Vísir - 09.02.1966, Qupperneq 2
Sjónvarpsaugun fylgjast með glæpnum
JL einu fjölfarnasta götuhorni
í Liverpool, sem er meðal
stærstu hafnarborga Englands
upphófust slagsmál. Bfáðlega
var þar kominn hópur áhorf-
enda og lögreglumenn, sem var
gert viðvart flýttu sér á
staðinn. Eftir nokkrar mínútur
tóku tveir menn sig út úr hópn
um, röltu niður eftir götunni
og skutust síðan inn í inngang
að lítilli skartgripabúð.
Hátt fyrir ofan götuna var
sjónvarpsmyndavél staðsett á
þakbrtín og hafði lögreglumaður
umsjón með henni, en hann
hafðist við í herbergi á neðri
hæð hússins. Myndavélin tók
upp slagsmálin en beindist síð
an að mönnunum tveim sem
gengu í burtu. Lögreglumaður
inn þekktf þama tvo alræmda
glæpamenn og lét aðalstöðina
vita i gegnum talstöð. Nokkr-
um mínútum síðar var komið
að mönnunum þar sem þeir
voru að brjóta upp hurð verzl-
unarinnar. Slagsmálunum höfðu
þeir hrundið af stað til þess að
villa um fyrir lögreglunni.
Svokölluð sjónvarpsaugu hafa
verið notuð með góðum ár-
angri eins og fyrrgreint dæmi
sýnir. Þetta var einn glæpanna,
sem hægt var að koma í veg
fyrir með aðstoð sjónvarps-
augans, sem komið hefur að
góðu liði í baráttunni gegn
glæpastarfsemi f Liverpool Á-
standið var slæmt árið 1964,
þegar urðu yfirmannaskipti við
lögregluliðið í borginni. Þá var
talið að vikulega væru framdir
225 glæpir í einhverri mynd í
borginni. Þakkað veri röggsamri
stjóm nýja yfirmannsins og
þeim nýjungum, sem hann kom
á innan lögreglustarfsins, lækk
aði þessi tala niður í 140 tilfelli
fyrstu vikuna, sem sjónvarps-
augun voru notuð og niður í
105 tilfelli á viku eftir það.
Ekki voru sjónvarpsaugun ein
að starfi, lögreglumenn fara um
stræti borgarinnar tveir og
tveir eða fleiri saman og fylgj-
ast vel með öllu. Um 60 ungir
menn og konur taka þátt í þessu
þau ganga um með labb-rabb
tæki í ýmsum gervum. Sum
þeirra þykjast vera að skoða í
U19 nile UJBIVl
Lengisf dagur
girtutíminn lengist fljótt í
báða enda upp úr jól-
um. Lífið verður allt annað,
menn taka „hæga stökkbreyt-
ingu“ eins og einn sérfræðing-
ur komst að orði í útvarpið —
það verður léttara yfir þeim
þeir verða léttari á fæti og
mannborlegri, muna allt í einu
eftir heitstrengingum, sem þeir
gerðu slompfullir á gamlárs-
kvöld, taka upp á því að fara
í laugar til að styrkja skrokk-
inn og megra sig, komast svo
að raun um það, haltir og
skakkir af harðsperrum, að laug
arferðimar verka þveröfugt,
auka matarlystina og þar með
fituna og svo er það búið ...
Það var gamalla manna mál,
að minnsta kosti i nágrenni
Reykjavíkur, að ekki festi snjó
eftir janúarlok, ef þá væri auð
jörð og þeir vissu hvað þeir
sögðu, jafnvel þó að þeir væru
í grennd við höfuðstaðinn. En
nú virðist svo komið, að ekki
festi heldur þann snjð; sem fell-
ur I skammdeginu, það er engu
líkara en að sá snjór sé nú mun
lakari en áður og enginn end-
ing í honum, að minnsta kosti
hér í grenndinni — svona fer
öll vöruvöndun hraðminnkandi
og ónýt gerviframleiðsla veður
uppi á öllum sviðum, skamm-
degissnjórinn ekki fyrr fallinn
en hann hefur tekið upp, jafnvel
HEILBRIGÐIR FÆTUR
eru undlrstaða velllðunar Látið pýzku BIRK-
ENSTOCKS skóinnleggin lækna fætur yðar
Móttökutimi föstudaga og laugardaga kl. 2—7
e. h. — Aðra daga eftlr umtall. Sími 20158
SKO-INNLEGGSSTOFAN KaplaskjóU 5
búðarglugga, önnur leika elsk-
endur og aðrir ganga rúntinn.
Sjónvarpsaugunum er yfir-
leitt komið fyrir á háum húsum
þaðan sem þau ná vel allri göt-
unni fyrir neðan. Stundum eru
þau lfka falin á bak við merki
gerð eins og flóðljós eða um-
ferðarljós. Umsjónarmennirnir
með „augunum" stjórna ljósopi
vélarinnar og öðrum stillingum
og eru 1 talstöðvarsambandi við
aðalstöðina, lögreglubílana á eft
irlitsferðum og lögreglufólkið.
I’ framtíðinni verður gripið til
fleiri ráða til þess að koma í
veg fyrir glæpi og sjónvarps-
augnakerfið verdur látið ná yfir
stærra svæði, þar á meðal á að
stjóma nokkrum vélanna frá að
aðalstöðvum lögreglunnar.
Það er samband á milli sjónvarpsaugnanna, lögreglumanna og leynilögreglumanna með labb
-rabbtæki.
þótt ekki falli dropi úr lofti og
ekki sjái sól... meira að segja
hafði gamall maður orð á því
við mig um daginn, þegar frost
var sem harðast, að það væri
svikið, hann hefði nokkrum
sinnum komið út í fjórtán stiga
frost þegar hann var yngri, og
þá tók í nef og eyru svo um
munaði... hann kenndi veður-
fræðingunum um þessi vöru-
svik ... hafði þá jafnvel grun-
aða um að þeir laumuðu
nokkru af frosti undan og seldu
á laun til meginlands Evrópu og
drýgðu þannig tekjur sínar
skattfrjálst, það væri ekki ein-
leikið með frosthörkurnar í út-
löndum undanfarna vetur, sfð-
an drýgðu þeir frostið með hlýju
til innanlandsnotkunar. Sé svo
þá er þarna um alvarlegt brot
að ræða, sem þarf ýtarlegrar
rannsóknar við oa síðan refsi-
aðgerða af hálfu hins opinbera
ef sannast. . þetta á ekki að
líðast, við megum ekki láta
bjóða okkur snjó og frost nema
fyrsta flokks vöru og virðist
þarna kjörið viðfangsefni fyrir
Neytendasamtökin ... En svona
er þetta orðið á öllum sviðum,
svikin gerviframleiðsla, ekki
einu sinni fáanlegur ósvikinn
vetrarsnjór eða skammdegis-
frost. . og svo er verið að veg
sama íslenzkan iðnað og veita
honum alls konar fríðindi.
Sjónvarpsmyndavélunum er komið fyrir á
þakbrúnum.
Lögreglumaðurinn fylgist með öllu á skerm-
inum.
Kári skrifar:
Miðamir seldust upp
á örskömmum tíma.
Tjað má teljast til gleðilegri
tíðinda að Sinfónfuhljóm-
sveitin og söngsveitin Fílharm-
onía hafi tekið sig saman um
að flytja eitt af merkustu verk-
um iónlistarinnar eftir óumdeil-
anlegan sniliing.
Frumflutningur Níundu sin-
fóníu Beethovens, hér á landi
má teljast tónlistarviðburður og
eigi svo fáum gleðiefni, sem
sést á því, að miðar að tvenn
um tónleikum í Háskólabíói seld
ust upp á augabragði. Þurfti í
þetta sinn ekki bítlahljómsveit
til ' ess „að trekkja að.“
Einnig er hægt að ráða af
miðasölunni, að tónleikarnir
fyrirhuguðu hafa vakið athygli
margra, og ekki aðeins þeirra,
sem sækja tónleika að staðaldri
En nú fengu ekki allir miða.
Fólk varaði sig ekki á þessari
dæmalausu aðsókn. hef ég fyrir
satt, að miðar á tónleikana hafi
verið uppseldir fyrir sl. helgi.
Sting ég þvf að forráðamönn-
um hljómleikahaldsins, sem með
margvíslegum ráðum hafa reynt
að laða fólk á tónleika, að
hamra jámið meðan heitt er og
halda fleiri tónleika, sem
getur leitt til þess að miklu
fleiri tryggir áheyrendur að sí-
gildri tónlist náist.
Það má þakka framtak þeirra
manna sem standa að því að slík
ir listviðburðir geti gerzt hjá
okkar fámennu þjóð og ekki
sízt ber að þakka þeim, sem
hafa unnið að því með þátttöku
sinni, og vil ég þá sérstaklega
benda á kórmeðlimi en velflest-
ir þeirra gegna fullum störfum
fyrir utan tímafrekar æfingar
en þeirra er að sjálfsögðu kraf
izt til þess að sem beztur ár-
angur náist.
iies