Vísir - 29.08.1964, Síða 6
6
V í S I R . Laugardagur 29. ágúst 1964
Forsætisráðherra —
Framh at bls 1
einnig frá nágrannabæjum og
margir komu um langan veg
til þess að vera viðstaddir.
HAFA UNNIÐ SÉR
MIKIÐ ÁLIT.
Forsætisráðherra sagði, að
Vestur-fslendingar í Kanada
hefðu unnið sér mikið álit og
verið ættlandi srnu til sórna.
1 Kanada væru ótal þjóðabtut.
T.d. væru í Winnipegborg einni
töluð 38 tungumál auk ensku
og frönsku, aðalmála landsins.
Dr. Bjarni sagði: bað eru ekki
aðeins fslendingar vestra, er
halda tryggð við sinn ættstofn.
En miðað við fjölda hafa þeir
vakið mikla og verðskuldiði
athygli í Manitoba fylki. t>eir
hafa þar valizt tii vandasamra
starfa og verið sýndur trúnað-
ur. T.d. eiga V-íslendingar nú
1 fulltrúa í fylkisstjórn Mani-
toba og í alríkisstjórninni, er
situr í Ottawa er ráðherra af
íslenzku bergi brotinn og fer
með námumál og tækniefni en
þau mál skipta Kanadamenn
einna mestu. í fylkisstjórn
Manitoba er nú V-íslendingur
ráðherra en hann kom hingað
t’il lands á háskólahátíðina fyrir
þremur árum. í Winnipeg er
stærsta lækningastofnun er nú
starfar innan brezka heimsveld
isins og yfirmaður þeirrar stofn
unar er af íslenzkum ættum,
Þorláksson að nafni. Hann hefur
60 lækna undir sinni stjórn. Og
hvarvetna má finna fslendinga,
er skara fram úr, lögfræðinga,
verkfræðinga og fleiri. Flestir
eru menn þessir í Manitoba en
einnig víðar um Kanada. Að j
sjálfsögðu fer þeim fækkandi, j
er tala og skilja íslenzku en þó
eru þeir enn ótrúlega marga',
er það gera. Ég hitti mjög
marga, er töluðu íslenzku og
ég hefði getað haldið áfram í
heilan sólarhring að hei'.sa
mönnum, er það gerðu.
ÞYKIR VÆNT UM ÍSLAND
OG ÍSLENZKA TUNGU.
Forsætisráðherra kvaðst hafa j
heimsótt margar byggðir íslend
inga og víðast vertð beðinn að
flytja ræður. Á einum stað varð
ég að stytta mál mitt vegna
tímaskorts og mælti á enska
Að ræðunni lokinni kom til mín
V-íslendingur og lét í Ijós
gremju sína yfir því, að hafa
ekki fengið að heyra íslenzku
talaða. Og þannig var þetta víð
ast. Menn eru áhugasamir um
I. DEILD
ÍSLANDSMÓTIÐ
ft
A Akranesi n. k. sunnudag kl. 16.00 fer fram
leikur milli
Akranes - Keflavík
Ferðir á leikinn frá B. S. R. kl. 13.00 og með
Akraborg kl. 14.00.
Ferðir til Reykjavíkur strax að loknum leik.
Spennandi leikur. HVOR SIGRAR?
MÓTANEFND
Yngsta kynslúoin
Höfum ávallt fjölbreytt úrval af bamavögn-
um, barnakerrum, barnabeizlum o. fl.
Einnig fjölbreytt úrval af barnaleikföngum.
Gjörið svo vel að líta inn og kynna yður vör-
uraar. Póstsendum um allt land.
F Á F N I R ,
Skólavörðustíg 10. Sími 12631.
IBM götun
Viljum ráða til starfa strax eða seinna í haust,
vana götunarstúlku, eða stúlku með góða vél-
ritunarkunnáttu. Nánari upplýsingar í skrif-
stofunni, Skúlagötu 20 1 ■
Sláturfélag Suðurlands.
að varðveita íslenzka tungu og
vilja halda uppi heiðri íslands.
Forsætisráðherra sagði, að í
Winnipeg og nágrenni byggju
margir V-íslendingar, er flutzt
hefðu vestur um haf um síð-
ustu aldamót og á árunum 1870
—1880. Menn þessir þekktu því
allt annað ísland en ísland í
dag. En einnig byggju á Kyrra
hafsströndinni nokkrir ungir
menn, er flutzt hefðu vestur
síðar og staðið sig mjög vei
Allir eiga þessir menn það sam
eiginlegt að þeir meta ákaflega
mikils tengsl sín við ísland. og
eru stoltir af því að vera af is-
lenzku bergi brotnir, sagði for-
sætisráðherra. Ég vil vekja at
hygli á því, að það er okkur
mikils virði að eiga marga
trygga vini hjá voldugri og ört
vaxandi þjóð, Vini sem margir
hverjir skipa valdamiklar trún-
aðarstöður, sagði dr. Bjarni.
Forsætisráðherra sagði, að
það væri aðdáunarvert hven
dugnað Vestur-íslendinga'
hefðu sýnt við að brjóta sér
braut vestan hafs. Þeir hefðu
orðið að taka upp nýja lifnaðar
hætti, hefja t.d. störf við Iand-
búnað er var allt annar en sá
landbúnaður, er þeir höfðu átt
að venjast hér á landi. Forsæt- j
isráðherra sagði, að margir :
hefðu greitt götu slna vestra I
og mörg nöfn kæmu þar /ið j
sögu, of mörg til þess að þann j
gæti nefnt þau öll. Þó kvað j
hann vilja geta þess, að Grettir j
Jóhannsson ræðismaður íslands I
í Winnipeg og stjórnarmaður j
í Þjóðræknisfélaginu hefði fylgt j
þeim hjónum allt frá Winnipsg j
til Kyrrahafsstrandarinnar og '
með því sýnt þe’im mikla vin- i
semd og veitt þeim mikla að- í
stoð.
Prédika —
VINSEMD KANADA OG
BANDARÍKJANNA.
Dr. Bjarni sagði, að ríkis
stjórn Kanada og fylkisstjóm i
Manitoba hefði sýnt sér mikla :
vinsemd og virðingu sem íull ’
trúa íslands og hið sama heföi ,
átt sér stað í Bandaríkjunum.
Hann hefði aðeins átt þar leið
um en forseti Bandaríkjanna
hefði viljað sýna fslandi virð-
ingu með því að bjóða honum j
að heimsækja Hvíta húsið á leið ■
sinni frá Kanada um Bandarík i
in til íslands.
Forsætisráðherra var spurð
ur um það, hvert hefði verið um
ræðuefni þeirra Johnsons. Kvað
hann þá ekki hafa rætt form
lega umstjórnmál og varnarmái
íslands hefðu ekki borið á góma
Johnson minntist fslandsferðar
sinnar, sagði forsætisráðherra
og drap m.a. á fund þann, er
hann hafði talað á í Háskólab'ð
svo og hinn mikla mannfjölda,
er safnazt hafði saman þar úti
fyrir. Hins vegar ræddi ég við
Dean Rusk utanríkisráðherra
um alþjóðamál og hann skýtði
mér frá því hvernig þau ínál
horfðu við frá sjónarmiði Banda
ríkjanna. Forsætisráðherra
kvaðst hafa orðið var við ugg
meðal ráðamanna vestra með
þróun mála í Asíu svo og vegna
Kýpurdeilunnar.
Að lokum gat forsætisráð-
herra þess, að Loftleiðir hefðu
sýnt þeim hjónum þá vinsemd
að ’bjóða þeim í flugferðina til
Kanada svo og allar flugferð r
innan Bandaríkjanna og Kan-
ada.
Framhaid at bls. 16
Kirkja Óháða safnaðarins: Dr.
Jaak Taul, forseti Lútherska ráð-
sins í Bretlandi. Séra Emil Björns-
son.
Kópavogskirkja: Dr. Rajah B.
Manikan frá Indlandi. Séra Gunn-
ar Árnason.
Kotsstrandarkirkja: Séra Bjarne
Hareide rektor frá Noregk Séra
Lárus Halldórsson.
Lágafellskirkja: Séra Ruben Peú-
ersen frá Genf. Séra Bjarni Sigurð
son.
Langholtskirkja: Biskup Stefánó
Moshi frá Tanganýika. Séra Garðar
Svavarsson.
Neskirkja: Biskup Leer Ander-
sen frá Danmörku. Séra Jón Thor-
arensen.
Barnaskólar —
Framh at bls 1
reynslu undanfarinna ára mætti
gera ráð fyrir að um 92% þess-
ara barna sæki barnaskóla borg
arinnar. Þau börn, sem á vant-
ar, eru í einkaskólum, aðallega
æfingadeild Kennaraskólans,
skóla ísaks Jónssonar, Landa-
kotsskóla og Aðventistaskólan-
um, Fáein börn njóta sérkennslu
utan skólanna vegna vanheilsu
og vanþroska, og nokkur börn
dvelja utan borgarinnar.
— Á hverju sumri er unnið
við hreingerningar og viðgerðir,
því það er margt, sem þarf að
laga, hreinsa og mála, áður en
skólarnir taka til starfa. , I
haust tökum við f notkun nýjan
skóla við Álftamýri og verða
þar i vetur 480 börn. Sennilega
getur kennsla ekki hafizt í skó!
anum vegna byggingarfram-
kvæmda, fyrr en eina viku af
september. í fyrsta áfanga bygg
ingarinnar eru 10 kennslustofur,
þar með taldar smíðastofa og
handavinnustofn stúlkna. í
næsta áfanga, sem verður
byggður árið 1965, verða fjór-
ar kennslustofur, en auk þess
húsnæði fyrir skólastjóra, bóka-
safn og heilbrigðiseftirlit, sagði
fræðslustjóri.
Fræðslustjóri gat þess einnig,
að nú yrði tekin í notkun súnd
laug f Breiðagerðisskólanum. —
F.r það til mikils hagræðis fyrir
nemendur skólans og nemendur
Réttarholtsskólans, sem fá þar
sundkennslu, því að undanfarin
ár hafa nemendur þessara skóla
orðið að sækja sundkennslu í
Sundhöll Reykjavíkur.
Sveinn —
sos - sos
Ungan mann vantar herbergi
nú þegar. Sími 22925 f dag
og næstu daga.
Framh. af bls. 16
„Ríkir menn gera ekkert fyrir
list“.
„Kjarval minntist á það í grein
sinni, að þú værir Iögregluþjónn —
hvernig er að fást við list eftir að
hafa handtekið menn?“
„Fólk hefur kannski ímugust á
mér sem málara af því að ég er
lögregluþjónn — ég get ekki lifað
af því að mála. Hvernig stendur á
þvf, að það er aldrei minnzt á, að
Valtýr Pétursson rekur koofekt-
gerð og fatahreinsun og Eiríkur
Smith vinnur í prentmyndagerö? —
Hins vegar þorir enginn að lenvja
mig af því að ég er sterklegur —
en það er um að gera fyrir lög-
regluþjón að vera sterklegur, þótt
hann geti ekkert. Ég hvflist & því
að mála, þegar ég kem þreyttur af
vaktinni".
„Hefurðu selt?“
„Nokkrar myndir — armars kaeri
ég mig ekkert um að selja mjmd-
irnar minar".
„Ertu uppnæmur fyrir gagnrýni?"
„Ég tek engan mann nú oiðið
alvarlega — eftir því sem maður
reynir að gera betur, þeim nwn
meira er ausið á mann óhróðri og
auri“.
„Meinarðu þetta?“
! „Það er óþarfi að hafa þetta eftir
i mér“.
| Sýningu Sveins lýkur annað
j kvöld kl. 11. Aðsókn hefur verið
| dágóð.
SBökkvistöðin —
Framh. af bls. 1.
skrifstofuhússins. í þvf húsi
verður m.a. leikfimisalur.
Sagði slökkviliðsstjóri að stað
urinn sem hin nýja slökkviliðs-
stöð væri að rísa á, væri að
mörgu leyti mjög ákjósanlegur.
Að vfsu er mikil umferð á
Reykjanesbrautinni, en ljós
mun verða sett upp þar sem bíl
arnir munu aka út á götuna.
Getur stöðvarmaðurinn kveikt
á þessum Ijósum um leið og bíl
arnir fara út, þannig að þeir
eiga ekki í neinum erfiðleikum
með að komast út á Reykjanes
brautina. Slökkviliðsstjóri gat
þess einnig að gamla slökkvi-
liðsstöðin í Tjarnargötu yrði
lögð niður með tilkomu nýju
stöðvarinnar, en hins vegar
hefði borgarráð samþykkt að
stefna að byggingu tveggja
hverfisslökkvistöðva. Önnur
yrði vestast f Vesturbænum og
nálægt höfninni, en hin inni
í Kleppsholti.
Frá barnaskólum
Kópavogskaupstaðar
Öll börn á bamaskólaaldri, 7-12 ára, búsett í Kópa-
vogi, sem ekki voru í barnaskólum bæjarins s. 1. vetur
og ekki innrituð í skólana s. 1. vor, komi til skráningar
í barnaskólana kl. 2 e. h. þriðjudaginn 1. september.
Böm úr Vesturbænum komi í Kársnesskóla, en böm úr
öllum Austurbænum í Kópavogsskóla.
Miðvikudaginn 2. september komi böm í skólana se
hér segir:
Öll böm fædd árið 1957 komi kl. 1 e. h.
Öll böm fædd árið 1956 komi kl. 2 e. h.
Öll böm fædd árið 1955 komi kl. 3 e. h.
Böm í 10, 11 og 12 ára deildum hefja ekki skólanám
fyrr en 1. október, og verður nánar tilkynnt um það
síðar.
Kennarafundir verða í skólunum kl. 1 e. h. þriðjudaginn
1. september.
Fræðsluráð Kópavogs.