Vísir - 29.08.1964, Page 13
VÍSIR . Laugardagur 29. ágúst 1964.
13
Nýr frcsmkvæmdastjóri Atiantshafsbandalagsins:
ítalinn MANLIO BROISO
rjm sfðustu mánaðamót tók
við störfum nýr fram-
kvæmdastjóri Atlantshafsbanda
lagsins, ítalinn Manlio Brosio.
Brosio fæddist í Torino 10.
júli 1897. Hann nam lögfiæði
við háskólann þar, en þegar
fyrri heimsstyrjöldin brauzt út
varð hlé á námi hans. Gekk
Brosio þá í herskóla í Caserte
og varð síðan liðsforingi f Alpa
stórskotaliðinu árin 1917-18.
Hlaut hann heiðursmerki fyrir
dugmikla framgöngu.
Þegar Brosio hafði lokið laga
námi árið 1920, sneri hann sér
að stjórnmálum og gekk í Frjáls
lynda flokkinn og varð einn af
Ieiðtogum í hreyfingu „Frjáls-
lyndra byltingasinna,“ sem
stofnuð var af Piero Gobetti.
Á uppgangstímum fasista tók
Brosio ákveðna afstöðu gegn
þeim og átti hlut að tilraunum
sem gerðar voru til að æyna
að hindra valdatöku þeirra.
Leiddi það síðar til þess að
honum bárust fyrirmæli frá
lögreglunni um að hætta öil-
um afskiptum af stjórnmálum.
Hóf Brosio þá lögfræðistörf að
nýju í Torino en hélt þó stöð-
ugu sambandi við samtök and
íasista, einkum heirhspeking-
inn Benedotte Croce og hag-
fræðinginn Luigi Einaudi, sem
siðar varð forseti ítalska lýð-
veldisins.
Efíir„ fall Mussolinis í júlí
1943, tók Brosio að nyju
upp störf sín í Frjálslynda
flokknum í Róm. Hann starfaði
í neðanjarðarhreyfingunni unz
hernámi landsins lauk og átti á
árunum 1943-1944 sæti i pjóð-
frelsisnefndinni. Þegar Róm
varð frjáls á ný, var hann t'l-
nefndur framkvæmdastjóri
Frjálslynda flokksins — og á
árinu 1944 sat hann sem ráð-
herra án stjórnardeildar í tveim
ríkisstjórnum undir forsæti
Bonomis. Árið eftir varð hann
varaforsætisráðherra í stjóm
Parris, og þegar de Gasperi tók
við stjórnartaumum varð hann
varnartnálaráðherra í fyrstu
stjórn hans og gegndi því em-
bætti fram eftir ári 1946.
T janúar 1947 hófst svo ferill
Brosios í ftölsku utanrík
isþjónustunni með því að hann
varð sendiherra í Moskvu. Þar
tók hann m.a. þátt í þýðingar-
miklum viðræðum um friðar-
samningana eftir síðari heims-
styrjöld, skaðabætur og skil á
striðsföngum. I tíð hans var þar
einnig gerður fyrsti viðskipta-
samningur Italíu og Sovétrikj-
anna eftir heimsstyrjöldina.
Brosio var í Moskvu í full 5 ár,
eða þar til hann í ársbyrjun
1952 tók við sendaherrastörfum
í Lundúnum Meðal meiriháttar
mála, sem hann hafði afskipti
af meðan hann var sendiherra
þar, var Trieste-vandamálið.
Var hann fulltrúi ítala við þær
samningaumleitanir, sem þá
áttu sér stað um framtíð hér-
aðsins og undirritaði af lands
síns hálfu samkomulagið um
lausn deilunnar. Á tímabilinu
1955 og fram á mitt ár 1961
var Brosio sendiherra í Wash-
ington og að því búnu í París.
Þar var hann sendiherra til júlí
loka á þessu ári, en hann tók
við framkvæmdastjórastarfi At
lantshafsbandalagsins hinn 1.
ágúst.
Brosio er vanur að taka dag
inn snemma og byrjar með því
að lesa dagblöðin. Flesta
morgna leikur hann einnig tenn
is stundarkorn, áður en hann
heldur til skrifstofu sinnar. Hef
ur hann mikið dálæti á þeirri
íþrótt sér til hressingar.
Meðan Brosio var sendiherra
í París fór það orð af honum,
adreifing
VISIR
Þurfum að ráða börn, unglinga eða roskið fólk til blaðdreifingar í eftir-
talin hverfi:
Bankastræ
★
★
★
Aðalstrætí
Hringbrau,
★ Laugaveg (efri)
★ Lækir
og fleiri hverfi á næstunni.
að hann gerði strangar kröfur
til samstarfsfólks síns, bæði
um vinnusemi og nákvæmni,
enda sjálfur kunnur fyrir hvort
tveggja. Brosio er vingjarnlegur
í framgöngu og hefur gðða
kýmnigáfu.
Hann hefur ritað greinar
bæði um lögfræði og stjórnmál
í tímarit.
Brosio og kona hans, Clot-
hilde, en þau giftust árið 1936,
lifa eins kyrrlátu samkvæmis-
lífi og hjónum í þeirra stöðu
er frekast unnt.
■pjaginn áður en Manlio
Brosio tók við starfi fram
kvæmdastjóra Atlantshafs-
bandalagsins ræddi fréttamaður
við hann á heimili hans í í-
talska sendiráðinu í París. í
samtalinu komst Brosio m.a. að
orði á þessa leið:
Sú reynsla, sem ég hef öðl-
azt í starfi mínu sem sendi-
herra, hefur sannfært mig um,
að Atlantshafsbandalagið sé
eðlileg fullnæging á þeirri þörf
sem skapazt hefur við þau
vandamál, sem veröldin á við að
stríða: deilur og ótta við meiri
deilur en um leið friðar- og
framfaravilja — og þrá eftir
auknu frelsi
Mér er mikill trúnaður sýnd-
ur með því að ríkin 15 f At-
lantshafsbandalaginu skuli hafa
valið mig sem framkvæmda-
stjóra bandalagsins. Starfinu
fylgir þung ábyrgð, svo þung,
að ég hygg að hún verði aðeins
borin með fullum stuðningi
þeirra ríkisstjórna allra, sem að
bandalaginu standa — og al-
mennings í öllum löndum banda
lagsins.
Bandalag okkar er víðtækt og
hefur mikla þýðingu. Það ógn
ar engum — en það er reiðu-
búið til að horfast í augu við
hverja staðreynd. Kjarni þess
er fólginn í sameiginlegri trú
okkar og óbifanlegum ásetningi
allra frjálsra manna — að
standa vörð um frelsi sitt.
Þér getið reitt yður á ,að ég
mun leggja mig allan fram á
þessu sviði — og vænti skiln-
ings og stuðnings yðar allra.
t
k Gjörið svo vel að hafa samband við afgreiðsluna í Ingólfsstr. 3. Sími 11660 i
■■■■■■■■■■ - - -« (
s
VISIR
AFGREIÐSLAN
Hngólfsstræti 3.
Umboðsmaður
Dagblaðið Vísir óskar eftir umboðsmanni á
Eyrarbaidff frá og með næstu mánaðamótum.
Uppl ' ofgTeiðs’u Vísis, Ingólfsstræti 3.
Sími 116Í5Ö