Vísir - 09.02.1966, Side 6
6
V1SIR . Miðvikudagur 9. febrúar 1966.
Skipulagið —
Framh. af bls. 8 ,
ætlunin að þeir geti vegna bratt
ans horfið inn í hlíðina og tyrft
yfir þakið.
tengibraut eða 2. flokks götu
og gerir þetta það að verkum,
að götur úr Fossvogshverfinu fá
aðeins að tengjast Bústaðavegi
é fjórum stöðum.
það er þýðingarmikið við
skipulag Fossvogshverfisins,
segja arkitektamir, að við erum
þar ef svo má segja „að enda
byggð Seltjamamessins. Þessi
byggð verður aðskilin frá byggð
inni sunnan við (Kópavoginum)
og austan við (Breiðholtssvæð-
inu) með grænum beltum eins
og fyrr segir. Það er mjög mik-
ilvægt, að byggðin sem við blas
ir þegar ekið er inn til Reykja-
víkur sé fögur, stílhrein og
smekkleg að yfirbragði. Þetta
verður einskonar forhlið Reykja
víkur, þannig munu ferðamenn
sunnan af Reykjanesi eða aust
an úr sveitum lfta á það. Við
reynum að ná þessu marki með
því að notfæra okkur legu
landsins, brekkuna sem þama
er. Við látum lægstu húsin
standa lægst í dalnum, en hæstu
húsin efst í hlíðinni, þannig und
irstrikum við eða aukum áhrif
brekkunnar. Húsin eiga að
standa f skipulögðum röðum
vestur eftir allri hlíð dalsins og
fylgja hæðarlfnunum.
Þetta er heppilegt að ýmsu
öðru leyti, að láta byggðina
lækka þannig niður á bóginn,
bæði upp á útsýni og sólarbirtu.
Þá hefur þótt rétt að láta göt
umar og grænu geirana upp
og niður hlíðina ekki vera beint
á brattann, heldur sveigjast til
suðvesturs, það stuðlar bæði að
betra útsýni auk þess sem það
kemur þá þvert á helztu vind
áttina, landsynninginn og skap
ar skjól gegn honum. Einnig
dregur það nokkuð úr brattan
um á akbrautum sem liggja upp
og niður brekkuna.
|7fst við Bústaðaveginn verður
röð lágra fjölbýlishúsa sem
verða 2 hæðir á kjallara ofan
megin en að norðanverðu verða
þau vegna hallans fullar þrjár
hæðir. Röð þessara fjölbýlis-
húsa verður einnig niður hlfð-
ina meðfram lóð borgarsjúkra-
hússins, þannig verður byggðin
þéttust efst í hlíðinni, enda
verða verzlanimar og yfirleitt
mest mannaferð þar, en hverfið
verður kyrrlátara og fámennara
eftir því sem neðar dregur. Þar
fyrir neðan koma raðhús og
standa þau eins og ber á klasa
í samb. við húsagötumar sem
eru lokaðar f endann. Neðst
koma svo einbýlishús. Þeim fylg
ir rúmgóð lóð. Þeim verður hag
að svo að fjögur einbýlishús
verða á lóð og lóðarsvæðinu á
að skipta á milli þeirra með lim
girðingu. Einnig er það nýjung
í sambandi við þetta hverfi að
fleiri bílastæði verða á íbúð en
áður hefur tíðkazt ll/2 bíla-
stæði á hverja íbúð í fjölbýlis-
húsum og 2—3 bflastæði á
hverja fbúð í raðhúsunum og á
einbýlishúsin. Þama er ætlazt
til að bílskúrar verði gerðir, en
f öllu þessu hverfi, Fossvogs-
hverfinu er gert ráð fyrir
'' að búi þegar það er full-
byggt um og yfir 5 þúsund
manns, en það er venjulegt að
áætla þá tölu fbúa í hverri hverf
iseiningu sem nú er skipulögð.
Þremenningamir sem hafa
unnið að þessari skipulagningu
gera sér góðar vonir um, að
þeim hafi tekizt að skapa
Reykjavík þama verðuga for-
hlið, en þeir segja þó. — Það
er hægt að eyðileggja hana með
ósamræmi og óvandvirkni í lín
um einstakra húsa. Við fáum
aðeins að ráða lagi húsanna f
aðaldráttum, og við getum einn
ig ráðið nokkru um litaval, að
ekki komi þar fram sláandi ó-
samræmi. En þrátt fyrir það
gæti einn gikkur f veiðistöð sem
gefur sig út fyrir að vera húsa
meistari og teiknar hús þama
og vandar lítt sitt verk valdið
miklum spjöllum á heildarsvip
hverfisins. Við getum aðeins
vonað að menn forðist það, að
væntanlegir fbúar Fossvogs-
hverfis verði samtaka um það
að vanda útlit húsa sinna eins
og verðugt er fvrir þennan stað,
Sjónvurp —
Framh. at jio 16.
þetta, og var þá ákveðið að hefja
meðal háskólastúdenta söfnun und
irskrifta undir fyrrgreinda áskorun.
Undirskriftir miðast við þá stúd-
enda, sem töldust innritaðir f byrj-
un desember.
Söfnun var hætt, þegar komnar
voru sex hundruð fullgildar undir-
skriftir, en 1116 stúdentar alls voru
innritaðir í Háskólann.
Rétt er að vekja athygli á, að
undirskriftirnar gefa ekkert ákveð-'
ið til kynna um afstöðu þeirra, sem
þar eru ekki með. Hér er um að
ræða opinbera áskorun sex hundr-!
uð háskólastúdenta, en ekki neina :
allsherjarskoðanakönnun meðal
þeirra
Framkvæmdanefnd undirskrifta-
söfnunarinnar segir, að sjónvarps-
málið hafi frá upphafi verið hafið
yfir alla flokkadrætti meðal há-
skólastúdenta. Meðal þeirra, sem
áttu þátt í að hrinda þessari undir-
skriftasöfnun af stað, eru menn úr
öllum stjórnmálaflokkum. Undir
áskorunina hafa m. a. ritað allir
núverandi stúdentaráðsmenn, þeir
þrír fyrrverantji formenn stúdenta-
ráðs, sem enn eru við' nám 1 há-
skólanum, og auk þeirra nær allir
aðrir forystumenn í félagslífi stúd-
enta.
Lofftur —
Framh. af bls. 16.
smálestir, með allri tækni um
borð til heilfrystingar á fiski og
sækja á f jarlægustu mið. Endur-
nýjun togaraflotans verður því
að haga samkvæmt því hvort
verður.
Mundi slík rýmkun, sem þú
ræddir um, ekki verða til þess
að aðrar þjóðir, t. d. Bretar,
krefðust sömu ívilnunar?
— Það held ég ekki. Bretar
geta að minnsta kosti ekki far-
ið fram á það með neinni sann-
girni, því að þeir ætla sjálfir
að hafa þann háttinn á — leyfa
eingöngu sínum togurum að
veiða innan takmarkanna að
þriggja mílna línunni. Auk þess
vrði, eins og ég sagði, álit inn-
lendra fiskifræðinga að koma
til.
En flotvarpan þýzka, sem nú
er verið að reyna hér — opnar
hún nokkrar nýjar leiðir, ef vel
tekst?
— Þessi flotvörpugerð hefur
reynzt Þjóðverjum gott veiði-
tæki og því engin ástæða til að
ætla að raunin verði önnur hér.
Jú, þegar hún kæmi í notkun,
gætu togaramir veitt síld, bæði
til frystingar, söltunar og ann-
arrar vinnslu í landi, og það
hefði að sjálfsögðu einhverja
breytingu í för með sér. En að-
alvandinn yrði samt ekki leyst-
ur, þá yrði að fara saman veiði
á síld og bolfiski, og fullkomin
nýting aflans.
Skuttur —
Framh. af bls. 1
til þess að tryggja útflutnings-
framleiðslunni viðunanleg við-
skiptakjör í framtíðinni.
Vera má að niðurstaðan verði
sú, að við neyðumst til þess að
ganga í EFTA, Fríverzlunar-
bandalag Evrópu. Ef af því verð
ur þarf að gera víðtækar breyt
ingar á tollakerfi okkar. En þótt
svo verði ekki, að ekki komi til
aðildar okkar, verður engu að
sfður að stefna áfram að
frjálslegri viðskiptakjörum og
lægri tollum.
Hagsmunir íslenzks
iðnaðar.
I þeim efnum öllum þarf vit-
anlega áð taka fullt tillit til
íslenzks iðnaðar og þjóðhags-
legs gildis hans. En við verðum
að hafa í huga, að iðnaðurinn
íslenzki hefur lengi búið við
vernd og jafnvel einokun á sum
um sviðum. Ef það sýnir sig,
að einstakar iðngreinar hafi
ekki þjóðhagslegt gildi, þýðir
ekki að einblína á það, að hann
veiti svo og svo mörgu fólki at-
vinnu. Hér er það meginatriðið
að iðnaðurinn skili sem mestu
verðmæti á mann, því aðeins
með þá forsendu í huga verður
unnt að auka að staðaldri og
bæta efnahagsafkomu almenn-
ings.
í framkvæmd tollalækkana
verður að taka fullt tillit til að-
stððu iðnaðarins og lækka einn
ig tolla á hráefni og vélum.
Einna mikilsverðast er þó að
skapa fastmótaða stefnu hvað
snertir tollamál og viðskipta-
frelsið. Menn verða að geta
gert sér grein fyrir hvert er
stefnt, hvaða vemd þarf að
veita og hvaða tolla á að lækka
alllangt fram í tímann. Síðan
þarf að koma til móts við þær
iðngreinar, sem verst eru str
ar með hagræðingaraðstoð og
fleiri ráðstöfunum.
Lægri og bærilegri
skattar.
Þá vék Magnús Jónsson að
þeim miklu og hagkvæmu breyt-
ingum sem gerðar hafa verið
á síðustu árum á skattakerfinu
fyrir allan almenning í landinu.
Hann minnti fyrst á frum-
kvæði Sjálfstæðisflokksins í
því efni, er vinna manna við
eigið húsnæði var gerð skatt-
frjáls og helmingur atvinnu-
tekna konu.
Þá drap hann á þá mikils-
verðu breytingu er tekjuskattur
var afnuminn af almennum
launatekjum. Er nú tekjuskattur
aðeins frá 9-27%, samkvæmt nú
verandi lögum. Þá minnti hann
á, að hvað félög snertir er að-
stöðugjald nú frádráttarbært
en það var fyrirrennari þess,
veltuútsvarið ekki .Er því hag-
ur félaga eftir skattbreyting-
una miklu betri en áður. Nú
hafa einnig verið lögfest vara-
sjóðshlunnindi að upphæð 20%
af hreinum tekjum og heimilt er
að draga 10% arð af hlutafé
frá áður en skattar eru lagðir á.
Eru þessar reglur hagstæðari
en tfðkast víða í nágrannalönd-
unum. Benti ráðherrann á, að
þessar reglur eru félögum því
meir til hagsbóta sem hlutafé
þeirra er meira og er það vegna
þess sem m.a. hin nýja alumin-
iumverksmiðja mun greiða til-
tölulega lága skatta, þar sem
hlutafé hennar er svo hátt.
Beinir skattar lágir
hérlendis.
Þá benti ráðherrann á, að nú
hefði það verið lögtekið við
skattalagabreytinguna f fyrra að
skattálagningin miðaðist við sér
staka skattvísitölu sem fjármála
ráðherra ákvæði. Væri hugsun-
in sú, að skattbyrðin þyrfti
ekki að aukast þrátt fyrir verð-
breytingar og verðbólgu, né að
lögfesta þyrfti sffelldar breyt-
ingar á skattstigunum árlega,
eins og verið hefði þess vegna.
Skattvfsitalan fyrir 1966 hefði
énn ekki verið ákveðin, en það
yrði gert innan tíðar.
Skattheimtan hér á landi væri
mjög hófsamleg, sagði ráðherr-
ann, og væri skattþungi beinna
skatta sfzt meiri hér en í ná-
grannalöndunum. Á þessu ári
væru aðeins 10,7% af tekjum
rikissjóðs frá tekju- og eignar-
skatti runnið. En þar með væri
ekki sagt, að breytinga í skatta
málum væri enn ekki þörf. Stað
greiðsla skatta einstaklinga
sem framkvæmd yrði frá næsju
áramótum væri hér stærsta mál
ið. Hins vegar væri afnám
beinu skattanna ekki á næsta
leiti þótt nokkuð, hefði verið um
það rætt, að æskilegt væri, að
svo yrði gert. Væri fremur nauð
synlegt að sameina hin opin-
beru gjöld f einn gjaldstofn, til
hagræðis fyrir gjaidþegna.
Söluskatturinn
I milljarður.
Þá vakti ráðherrann athygli
á því, að söluskattur væri hér
einna lægstur borið saman við
nálæg lönd (7.5%), þar sem
hann væri allt upp f 12%. Sölu
skatturinn skapar fjórðung allra
ríkisteknanna og veitir árið 1966
um einum milljarð króna í ríkis-
kassann.
Umbæfiir í tollamálum.
Tollar hér á landi eru mjög
háir, sagði fjármálaráðherra.
Nema þeir 1966 alls um 40.7%
af ríkistekjunum eða samtals
rúmlega 1.5 milljarði króna.
Miklar umbætur hefðu einnig
verið framkvæmdar í tollamál-
um á síðustu árum, mörgum toll
um steypt saman í einn verð-
toll, tollskrá ítarlega endurskoð
uð og framkvæmd veruleg tolla
lækkun, allt úr 300% í 125%,
sem væru nú hæstu tollar. Með-
altollur væri nú 31.9%, sagði
ráðherrann, svo almenningur get
ur reiknað með þvf að þriðjung
ur verðs vörunnar sé tollurinn.
Bæri enn nauðsyn til að lækka
tollana, ekki sízt með aðildina
að EFTA í huga.
Spilling skattsvikanna
upprætt
Þá ræddi fjármálaráðherra
um skattaeftirlitið. Drap hann
fyrst á, að allir hefðu verið
sammála um nauðsyn þess, að
uppræta spillinguna í skattamál
unum sem hér hefur viðgengizt
undanfarin ár, ásamt því mikla
misrétti sem skattsvikin sköp-
uðu. Væri ekki ofmælt þótt sagt
væri að hundruð milljónir
króna hefðu horfið og aldrei
komið fram til skatts.
Nú hefði með auknu skatteft
irliti verið gerð tilraun til þess
að snúa frá óheillastefnu skatt
svikanna, enda hefðu skattar
verið gerðir mun hóflegri en áð-
ur var. Ríkið hefði hér ekki
verið saklaust í þessu máli, svo
mjög háir sem skattar hefðu
verið, en nú væri orðin breyt-
ing á því. Mætti því með sann-
gimi ætlast til þess að borgar-
amir tíunduðu rétt og sýndu
þegnhollustu sfna þannig í verki
Vissulega væri ekki hægt að
framkvæma réttlætið í þessu
efni án þess að þeir sem sekir
væru yrðu fyrir nokkrum búsifj
um. En ráðherra minnti á, að
hann hefði beitt sér fyrir því,
að skattsektir verða felldar nið
ur hjá öllum þeim sem hreint
borð gera fyrir 1. marz n.k.
og kvaðst hann skora á sem
flesta, er frá einhverju hefðu
að skýra í þessum efnum, að
notfæra sér þessa heimild. Skatt
eftirlitið hefði ekki hug á að
sýna neina harðýðgi í störfum,
heldur aðeins rækja starf sitt
lögum samkvæmt.
Gagnkvæm hollusta.
Það er hlutverk fjársýslu-
manna ríkisins, sagði ráðherra.
lokum, að sýna fyllstu hagsýni
í meðferð fjár borgaranna. En
þess verður líka að krefjast,
að bogararnir sýni á móti holl-
ustu og svíkist ekki undan opin-
berum skyldum sínum og sam-
eiginlegum hagsmunum. Borgar
arnir eiga skyldum að gegna við
samfélagið ,ekki síður en sam
félaaið við þá.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs
efnir til almenns fundar í Sjálfstæðishúsi Kópavogs, Borgarholtsbraut 6 í kvöld kl. 8.30.
Ræðumuður: Geir Hullgrímsson borgurstjóri
Ræðir hann um skipulagsmál Kópavogs og Reykjavíkur og sameiginleg hagsmunamál.
Stjórn Sjólfstæðisfélugsins
_saa