Vísir - 29.08.1964, Qupperneq 5
V í S IR . Laugardagur 29. ágúst 1964.
5
--------. ■ . .. .
utlönd £■ mbrgim útlönd í morgun
útlönd í morgun útlönd í morgun
LEYNISAMNINGAR MILU PORTÚ-
GAL OG SmUR-RHODESIÚ?
Iain Smith forsætisráðherra
Suður-Rhodesiu er væntanlegur
tll London bráðlega til við-
ræðna við forsætisráðherra
Bretlands um sjálfstæði lands-
ins. Iain Smith iýsti yfir því á
þingi uú f vikunni, að hann
mundi ekki birta einhiiða yfir-
lýsingu um sjálfstæði, nema
hann hefði að baki sér þjóðar-
fylgi, og hann kvaðst vona að
ná samningum um sjálfstæði
í London
En Lundúnablaðið Daily Mail
segir, að stjórn Suður-Rhodesiu
eigi í samningum við Portugal
með Ieynd , og samkvæmt þeim
verði lýst yfir sjálfstæði með
einhliða yfirlýsingu í október,
ef samkomulag næst ekki í
London.
Blaðið segir, að nokkrir brezk
ir þingmenn hafi fengið upplýs
ingar um þetta og gert Duncan
Sandys samveldismálaráðfierra
aðvart. Segir blaðið að Iain
Smith ætli að koma við í Lissa
bon til þess að ganga frá samn
ingunum, en blaðið segir, að
samkvæmt þeim:
1. Viðurkenni Portúgal og
Afríkulönd Portúgals Moz-
am bique og Angóla sjálf-
stæði Suður-Afríku.
2. Verði stöðvaðir flutning-
ar á inn- og útflutningi 'til
Norður-Rhodesiu á Benguela
járnbrautinni.
3. Veiti Portugal Suður-Rhod
esiu- efnahagsiega og fjár-
hagslega aðstoð, reynist
hennar þörf.
4. Veiti Portúgal hernaðar-
lega aðstoð. verði hennar
þörf.
Þá segir blaðið, að áformum
slíkum sem þessum hafi verið
frestað tvisvar, en nú eigi að
framkvæma þau þegar bezt þyk
ir henta eftir 2. október. Blað-
ið vekur athygli á að 1. októ-
ber fari fram aukakosning í S,-
Rhodesiu, þar sem þeir keppi
Sir Roy Welensky fyrrverandi
forsætisráðherra sambands-
stjórnar Mið-Afríkusambands-
ins sálaða, en hann vill sjálf-
stæði með samningum, og Du
Pont nýdubbaður varaforsætis-
ráðherra, sem sagði af sér þing
mennsku til þess að keppa við
Sir Roy, sem ætlar að gerast
höfuðleiðtogi stjórnarandstæð-
inga, ef hann sigrar.
I áætluninni var gert ráð
fyrir ýmsum gagnráðstöfunum,
sem Norður-Rhodesia kann að
gera, en hún verður sjálfstæð
24. október, og er ein þeirra að
svipta N.-R. orku frá Kariba-
orkuverunum, stöðva aðflutn-
inga á kolum úr Wrenkie-nám-
unum og útflutning frá N.-R. á
kopar — en þessir flutningar
fara venjulega fram um járn-
brautaleiðir yfir S.-Rhodesiu.
Að svo stöddu liggur ekki
annað fyrir um þetta en það,
sem Daily Mail birtir — undir
hvorki meira né minna en 7
dálka fyrirsögn á forsíðu.
Frétt síðdegis í gær hermir,
að Kaunda forsætisráðherra N,-
Rhodesiu og verðandi forseti
landsins, hafi lýst yfir, að hann
hafi með höndum afrit af hinni
Iain Smith.
leynilegu áætlun. Kaunda
skýrði frá þessu á fundi með
fréttamönnum.
LOFTI
sinnir hlutverki þúsundu veðurstöðvu ú jörðu
Veðurathugana-gervihnettin-
um NIMBUS var skotið í left
upp frá Vandenberg-stöðinni í
Kaliforniu í gærniorgun.
Hann á að sjá 59 landstöðv
um i 21 landi fyrir myndum
af skýjalögum kringum jörðu
Nimbus á að fara á braut kring
um jörðu í um 1000 km. næð.
Hann verður fyrsti gervihnöttur
inn sem lætur í té upplýsinga1
um hitastig skýjanna. Vegna
hringrásar Nimbusar um jörðu
og vélakraftsins, sem ávallt
beinist að jörðu á að geta innt
af hendi hiutverk þúsunda land-
veðurstöðva. Nimbus mun taka
um 1200 myndir daglegat af
skýjalögum jarðar. I gervihnett
inum eru tvö ljósmyndunar-
kerfi og tekur hitt myndir af
skýjalögum, er merki er gefið
frá einhverri hinna 59 land-
stöðva um að ljósmyndunar sé
þörf.
ERLENDAR FRÉTTIR
í STUTTU MÁLI
•ft Biaðið Dagens Nyheter í
Stokkhólmi birtlr frétt um, að
SAS geri ráð fyrir hagnaði á
rekstri sem nemur 40-50 millj.
sænskra króna á fjárhagsárinu
sem lýkur 30. sept. eða helm-
ingi meiri ágóða en á fyrra fjár
hagsári.
•k Indineskir skemmdarverka-
menn gerðu misheppnaða tii-
raun til þess að sprengja í loft
upp olíugeyma á ey einni fyrir
sunnan Singapore. ESSO á oiíu
geymana.
★ Rússar segjast hafa leyst
það vandamál hversu granda
skuli aðsvífandi eidfiaugum.
Það er Rauða Stjarnan sem seg
ír frá þessum nýju gagnvopnum
★ Ekkert tjón varð á eldflaug
um og tækjum af völdum CLEO
á Kennedyhöfði í Florida.
->V Alis hafa nú 70 manns
veikst af taugaveikibróður í
Kuppio Finnlandi.
it Sprenging í ritstjórnarskrif-
stofum vikubiaðsins Northside
Reporter í Jackson Missisippi
oili talsverðu tjóni, — þó ekki
manntjóni. — Ritstjórinn er
kunnur fyrir frjálslyndi í skoð
unum.
★ Souwana Phouma forsætis-
ráðherra Laos hefur tiikynnt
í París, að.fundur hans og hinna
tveggja Laos-Ieiðtoganna hafi
verið frestað um óákveðinn
tíma.
it Julius Nyerere forsætisráð-
herra Tanganyika var í þann veg
inn að Ieggja upp f ferðalag til
Zansibar er það fréttist, að upp
reisnarmenn væru að flýja i
hundraða tali eða jafnvel þús-
unda yfir Tanganyikavatn til
Tanganyika eftir að sambands-
herinn hafði náð mestum hluta
ALBERTVILLE á sitt vald. Þrxr
ráðherrar hans voru farnir til
bæjar á austurströnd vatnsins
til þess að kynna sér ástand
og horfur og var búlst við, að
Nyerere myndi fara þangað
líka.
★ Heilsu hins 73 ára gamla
forseta Ítaiíu SEGNI fer enn
hnignandi. Hann veiktist fyrir
þrem vikum.
★ Tveim Tékkum tókst að
flýja tii Vestur-Þýzkalands f
gærmorgun (föstudag) nálægt
Waidhaus. Þeir voru í vörubil.
Landamæraverðir skutu á þá úr
vélbyssum og eltu þá 10 metra
inn yfir landamærin, en menn-
irnir sluppu heilir. Þeir sögðu
vestur-þýzku lögreglunni, að ó-
ánægja sú, er iægi til grundvall
ar flótta þeirra, væri stjórnarfar
ið í landinu.
it Á mánudag verður sett
í Genf ráðstefna kjarnorkuvís-
indamanna. Þátttakendur verða
um 3000 að meðtöldum áheyrn
arfulitrúum, Þetta er þriðja ráð
stefnan um friðsamiega hagnýt
ingu kjarnorku sem Sþ stofna
til. Forseti ráðstefnunnar verð-
ur Vasily S. Emelyanov frá
Sovézku akademíunni. U Thant
mun verða viðstaddur setning-
una. Glenn T. Seaborg er for-
maður sendinefndar Bandaríkj-
anna.
★ Japanskir og bandariskir
sérfræðingar ræða nú framtíð
kjarnorkuknúinna kaupskipa.
Frekknr vilja enga íhlutun um
Indókína, Kýpur og Kongó
Að loknum ráðuneytnsfundi
í París gerði talsmaður stjórn
arinnar, Alain Peyrefitte, grein
fyrir yfirliti Couvé de Murviiie
utanríkisráðherra um ástand og
horfur á alþjóðavettvangi, en
það var rætt á fundinum, og
var þar fjallað um Indokína,
Kýpur og Kong.
Komst stjórnin að þeirfi nið-
urstöðu, eftir að hafa rætt y?
irlitið að ástæða væri til að
endurtaka hver væri afstaðr
Frakklands, en hún væri sú
að fyrsta skilyrðið til þess að
takast megi að varðveita fr;ð
inn. sé að engin þjóð hlutist tii
um innanríkismál annarra
þjóða. Þetta setti við um öll bau
þrjú lönd, sem tii umræðu
voru.
Látin va: ijós ánægja yfir
að horfur voru ekki eins I-
skyggilegar og áður í Suða';st-
ur-Asíu, en lögð áherzia á, að |
ólgan sem enn er þar í Iöndum |
væri friðinum hættuleg (eins
og viðburðir seinustu daga
sanna áþreifanlega). Viðsjár í
Suður-Vietnam hafa sannað, að
áframhald á vopnaviðskiptum
þar, tefla friðinum varanlega '
hættu.
Endurtekin var sú skoðun
stjórnarinnar, að ný 14 þjóða
ráðstefna myndi leiða t'il þess,
að framkvæmt yrði heiðarleg-*
og réttiátlega samkomulagið
frá 1954, og friðurinn endur-
reistur með því að vernda Viet-
nam gegn áhrifum stórveld-
anna, og að hægt yrði að girða
fyrir íhlutun og afskipti með
skipulagningu og eftiriiti.
Yerwocrd vill sammarkað 9
ianda með 38
íbúa
Frétt frá Port Elizabeth hermir,
að Hendrik Verwoerd forsætisráð-
herra Suður. og Mið-Afríku hafi
Iagt til að stofnaður verði sam-
markaður alira Suður-Afríkuríkja.
Mundi hann ná til eftirtalinna
landa: Suður-Afríku, Mozambique,
Angola, Suður-Rhodesiu, Malawi,
Norður-Rhodesiu sem fær heitið
Zambia I október, Basutoto
lands, en íbúatala þessára landa er
samtals 38 milljónir. — Verwo uq
nefndi sérstaklega Maiawi og
Norður-Rhodesiu. Kvað mikla gagi'
rýni hafa gætt í þeim varðandi
Suður-Afríku, en þessi 'önd mvndu
hafa hag af þátttöku í slíkum
samtökum. „Við verðum að reyna
að skiija afstöðú þessara landa,
þegar þar eru látnar i ljós skoð-
anir, sem við erum ósamþykkir“
— Önnur Afríkuiönd gagnrýnd:
Verwoerd harðlega fyrir stefnu
þeirra gagnvart Suður-Afríku.