Vísir - 23.07.1965, Qupperneq 1
VISIR
55. árg. - Föstudagur 23. júlí 1965. - 165. tbl.
SÓLSKIN Á NÝ
14-20 stiga hiti í Reykjavík í dag
Þær Yoru að vinna á grasbal
anum víð Tjömina þessar tvær
ungu stúlkur, Anna Johnsen og
María Einarsdóttir, 19 ára gaml
ar Reykjavíkurstúlkur. Þær
höfðu haft regnfötin með sér í
vinnuna um morguninn, en til
allrar hamingju munu þær ekki
þarfnast þeirra í dag og um
helgina eiga þær frí frá þvi á-
gæta starfi að hugsa um skrúð-
garða Reykjavíkurborgar.
Þær Anna og María sögðust
vera f Verzlunarskólanum og á
sumrin hafa þær starfað við
skrúðgarðavinnu í tvennum til-
gangi, að eignast nokkra vasa-
peninga fyrir veturinn og eins
til að verða brúnar, og hvort
tveggja ætlar að takast. Og varð
andi það síðamefnda: Þær voru
Framh. á bls. 6.
247 hvalir
hafa veiðzt
í sumar
1 sumar hafa verið skomir 247
hvalir f Hvalstöðinni og er það
mjög svipuð tala og á sama tima
f fyrra. Þegar Vísir átti stutt
samtal við Hvalstöðina f morgun
voru 3 hvalbátar á leiðinni inn
með 5 hvali. Langmest er um Lang
reyður, en næst kemur svo búr-
hvalur 19 talsins. Mjög Iöng sigl-
ing er á veiðisvæðin fyrir bátana,
yfirleitt um 190-200 mflur. 1 Hval-
stöðinni er unnið allan sólarhring-
inn og starfa þar um 35 menn.
ALLT FULLT íREYKJAVÍK!
Síldin af Eyjamiðum til Hafnarfjarðar
Síldarbræðsla i Reykjavík
gengur heldur hægt ennþá og
aðeins brætt í annarri verk-
smiðjunni, á Kletti þar sem
5000 mál eru brædd á sólar-
hring, en vestur í örfirisey hafa
tankar verksmiðjunnar verið
nær fylltir en bræðsla þar get
ur ekki hafizt fyrr en lokið er
bræðslu á Kletti.
Síldveiðin við Eyjar var held
ur dræm í nótt, en bátar sem
fengu sfld fóm með hana til
Hafnarfjarðar þar sem Lýsi og
Mjöl tekur hana til bræðslu.
Einn bátur landaði f nótt, Blíð-
fari SH, sem var með 600 mál,
en f morgun var byrjað á Reyni
frá Vestmannaeyjum sem kom
með 900 mál og þá var von á
Fagrakletti og Metu með síld
og jafnvel fleiri bátum. Mun
verksmiðjan í Hafnarfirði hafa
tekið á móti um 10 þús. málum
undanfama daga og unnið er
dag og nótt.
LÖNDUN GENGUR ILLA
Á AKRANESI
Á Akranesi hefur verið brædd
sild af norður- og austurmiðum
Það var flutningaskipið Laura
Terkoi, sem kom með aflann
á þriðjudaginn og hefur löndun
á 4000 málum úr henni gengið
ákaflega illa. Virðast dælur
skipsins allt of kraftlitlar og
vinnubrögðin heldur óþægileg,
því dæla verður öllu á þilfar
skipsins f kassa sem síðan er
lyft með krana á land.
Hafnarfjörður, Keflavfk, Akra
nes, Sandgerði og Njarðvík
hafa yfir tveim síldarflutninga
skipum að ráða, en tveir siðast
nefndu aðilarnir eru með hálfa
aðild hvor.
Heimboð til Grímsby sem
felur í sér sættarboð
Blaðið Fishing News skýrir ný-
lega frá þvf, að borgarstjórinn f
Grimsby hafi boðið Geir Hallgrfms
syni borgarstjóra í Reykjavfk að
heimsækja Grimsby. Með honum
býður hann 10 öðrum íslendingum,
iðnrekendum og borgarstarfsmönn
um.
BLAÐ9Ð í DAG
Bls. 2 Iþróttir
3 Laxveiðláin Korpa
Myndir
— 4 Samtöl við norræna
skólamenn
— 7 Beztu iðnaðartæki-
færin.
— 8 Bflasíða Vísis
— 9 Erfiðleikar Kon-
stantfns Grikkja-
konungs.
í boðsbréfi sem Denys Petchell
borgarstjóri í Grimsby skrifaði
borgarstjóranum í Reykjavfk ræðir
hann um hin nánu og vinsamlegu
téngsl milli Reykjavfkur og Grims
by, sem staðið hafa í aldaraðir og
telur hann að heimsókn borgar-
stjóra Reykjavíkur myndi stuðla
að því að styrkja bönd vináttu,
góðvildar og ef til vill bönd verzl
unarviðskipta.
í samtali við blaðið Fishing
News segir borgarstjórinn:
Á síðustu árum hefur nokkuð
borið á andúð og biturleika, vegna
þess að fslenzk skip hafa alltaf
litið á Grimsby sem viðskiptabæ
sinn. Fiskimenn í Grimsby misstu
hinsvegar mikils þegar landhelg-
in var víkkuð út í 12 mílur og
kvótafyrirkomulagi var komið á ís
lenzkar fisklandanir.
En þetta er liðin tíð, segir Petc-
hell borgarstjóri. Nú þarf að koma
á að nýju vinsamlegum samskipt
um. Ég vona að þegar borgar-
stjóri Reykjavfkur og fylgdarlið
hans kemur tii Grimsby getum við
aftur orðið sáttir. Heimboð þetta
er stutt af öllum borgarfulltrúum
f Grimsby, hvort sem þeir telja sig
til Ihaldsflokksins eða Verkamanna
flokksins.
Petchell borgarstjóri er giftur ís
lenzkri konu, frú Kristínu Petchell.
Jón Garðar kemur
tílSandgerðis ídag
Jón Garðar elnn stærsti sfld
ar bátur, sem smíðaður het'-
verið fyrir Islendinga kemur til
Sandgerðis í dag. Eigandi báts
ins er Guðmundur Jónsson út-
gerðarmaður á Rafnkelsstöðum
í Sandgerði og þar er heima-
höfn bátsins. Jón Garðar er bú
inn öllum fullkomnustu tækjum
m.a. er um borð síldardæla til
þess að dæia síld yfir í tankskip
Jón Garðar er milll 335-340 lest
ir að stærð. Skipstjóri er Víðir
Sveinsson, sem áður var með
Víði II.
Barnadeild Landspítalans
tekur bráðlega tíl starfa
Fyrir dyrum stendur — innan
langs tíma — að opna hina nýju
bamadeild Landsspítalans.
Hún verður til húsa í viðbygg-
ingunni miklu sem verið hefur f
smíðum á undanförnum árum.
Gert er ráð fyrir 60 rúmum í
barnadeildinni, jafnframt þvi sem
hún verður búin hinum fullkomn-
ustu tækjum í hvívetna.
Með opnun deildarinnar batnar
aðstaðan til að taka á móti börn-
um til stórra muna.
Ekki kváðu ráðamenn Landsspít
alans enn fullráðið hvenær barna-
deildin nýja tekur til starfa, en
það verður væntanlega sfðar á
þessu sumri eða með haustinu.