Vísir - 31.01.1964, Blaðsíða 15
VÍSIR . Föstídagur 31. janúar 1964.
75
ttt;
xx
111
rJ-r'
— Þetta er hræðilegt. Og hafa
þeir handtekið morðingjann.
— Nei, þeir vita ekki einu
sinni hver hani} er;
- Og enginn sérstakur grun-
aður?
—r Enginn hefir að minnsta
kosti verið borinn neinum sök-
um, en ég held, að dómararnir
ali sínar grunsemdir.
- Gegn hverjum?. spurði Ang
elo með nokkurri ákefð.
— Konunni, sem minnzt er á í
erfðaskránni — Angelu Bernier
- Systur yðar?
- Hálfsystur minni, - hún
er óskilgetið barn föður míns.
- Þekkið þér hana?
Ég hefi aðeins séð hana
tvisvar. Fyrir hálfum mánuði
vissi ég ekki, að hún væri til.
- Og hvaða ástæður hafa
dómararnir til þess að ala grun-
semdir í hennar garð.
— Það er aðeins annar þeirra,
en ég skal segja yður hvernig í
þessu liggur. Hún á heima í húsi
við þessa götu og rekur verzlun.
Dag nokkurn fyrir 10—12 dög-
um fór ég inn í verzlunina til
að verzla og hafði vitanlega ekki
hugmynd um, að ég væri í sölu-
búð dóttur föður míns . . . .
þessarar systur minnar.
Það var eins og Paroli ætlaði
að gleypa Cecile með augunum.
Cecile hélt áfram:
— Þegar ég bað hana að senda
það, sem ég keypti heim til mín,
spurði hún • um nafn mitt _ og
heimilisfang, og þannig kömst
upp um skyldleikann. Ég hafði
fengið bréf frá föður mínum
með nákvæmum upplýsingum
varðandi málarekstur hans, að
hann hefði unnið málið, og um
væntanlega heimferð hans. Bréf
ið hafði ég lagt í vasaklút — eða
réttara sagt litla vasabók, en ég
hafði stungið tíréfinu milli blaða
í henni. Hann hafði líka sent
mér peninga, 1000 franka seðil,
og 500 franka seðill var í um-
slaginu. Þegar ég kom heim upp
götvaði ég, að ég hafði týnt vasa
bókinni.
- Nú fer ég að sjá samhengið
í þessu. Lögreglan heldur, að þér
hafið týnt henni hjá systur yðar,
hún hafi fundið hana og notað
sér upplýsingarnar í bréfinu,
leigt einhvern þorpara til þess
að myrða Jacques Bernier og
ræna peningunum.
- Já, þannig býst ég við, að
dómarinn hafi ályktað.
— En — til þess að geta gert
slíkt hlýtur Angela Bernier að
hafa hatað föður sinn. Hataði
hún hann?
— Já, herra Paroli.
— Hvers vegna?
- Hún var lausaleiksbarn, -
getin í léttúð, og faðir minn ung
ur og veikur fyrir, gekkst við
henni, en þegar hann uppgöt-
vaði, að Angela sjálf var ekkert
betri en móðir hennar hafði ver-
ið vildi hann hvorki heyra hana
né sjá. Þannig vaknaði hatur
og hefndarlöngun í brjósti henn-
ar.
- En mér finnst nú, að þetta
sé allt byggt á líkum - og sann
anirnar vanti.
- Að vísu, en þessar líkur hafa
haft sín áhrif á mig — og dóm-
arann.
- Þetta varðar mig ekki að
vísu, ungfrú, en ég verð að játa
að það sem þér hafið sagt hefir
vakið áhuga minn. Segið mér,
hvað haldið þér nú sjálfar?
- Ég get ekki sagt neitt á-
kveðið.
— Hvers vegna ekki?
- Það gerðist nokkuð samtím
is eða rétt eftir að faðir minn
var myrtur - og sá atburður
virðist styrkja málstað Angelu
Bernier.
— Hvaða atburður var þetta?
- Það var reynt að myrða
dóttur hennar.
ítállnn lék enn hinn furðil
lostna mann og sagði:
— Nú skil ég ekki vel hvað
þér eruð að fara.
- Af einhverjum ástæðum,
sem mér eru ekki kunnar, kom
dóttir hennar inn í vagnklefann,
þar sem morðið var framið. Það
lítur út fyrir, að morðinginn hafi
! kastað henni út til þess að losna
við hana er lestin var á fleygi-
I ferð. Fyrst morð — svo morð-
| tilraun.
Þrátt fyrir kaldlyndi sitt og ró
! var Paroli nú kominn í geðshrær
I ingu, sem hann átti erfitt með
jað leyna. Enni hans var rakt
orðið af svita, en honum tókst
jað hafa vald á sér og gat svar-
!að rólega:
- Þetta er furðuleg saga, ung
frú.
Svo bætti hann við eftir dá-
litla þögn.
— Morðtilraun sögðuð þér.
Unga stúlkan er þá enn á lífi.
- Já, hún meiddist bara á
höfði, og þér getið bölvað yður
upp á, að hún nær sér, og það
verður til þess að gera allt erfið
ara fyrir mig. Og hún krefst
hluta eigna, sem að réttu til-
heyra mér einni.
Og nú hugsaði Paroli í fyrsta
sinn sem svo:
Hún beið ekki bana! Það getur
orðið mér hættulegt. Ég hefi
ekki verið eins heppinn í öllu og
ég hugði.
— Þarna sjáið þér, herra Par
oli, hvemig ólánið eltir mig. Fað
ir minn er myrtur, og ég veit
ekki mitt rjúkandi ráð, og fæ
sennilega aldrei það, sem mér
ber. Ég er einmana, á engan
að ... .
Það var engu líkara en Paroli
hefði komið til hennar sem björg
unarmaður þegar neyðin var
mest - þannig virtist hún líta
á að minnsta kosti.
Paroli lét sem hann hefði
fyllzt meðaumkun, greip titr-
andi hönd Cecile og klappaði
henni.
- örvæntið nú ekki, kæra
ungfrú, sagði hann mjúkum, sam
úðarríkum rómi. Þér hljótið að
eiga einhverja vini, sem eru fús
ir til að rétta yður hjálparhönd.
Það rætist úr öllu.
- Ég þekki engan, engan,
sagði Cecile niðurlút. Faðir minn
var e inþykkur og við höfðum
ekkert samneyti við aðra. Við
vorum eitt sinn rík, svo fátæk,
þar til hann vann málið, en í
fátæktinni vorum við fyrirlitin.
Ég á enga vini.
- En þér getið eignazt vini.
Ég hefi fengið samúð með yður,
leyfið mér að bjóða yður ein-
læga vináttu mína, og þér mun-
uð komast að raun um, að ég
mun ráða yður heilt,
Hann færði sig nær henni,
þrýsti hönd hennar þéttara,
horfði djúpt í augu hennar, dá-
leiðslumögnuðu tilliti. Barmur
Cecile gekk í öldum. Mál hans
lét sem þýður hljóðfærasláttur í
eyrum hennar og hún fann til
öryggis í nærveru hans og leið
stórum betur en hún hafði lengi
gert.
-Vi - viljið þér vera vinur
minn og ráðunautur?, spurði hún
eins og hún gæti ekki trúað sín
um eigin eyrum.
- Já, svo sannarlega sagði
Angelo í hrifni og innileik. Ég
hefi aðeins þekkt yður skamma
stund, en það er engu líkara en
að ég hafi þekkt yður allt mitt
líf. Það getur ekki hafa verið ein
skær tilviljun, sem leiddi til
þess, að spor mín lágu til yðar.
Kannske örlögin hafi sent mig á
yðar fund til þess að hjálpa yð-
ur til að bera byrði sorgarinn-
ar, hjálpa yður. Ég veit vel, að
þetta kann að hljóma annarlega
í eyrum yðar, að ég tali eins og
brjálaður maður, en ég tala eins
og mér býr í brjósti. Og sé ég
brjálaður kýs ég að vera það
áfram. Þegar ég sé yður svo
unga og fagra og svo hrygga,
aleina í heiminum, get ég ekki
varizt að finna til hinnar dýpstu
samúðar með yður. Ég skal
fórna öllu fyrir yður. Segið, að
þér leyfið mér, að vera vinur yð-
ar í neyð.
Paroli var mikill leikari. Hann
hafði fullt vald á svipbrigðum
sínum og hafði blátt áfram heill
að hana, en hún hafði enga
reynslu - og gat ekki varað sig
á skjalli hans. Hann hreif hana
eins og leikarinn Paul Darnala
hafði hrifið hana - hann hreif
hana svo, að hún mundi ekki
einu sinni eftir því, á þessari
stundu, að hún bar barn Pauls
Darnala undir brjósti.
- Já, já, sagði hún með lukt
augu, ég trúi yður, ég þigg vin-
áttu yðar, verið vinur minn og
ráðunautur - og það lá við að
hún bætti við: Verið mér góður,
elskið mig, en þau orð sagði hún
ekki, en Paroli gat lesið hugs-
anir hennar, og hann tók hend-
ur hennar, bar þær að vörum
sér og kyssti þær.
- Þér vitið þegar, sagði hann,
að ég er Angelo Paroli, læknir.
Ég á eina mestu iækmngastofn
un fiéF-'í- ÞárlSTÉg er auðugUr.
Og ég segi yður í hreinskilni,
ungfrú, að ég vil fúslega verja
auði mínum til þess að hjálpa
yður og láta yður ná rétti yðar,
það er einlæg ósk mín að mega
hjálpa yður og vera vinur yðar.
LAUGAVE6I 90-02
Sfærsf úrvsl bif-
reiðu é eisiym sfoð.
urorugg hjý
okkur.
R
2
A
Vinsamlegir svertingjar gætu
hjálpað þeim Naomi og Tarzan,
en Tarzan þekkir hættur skógar1
ins, og þorir ekki að hætta á að
kaila til þeirra. Það er betra að
láta þá fara framhjá, seg r hann
við hjúkrunarkonuna, við getum
ekki átt það á hættu að lenda í
vandræðum. Ef þetta eru villi-
menn, þá láttu þá ekki taka mig
til fanga ,segir Naomi, ég vildi
frekar deyja. En það lítur ekki
út fyrir að þau eigi að sleppa.
Það er eitthvað þarna á hreyf-
ingu þarna í grasinu ,hrópar einn
þeirra. Kannske er það Ijón. Ljón
hrópar annar, við skulum drepa
það.
v/Miklatirg
Simi 2 3136
Seljum í dag
Opel Record ’58 ’62 ’63
Gipsy ’62. Landrower benzfn og
dieselbíla ’62.
Ford Cardinal ’63-’64
Volkswagen ’62-’63
Willys-jeppi ’64.
Benz 180 ’58 og ’60.
Benz dieselbifreið ’61.
Fiat 11 station ’58. Fiat fólks-
bifreið '63. verð kr. 105 þús.
Opel Caravan ’59-’62.
Benz vörubifreiðar ’55, ’60 og
’61.
Moskowicht ’60
Zimcr ’61.
Bílasola
Guðifiundar
Bergþórugötu 3
Simi 19032 og 20070
Bílakjör
Nýir bílar,
Commer Cope St.
BIFREÍÐALEIGAN
Bergþórugötu 12. Símar 13660
34475' og 36598.
FASTEIGNAVAL
2 — 6 herbergja fbúð og einbýlis-
hús í miklu úrvali vfðsvegar um
bæinn og nágrenni. Einnig íbúð
ir f smíðum. — Höfum ávallt
kaupendur að fasteignum af öll-
um stærðum og gerðum í Reykja
vík, Kópavogi og Seltjarnar-
nesi. Ath. að eignaskipti eru
oft möguleg hjá okkur. önn-
umst hvers -konar fasteignavið-
skipti fyrir yður.
Skólavörðustíg 3A II hæð.
Símar 22911 og 19255.
ildluísbQrð
Eldhússtólar
Miklatorgi
/
\