Vísir - 29.08.1964, Qupperneq 3
3
V1SIR . Laugardagur 2á. ágúst 1964.
☆
Það er vitað að Siglufjörður
er mesta snjóakista í byggð á
íslandi, enda kemur þaðan
bezta skiðafólk, sem við eigum
völ á og hefur á undanförnum
árum hlotið flesta íslandsmeist-
aratitla.
En þótt Siglfirðingum þyki
snjórinn góður til síns brúks á
veturna, og þó einkum til skíða-
æfinga, kæra þeir sig ekkert um
hann á sumrin og þykir hann þá
hinn versti vágestur. Þeir hafa
líka þurft að Iosna við hann
sem allra fyrst á vorin, því
hann teppir samgöngur milli
Siglufjarðar og annarra lands-
hluta á landi — a. m. k. enn
sem komið er.
☆
Fyrir nokkru gerðist það,
sem ekki hefur gerzt um ára-
bil, jafnvel ekki um áratuga-
skeið, að fannfergi og blind-
hríð varð á Siglufirði um há-
sumarið, miðjan ágústmánuð. Á
götum bæjarins náði snjórinn
fólki f ökla og enda þótt kom-
izt yrði á bílum um göturnar
sjálfar var ófært með öllu strax
og út fyrir var komið. Sigiu-
fjarðarskarð varð að sjálfsögðu
ófært og voru þar þriggja mann
hæða háir skaflar. Skarðið er
nú orðið fært á ný en þó er þar
mikill snjór. Myndsjáin f dag
er frá Siglufjarðarskarði.
Háir snjóruðningar voru meðfram Skarðsveginum, enda var snjórinn sums staðar allt að tveggja metra
djúpur. Á tveimur stöðum í sneiðingnum austan Skarðsins féllu snjóskriður, og var dýptin á veginum um
þrjár mannhæðir.
Myndin er af jarðýtunni, sem alla dagana var við moksturinn í Siglufjarðarskarði, oftast í foráttuveðri,
enda var snjórinn feiknamikill og stöðugt bætti á.
Mynd þessi er tekin föstudaginn 21. ágúst s. 1. Sýnir hún snjóruðn-
ingana nokkru neðar Siglufjarðarskarðs austanmegin. Upp úr snjó-
breiðunni stendur stór steinn, sem Ragnar Páll listmálari málaði höfuð-
kúpu á fyrir nokkrum árum. Höfuðkúpa þessi getur minnt vegfarendur
á það að hér sé um að ræða versta þjóðveg Iandsins, sem oftast nær
cr illfær vegna viðhaldsleysis og svo auðvitað vegna slæmrar veðráttu
í mesta háfjallaklasa á Norðurlandi.
SILDARSOGDÆLAN HEF-
IR RFYNZT ÁGÆTLE5A
Eins og áður hefur komið fram
í fréttum var stofnað til merki-
Iegrar nýjungar í síldarflutn-
ingum f sumar af hálfu nýju
síldarverksmiðjunnar vestur í
Bolungarvík. Útbúin var síldar-
sogdæla sem reynd hefur verið
til að dæla sfld úr veiðiskipum
yfir i flutningaskipið Þyril, sem
var sérstaklega útbúið til sfld-
arflutninga og hefur þegar flutt
um 8000 mál að austan alla leið
til Bolungarvíkurverksmiðjunn-
ar. Þyrill bíður nú austur á Seyð
isfirði eftir betra veðri og nýj-
um farmi.
Guðfinnur Einarsson, verk-
smiðjustjóri f Bolungarvík,
sagði í viðtali við Vísi í gær að
síldarsogdælan hefði reynzt
prýðilega í sumar. eigi aðeins
við tilflutning sfldar milli veiði
skipa og flutningaskips við
bryggju heldur og í góðu veðri
á miðum úti. Taldi Guðfinnur
að fullyrða mætti að síldarsog-
dælan kæmi að fullu gagni við
síldartilfærslu úti.,£, miðunum
í framtfðinni þegar ekkert sér-
stakt væri að veðri.
Árangur þessarar tilraunar er
því þýðingarmeiri sem síldar-
göngurnar hafa breytt sér og
miðin fjarlægzt helztu verk-
smiðjur landsins á Norðurlandi
á undanförnum árum.
♦ Laosleiðtogarnir þrír safnast
nú saman f París til þess að
vinna að samkomulagi til þess
að binda enda á vopnaviðskipti
í landinu. Souwana Wong, leið-
togi Pathet Laos, og Souwana
Phouma forsætisráðherra eru
komnir og aðeins Boun Oum,
leiðtogi íhaldsmanna, ókominn
í gær (fimmtudag).