Vísir - 29.08.1964, Side 15
V í SIR . Laugardagur 29. ágúst 1964.
15
FRAMHALDSSAGAN:
SKIN eftir SKÚR
eftir SYRIL BRISCOE
Kay Forrest ók hratt eftir
þjóðveginum, en hægði á sér,
er hún nálgaðist veginn, sem lá
heim - til Stonehill, litla bæj-
arins, þar sem hún hafði átt
bemskuheimili sitt. Hún fór allt
af heim, þegar hún gat því við
komið .Hún var þar alltaf hjart-
anlega velkomin á heimili bróð-
ur síns og mágkonu.
I þetta skipti kom hún til
þess að geta hugsað í ró og næði
mikið vandamál, — sannast að
segja mesta vandamálið, sem
hún hafði fengið við að glíma á
ævinni, en Kay var annars ekki
nema 27 ára gömul.
Hún hugsaði um það, sem
Henry hafði sagt við hana:
— Þú þarft að skreppa burt
úr borginni nokkra daga, upp í
sveit helzt, komast burt frá ys
og þys stórborgarlífsins, og þá
muntu aftur sjá hlutina í sínu
rétta Ijósi.
En Henry hafði sagt þetta, er
hún hafði stunið því upp við
hann, að það gæti þrátt fyrir
allt ekkert orðið af brullaupinu
þeirra, — hún væri svo óviss
um sjálfa sig, elskaði hann lík-
lega ekki nógu heitt.
En hann tók þessu ósköp ró-
lega — og hann lét sannast að
segja aldrei haggast - já, hann
talaði jafnvel um þetta eins og
hún hefði verið að spauga, og
hann hafði dregið aftur á fingur
henni trúlofunarhringinn, sem
hún hafði rétt honum. Og svo.
bað hann hana blessaða að
segja ekki eitt orð um þetta
framar, hvað þá fleiri.
Og daginn eftir hafði hann
skotizt í bílnum sínum til Stone
hill og spurt mágkonu hennar
hvort það væri ekki allt í lagi,
að hún kæmi til nokkurra daga
dvalar sér til hvíldar og upp-
lyftingar. - hún hefði gott af
stuttri dvöl úti á landsbyggð-
inni rétt fyrir brullaupið.
Hún var búin að aka spölkom
eftir veginum til Stonehill, leit
sem snöggvast á armbandsúrið
sitt og sá, að hún hafði yfrið
nógan tíma. Hún nam því staðar
við vegarbrúnina og tók upp
vindlingahylkið sitt og tók úr
því vindling og kveikti í.
Hún skoðaði vindlingahylkið
í krók og kring. Það var úr gulli
og grafið á það og Henry hafði
gefið henni það á afmælisdag-
inn hennar.
Hve loftið var annars dásam-
lega tært og hreint þarna. Það
var meiri munurinn og á loftinu
inni í bænum. Og alltaf hafði
hún saknað góða loftsins -
einkum vor- og sumarmánuð-
ina.
Hugsanir hennar beindust að
litla, indæla húsinu sem hún
hafði átt heima í á berskuár-
unum, en svo fórust foreldrar
hennar í húsbruna, og hún og
bróðir hennar voru send á bama
uppeldisheimili.
Það fór eins og hrollur um
hana nú, er hún minntist ömur-
leika áranna þar. Þar var allt
ljótt og leiðinlegt, - andstyggi-
legt, en þeðar hún var 12 ára
og Bob 14, hafði maður í bama-
verndarráðinu, sem faðir henn-
ar eitt sinn hafði starfað fyrir,
tekið þau undir vemdarvæng
sinn og hjálpað þeim drengilega,
svo að þau fengju nægilega
menntun og góðan undirbúning
undir lífsbaráttuna.
Hún fékk starf sem einkarit-
ari Stonehill-tíðinda, og allt var
í rauninni í bezta gengi, nema
að þrá hafði kviknað í brjósti
hennar eftir að kanna ókunna
stigu. Og hún heitstrengdi
snemma, að sóa ekki lífi sínu
í smábæ eins og Stonehill, held
ur fara til London, er tækifæri
gæfist og koma sér þar áfram.
Hún notaði öll tækifæri, sem
henni buðust, ti' þess að verða
sem færust í starfi sínu, og svo
náði hún því marki. að fá gott
starf á skrifstofu blaðs I Lon-
don. Hún kom sér vel áfram og
allir voru sannfærðir um, að hún
myndi búa sér örugga framtíð,
eignast sitt eigið heimili, búa
við öryggi og aðdáun - en því
miður ekki þá aðdáun, sem leið-
ir til þess að brautin liggur upp
að altarinu. Það var eins og all-
ir væru sannfærðir um, að hún
væri borin og bamfædd til
þess að ná langt, verða deildar-
stjóri eða kannske eitthvað
meira, en hún vildi alls ekki gift
ast.
En svo kom Henry inn í líf
hennar. Og þá breyttist allt.
Henni var ekki sjálfri alveg
ljóst, hvernig allt vildi til, en
einn góðan veðurdag opinber-
uðu þau trúlofun sína.
Henry Bucl var vel efnaður.
Hann var kunnur listaverka-
kaupmaður. Hann var 38 ára og
naut virðingar og álits. Og þær j
höfðu áreiðanlega margar reynt j
að fanga hann í net sín. Kay
gerði ekkert til þess, en samt
var það hún, sem hreppti hnoss-
ið.
Kay hafði kynnzt mörgum
ungum mönnum, sem vom lag-
legri, fjörlegri og skemmtilegri
en Henry, og hún naut þess að
vera með þeim, einum af öðrum,
en þeir litu bara á hana sem
góðan félaga, og ekkert frek-
ara gerðist. Það kviknaði ekki
neinn neisti, að minnsta kosti
ekki neinn, sem varð að báli. Og
svo var það nú þetta, að enginn
þessara ungu manna virtist
eiga örugga framtíð fyrir sér —
en hana hafði Henry þegar skap-
að sér. Hann þurfti ekki neinn
til þess að heyja neina baráttu
með sér, en gjarnan hefði nú
Kay viljað heyja baráttu - með
yngri manni. En hún hafði blátt
áfram aldrei orðið alvarlega ást-
fangin af yngra manni - og eng
inn hinna ungu - að því er
virtist - alvarlega ástfanginn
af henni — áður en þetta gerðist
— áður en þau fóm að opin-
bera trúlofun allt í einu, hún og
Henry.
Eftir að hann kom fram á
sviðið, fór hún að hugsa um það
æ tíðar, að það gæti verið ósköp
notalegt að byrja hjúskaparlíf-
ið án þess að þurfa að ala nein
ar áhyggjur út af peningum -
og voru ekki mörg dæmi þess,
að það eyðilegði allt fyrir ung-
um hjónum? - Jæja, Henry
hafði beðið hennar nákvæmlega
einum mánuði eftir að þau
höfðu verið kynnt hjá sameig-
inlegum vinum. Og þegar hún
tók hátíðlegu bónorði hans, var
hún alveg viss um, að hún hefði
gert rétt í að bíða átekta, þar
til hinn rétti kom. Og Henry var
líklega hinn rétti, þegar allt
kom til alls.
Hún bar alls ekki brennandi
ást í brjósti til hans. Það gerði
hún sér mætavel Ijóst.
OFFSET - LITHOCRAPHT
ÞORGRÍMSPRENT
v*V V1'.
Seljum
dún og
fiðurheld
ver.
Endurnýj-
um gömlu
sængumar,
NVJA FIÐURHREINSUNIN
Hverfisgötu 57A, Sími 1673S
ólvallagötu Ti
Sími 18615
Tek hárlitun. Clairol, we'Ja og
i1 klainol litir. Vinn frá kl. 1-5 á
hárgreiðslustofunni.
Perla Vitastíg 18A. Sími 14146.
Minna Breiðfjörð_________________
Hárgreiðslustofan PERMA
Garðsenda 21, slmi 33968
Hárgreiðslustofan
HÁTÚNl 6, slmi 15493.______
Hátgreiðslustofan
PIROL
Grettisgötu 31, slmi 14787.
Hárgreiðslustofa
VESTURBÆJAR
Grenimel 9, slmi 19218.
Hárgreiðslustofa
AUSTURBÆJAR
(Marla Guðmundsdóttir)
Laugaveg 13, sími 14656.
Nuddstofa á sama stað
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
STEINU og DÓDÓ
Laugaveg 18 3. hæð (lyfta)
Símí 24616
Dömuhárgreiðsla við allra hæf
TJARNARSTOFAN
Tjamargötu 11. Vonarstrætis
megin. simi 14662
22997 • Grettisgötu 62 ST
RÖNNING H.F.
Sjávarbraut 2, við Ingólfsgarð
Sími 14320
Raflagnir viðgerðir á heimilis-
tækjum, efnissala.
FLJÓT OG VÖNDUÐ VINNA
í
OUN- og I;
FIÐURHREINSUN J;
vatnsstfg 3. Síml 18740
SÆNGUR í
REST BEZT-koddat.
Endurnýjum gömlu !■
sængumar, eigum
dún- og fíðurheld ver. |!
Seljum æðardúns- og %
gæsadúnssængur — I;
og kodda af ýmsum !■
stærðum. ‘I
.■.•.V.VV.V.V.'.WAVVW
TIL SÖLU
2 herb. íbúðir við Lindargötu, ris
Ásbraut á hæð, Rauðarárstfg á
hæð Kaplaskjólsveg ris, Drápu-
hlíð jarðhæð Shellveg kjallari,
Efstasund rishæð, Nesveg lítið
niðurgrafinn kjallari.
3 herb. íbúðir við Þverveg á hæo
útb. um 300 þús. kr.,
3 herb. íbúð á hæð við Efstasund.
3 herb. rishæð við Sigtún.
4 herb. ibúð á III. hæð við Klepps
veg. Nýleg og góð íbúð. 1 stofa
3 svefnherbergi, eldhús, r.valir
móti suðri, bílskúrsréttur. Laus
1. október.
4 herb. kjallaraíbúð, lítið niður-
grafin í Teigunum.
4 herb. íbúð við Ásbraut Kópa-
vogi. Nýleg fbúð.
4 herb. fbúð við Seljaveg
5 herb. ibúð við Kleppsveg á II.
hæð. Vönduð íbúð. 2 stofur 3
svefnherbergi eldhús, bað, stór-
ar svalir, tvöfalt gler. Teppi
fyigja.
5 herb. íbúð I Austurbænum f sam
byggingu á I. hæð. 1 fbúðarher-
bergi fylgir í kjallara. Nýleg í-
búð vel innréttuð, svalir, bíl-
skúrsréttur
5 herb. íbúð i Hliðunum á II. haeð
3 stofur, 2 svefnherbergi, teppa
lögð að mestu leyti, arinn í
stofu, eldhús, 4-5 herb. á III
hæð selst með
5 herb. íbúð f Hlíðunum nýmáluð
og standsett á I. hæð að ðllu
Ieyti sér.
JÓN INGIMARSSON
lögmaður
Hafnarstræti 4. Sími 20555
Sölumaður: Sigurgeir Magnússon
Kvöldslmí 34940
RETTI
LYKILLINN w'
AÐ RAFKERFINU
jBaatmrnmmmmmmmmmsm.
Blómabúbin
Tarzan vonar að enginn óvin-
anna vakni meðan hann er að
reyna að bjarga Leolu. Hún hefur skorið sig lausa og gengur að
trénu. Tarzan sveiflar vaðnum
til hennar.
Hrisateig 1
simar 38420 & 34174
- V V
■ — > ,*■