um það, að það er
innblásinn maður, sem stýrir
þeim penna er reit þessar bæk-
ur. Það má meðal annars sjá
af því að allt er þetta samið I
hjáverkum hins stritandi manns,
eftir erilsaman vinnudag og
mundu fáir leika eftir.
>f
Grétar Fells
dauðinn, en flestir eru einnig
margs fróðari á eftir. Einn mað-
ur sagði við mig fyrir nokkru
að ef fólk vissi almennt hve
miklu betri tilverusvið dánar-
heimarnir væru heldur en tára-
dalur jarðarinnar, þá mundi eng-
inn streitast gegn dauðanum, en
jafnvel að margir myndu freist-
ast til að flýta fyrir honum.
AUs eru I fyrsta bindi rit-
safnsins 29 kaflar með þeim,
sem þegar eru taldir og nefnast
þeir: Er Guð Til? „Meistararnir
og Vegurinn“, Örlög, Káhlil
Gibran, Trúarbrögð Náttúrunn-
ar, Trú og Guðspeki, Niður með
vopnin, Kirkjan og kristindóm-
ur, Pythagoras, Guðshugmynd
Guðspekinnar, Hatha Yoga,
Ralph Waldo Emerson, Tagore
og skóli hans, Hvað er „heilagt
líf?“ Silkiþráðurinn, Sambands-
málið, Bókstafurinn og andinn,
Dulfræði og dulspeki, Undir
austrænni sól, „Gyðingurinn
Gangandi“, Gríman, Eigum vér
að biðja? Hvernig urðu trúar-
brögðin til, Félagsþroski, Aust-
anvindar og vestan, Nakti sendi-
herrann.
í öðru hefti ritsafnsins eru 24
kaflar: Skyggna konan, Fata-
skipti sálnanna, Trúin á ofstæk-
ið, Nærgætni, Dyr andans, Náð
og nauðsyn, Konungsherbergið,
LJÖÐVÆNGIR, eftir Grét-
ar Fells. — Prentsmiðja
Guðmundar Jóhannssonar.
Utgefandi Skuggsjá.
Fyrir s.I. jól kom út Ljóðvæng-
ir, þar sem skáldið yrkir um hin
andlegu viðhorf sín á rósamáli
formsins. Einnig getur að líta
þar nokkur afmælisljóð og erfi-.
íslenzkg þjóðin hefur átt því
láni að fagna að eiga syni, sem
kunnu að binda háleitar hug-
sjónir og boðskap I töframætti
og kyngi orðsins. Það hafa verið
hinir mestu og beztu fulltrúar
Óðsins. í „Ljóðvængjum” er mik
ið sagt I fáum, markvissum orð-
um. Þannig er stíll Grétars Fells
í ljóði, enda mun hann hafa lát-
ið þá skoðun I ljósi að kvæði
ættu að vera stutt, en segja mik-
ið,
Að lokum eru hér tvö kvæði,
sem eru gott dæmi um þetta:
„I SMIÐJUNNI"
Ófullkomnir eru menn,
en eins og þér ber að gæta:
Þeir eru flestir efni enn,
sem eldinum þarf að mæta.
Og þegar finnst þér eitthvað að
og öfugt flest hjá lýðum,
hafðu, vinur, hugfast það:
Heimurinn er 1 smfðum.
„SÁLARHUNGUR"
Hvort sem gamall ertu‘ eða
ungur,
eitt er það, sem mér er bert:
Sýnirðu mér þitt sálarhungur
sagt ég get þér, hver þú ert.
Skúli Skúlason.