Vísir - 29.08.1964, Page 1
Dr. Bjami Benediktsson for-
sætisráðherra ræðir við blaða-
nienn í gær. Á fundinum voru
mættir blaðamenn frá öllum
dagblöðunum í Reykjavík svo
og fréttamaður frá útvarpinu. Ef
til vill verður fundur þessi upp
haf þess, að forsætisráðherra
efni til fleíri funda með blaða-
mönnum en á því er mlkill á
hugi meðal blaðamannastéttar-
innar.
Mikill áhugi Vestur■
íslendingu ú málum íslunds
— sagði dr. Bjarni Benediktsson forsætis-
ráðherra á fundi með blaðamönnum i gær
Ég vil ekki láta hjá líða að
skýra frá hinum mikla áhuga
Vestur-íslendinga á málum ís-
lands, er ég varð hvarvetna
var við á ferðum mínum vestra
sagði dr. Bjarni Benediktsson,
forsætisráðherra á fundi með
blaðamönnum i gær. Ég fékk i
förinni gleggri hugmynd um þá
stöðu, er Vestur-íslendingar
hafa skapað sér en ég áður
hafði en íslendingar í Vestur-
heimi hafa valizt til margvís-
legra trúnaðarstarfa, skarað
fram úr og sýnt mikinn dugn-
að og hæfileika, sagði forsætis
ráðherra.
Forsætisráðherra sagði, að
hann hefði verið boðinn vestur
til þess að taka þátt í 75 ára
afmælishátið íslendingadagsir.s
að Gimli f Winnipeg. Á þessari
hátíð var mikill mannfjöldi
sagði dr. Bjarni. Það munu un.
5000 manns hafa tekið þátt í
hátíðahöldunum, að börnum
meðtöldum. Sóttu afmælishátið
ina menn af íslenzkum ættum,
ekki aðeins frá Winnipeg heldui
Framh. á bls. 6.
NEPTUNUS hrennandi úti á hafí
AHÖFNIN YFIRGAF TOGARANN
Mikill eldur gaus skyndilega upp í togaranum Neptún
usi í gær, þegar hann var á leið til veiða. Eldurinn kom
upp í vélarúminu, og yfirgáfu skipverjar togarann, af
ótta við sprengingu. Togarinn var að hefja sína fyrstu
veiðiferð eftir mikla flokkunarviðgerð með tvö hundr-
uð tonn af olíu innanborðs.
Eldurinn gaus upp í vélarúminu
kl. 6,30 síðdegis. Neptúnus var þá
staddur 21 sjómilu út af Garð-
skaga. Eldurinn magnaðist svo, að
skipverjar gátu ekki ráðið niður-
lögum hans, og völdu þeir þá
þann kost að yfirgefa togarann
vegna sprengingarhættu. Fóru þeii
í björgunarbátum yfir i varðskipið
Albert. Þegar var haft samband v;ð
nærstödd skip. Togarinn Júpiter
frá sama útgerðarfélagi hélt stnx
að Neptúnusi.
Nokkru seinna fóru fimm meun
yfir í Neptúnus og hugðust freist i
þess að koma dráttartaug í Júp;-
ter.
Um miðnætti í nótt hélt varð-
skipið Albert áleiðis til Reykja-
víkur með áhöfnina. Dráttartaug
var komið úr Júpiter í Neptúnus
og dró Júpiter hinn brennandi tog
ara siðan til lands. Var áætlað að
varðskipið Albert yrði komið til
Reykjavíkur kl. 4—5 í nótt, en
Júpiter yrð'i kominn til hafnar með
Neptúnus kl. 7—8 í morgun, ef
allt gengi að óskum. *
Ekki hafði eldurinn breiðzt neitt
út, er Vísir hafði síðast fregnir af
togaranum um miðnættið. Var efd-
urinn þá enn aðeins í vélarúminu.
Ekki var talið ráðlegt að láta
Neptúnus leggjast að bryggju,
nema tekizt hefði að slökkva e'.d-
inn. Mun Bjarni Ingimarsson hafa
lagt til, að skip með dælur yrði
sent til móts við Neptúnus í því
skyni að dæla sjó í togarann til
þess að slökkva eldinn.
Talið er, að kviknað hafi i út
frá einangrun.
Vísir átti tal við Tryggva Ófeigs
son útgerðarmann í gærkveldi. —
Kvað hann Neptúnus hafa átt
heimsmet í afla um 13 ára skeið.
Neptúnus er smíðaður árið 1947,
tæplega 700 tonn að stærð. Skip-
stjóri á honum er Valdimar Guð-
mundsson, en með í förinn'i var
Bjarni Ingimarsson, sem lengst hei
ur verið skipstjóri á togaranum.
NEPTÚNUS, aflasælasti togari Islendinga um árabil.
Viðtal við Jónas B. Jónsson, fræðslustjóra
Um sex þúsund börn hefja
nám í barnaskólum borgarinnar
n. k. þriðjudag, eða !. septenv
ber. Um miðjan septembei
mæta svo 11 og 12 ára börnin
og verða því alls um 8900 börn
í barnaskólum borgarinnar i
vetur. Um 320 kennarar munu
starfa við barnaskólana, þar af
260 fastráðnir. Um mánaðamót-
in tekur til starfa nýr barna-
skóli við Álftamýri, en þar
niunu 480 böm stunda nám í
vetur.
Vísir átti í gær samtal við
lónas B. Jónsson, fræðslustjóra
Reykjavíkurborgar og skýrði
hann blaðinu m, a. svo frá:
— Aðalbreyting á skólastarf-
inu í vetur er sú, að 10 ára
börn hefja skólagöngu 1. sept.,
og er það samkvæmt ákvörðun
fræðsluráðs Reykjavíkur, og í
samræmi við ályktanir kennara
þinga. Þetta er einnig í samræmi
barna frá 1946. En þar er kveð
við gildandi lög um fræðslu
ið svo á að skólar í kaupstöð
um og þorpurn með þúsund
íbúa og fleiri skuli starfa sem
næst 9 mán. á ári. Um miðjan
september koma svo 11 og 12
ára börnin í skólann, og eru þau
2918.
Fræðslustjóri sagði að engin
vandkvæði hafi verið á að fá
kennara við bamaskólana, og
er þai allt öðru máli að gegna
en um gagnfræðaskól-
ana, því þar er mikill skortur
á kennurum með réttindi.
Samkvæmt íbúaskrá borgar-
innar og spjaldskrá Fræðslu-
skrifstofu Reykjavíkurborgar
voru 9370 börn á barnafræðslu-
aldrinum 1 Reykjavík s. 1. haust.
Nú í haust eru börnin 9611.
Sagði fræðslustjóri að eftir
Framh. á bls. 6.