Vísir - 29.08.1964, Síða 7
7
V 11» í K . Laugaru<.gur 29. ágúst 1964.
Þarna eru bömin á Laugalandi sáamt þrem af fóstrunum.
54 sjónumaböm dvöldu
Þarna var verið að fást við skemmtilega þraut, — tízkuleikinn
á Laogaiandi.
Á þriðjudaginn komu 51 bam akandi í stómm
áætlunarbíl austan frá Laugalandi í Holtum, Rang-
árvallasýslu, og að hinu glæsilega dvalarheimili
sjómanna í Laugarásnum í Reykjavík. Bömin
þustu út úr bílnum og til foreldra sinna, sem biðu
þeirra spennt. Bömin höfðu verið við gott atlæti
í 70 daga í sumarbúðum sjómannadagsráðs.
Um síðustu helgi áttu Vísismenn kost á að skoða
þessa starfsemi. Mjög margir aðilar hafa komið
upp slíkri starfsemi fyrir böm, sem ekki eiga ann-
ars kost á að komast í sveit og njóta þess unaðar,
sem sveitarvera hlýtur alltaf að verða ungu bami
eða unglingi.
„Ég hef varlt kynnzt eins
þægum og gó'ðum hópi
barna“, sagði María Kjeld, for-
stöðukona sumardvalar sjó
mannabarnanna. „Við höfum
verið hér alls 11 í sumar við
að gæta barnanna og allt hef-
ur gengið eins og í sögu. Einna
helzt reyndi á, þegar jarð-
skjálftinn varð. Þá urðu börnin
hrædd og gátu ekki farið að
sofa aftur“.
— Á hvaða aldri eru börnin?
„Þau eru allt frá 4 ára og til
i ára. Þetta er náttúrlega ald-
ur, sem er nokkuð erfiður.
Börnin þurfa mikla aðstoð og
það hefur sannarlega alltaf
verið nóg að starfa hjá okkur
hér“.
— Og hvað hefur verið gert?
„Við höfum reynt að vera
úti með IJörnin eins og hægt
var, en veðráttan f júlí var
heldur léleg og hindraði það
oft. Strax og sólarglæta kom
voru börnin búin að kasta af
sér fötunum. Þau kúnnu sann-
arlega að meta sólski^i^"
★
Kristján Jóhannsson starfs-
maður Sjómannafélags Reykja-
vfkur sagði okkur að þetta
væri annað árið í röð, sem þetta
starf færi fram að Laugalandi
og nyti mjög mikilla vinsælda.
Börn sjómanna hafa að 3!lu
jöfnu gengið fyrir, en umsókn
ir um vfst hafa verið fjölmarg-
ar, miklu fleiri en hægt var að
sinna.
„Við höfum mikinn áhuga á
að halda þessu starfi áfram,“
sagði Kristján. „Við höfum
verið svo heppnir að komast
kynni við hina ágætustu menn
hér syðra, sem hafa stutt okkur
með ráðum og dáð og leigt
okkur þennan ágæta heimavist-
arskóla. Næsta sumar höfum
við mikinn hug á að koma upp
sumardvalarstað fyrir börn á
aldrinum 9—12 ára í Hraun-
koti í Grímsnesi, en það er á-
kjósanlegur staður fyrir slíkt
Sjómannadagsráð hefur þegar
keypt jörðina og vonandi verð-
ur hægt að reisa þar góð húsa-
kynni á næstunni".
★
Börnin voru úti á skólalóð-
inni ’ við leik þegar v"ið fórurn
út í- sólskinið. Þau voru greini-
Iega mjög spennt vegna gesta
komunnar. Stærstu strákarulr,
og raunar telpurnar líka, sögð-
ust hafa selt Vísi í ReykjavíU
og -voru ákveðin í að gera þ rð
þegar þau kæöfflfieim.
Við spurðum: ,,Er gamar^'rð
■rpj;a( nérna?“
Og- það kvað ' við: Já .. já
,já iá . Krakkarnh
voru allir sammála um að
sumardvölin hafði verið
skemmtileg. „Þau eru samt far-
in að hlakka til heimsferðarinn
ar,“ sagði María Kjeld. „Þau
telja dagana eins og krakkar
géra þegar jólin nálgast," sagði
hún.
í Raftholti, myndarbýii
skammt frá, hittum við Sigur-
jón Sigurðsson bónda og einn
af skólanefndarmönnunum.
„Þetta er gott starf sagði hann,
„Við vorum ekki hrifnir fyrst af
að fá svo ung börn inn I skói-
ann og héldum að hann mundi
fara illa. En þetta er rétta
stefnan, þ.e. að gjörnýta skóla-
húsin, þau eiga að vera notuð
alla 12 mánuði ársins, ef hægt
er. Æskan verður að hafa sín
verkefni, — og það er okkar
að útvega æskunni þessi verk-
efni,“ sagði þessi sunnlenzki
mektarbóndi að lokum. Og
hann hefur sannarlega rétt fyr-
ir sér. — jbp —
Starfsfólkið að Laugalandi. Frá vinstri eru: Valgerður Sveinsdóttir,
matráðskona, Klara Björnsdóttir, Dröfn Ólafsdóttir, Ingibjörg
Árnadóttir, Margrét Sigurðardóttir, Didda Guðmundsdóttir, María
Kjeld, forstöðukona, Steinþóra Guðbergsdóttir og loks Kristján
Jóhannsson, sem hefur starfað mikið fyrir heimilið hér í Reykjavík.
Það var líf og fjör í niatsalnum. Börnin þurftu mikið að borða, eins og títt er um börn í sveit. For-
eldrarnir hafa eflaust séð miklar breytingar á börnunum, þegar þau sneru heim eftir 70 skemmtilega
sumardaga.