Vísir - 22.03.1966, Side 11
VISIR . Mánudagur 21. marz 1966
SÍÐUSTU SEKÚMDURNAR SKÁRU
ÚR UM SIGURINN!
r r
Armnnn ógnnr enn sigri KR á Islnndsmótinu í körfnboltn
eftir sigur yfir KFR í gærkvöldi með 92:89
KFR og Ármann háðu í gærkvöldi æðisgengna bar-
áttu í 1. deild í körfuknattleik. Þessi leikur hafði raun-
ar allt að segja fyrir Ármann, vilji þeir eiga kost á
íslandsbikarnum, en með tapi gegn KFR má segja að
vonir Ármanns um sinn fyrsta íslandssigur í þessari
grein hefðu orðið að engu.
Leikurinn var gevsiharður og
jafn. Skildu sjaldnast meira en
2—4 stig liðin að, og það var
raunar ekki fyrr en á síðustu
sekúndum leiksins, sem sigurinn
var kunnur. Fram að þeim tíma
hefði hvort liðanna sem var
getað unnið. Staðan var 90:89
fyrir Ármann þegar aðeins voru
eftir 30 sekúndur. KFR sótti og
lauk sókninni með ágætu skoti
Þóris, — en heppnin var ekki
á bandi Reykjavíkurmeistar-
anna og boltinn skoppaði eftir
körfuhringnum og út af honum.
Ármann sneri vöm upp f sókn,
því Birgir tók frákastið. Þar
vegar var leikurinn mjög
skemmtilegur og spennandi fyr-
ir allt of fáa áhorfendur á Há-
logalandi. Allan tímann var leik-
urinn barningur og hvorugur gaf
eftir. í hálfleik var staðan 49:47
fyrir KFR, en Ármenningar náðu
forystunni í 51:49 en síðan ekki
fyrr en í 83:82, þegar 5 mínútur
voru eftir af leik.
Stighæstu einstaklingar í
leiknum voru þessir: Fyrir Ár-
mann skoraði Birgir Öm Birgis
37 stig og átti stórglæsilegan
leik, komst þó ekki almennilega
í gang fyrr en um miðjan fyrri
hálfleik. Davíð Helgason átti og
ágætan leik og skoraði 14 stig.
Hjá KFR var Einar Matthíasson
f sérflokki og skoraði 42 stig
fyrir lið sitt, hirti fjöldann allan
af fráköstum f sókn og vöm,
en einleikur um of á stundum.
Marinó átti og ágætan leik og
Sigurður Helgason sömuleiðis
og skoraði þýðingarmikil stig.
Dómarar voru þeir Agnar
Friðriksson og Guðmundur Ól-
afsson og urðu á hin ljótustu
mistök allan leikinn út og náðu
aldrei æskilegum tökum á leikn-
um. — G. G. —
með var Ármann búinn að sigra
í þessum leik, en sannarlega
mátti ekki miklu muna, aðeins
því hvomm megin körfuhrings
skot Þóris lenti. Davíð Helgason
reyndi körfuskot utan af velli,
en það var brotið harkalega á
honum á síðustu sekúndu leiks-
ins og skoraði hann tvö stig úr
vítaköstunum. Lauk leiknum
með dýrmætum sigri fyrir Ár-
mann 92:89.
Leikur þessi er merkilegur
fyrir þær sakir að óvenjulega
mörg stig vom skoruð og bendir
það raunar til þess að varnimar
hafi verið afar lélegar. Hins ,
KR VANN IKF 100:47
• KR átti í gær auðvelt með
að sigra hið unga efnilega
lið íþróttafélags Keflavikurflugvall
ar (ÍKK). KR náði leiknum í sínar
hendur þegar f upphafi og skoraði
13:4. Um miðjan hálfleikinn var
staðan orðin 26:11. Beittu KR-ing-
ar svokallaðri svæðis„pressu“ allan
leikinn með góðum árangri. Staðan
í hálfleik var 44:16.
í síðari hálfleik var svipað uppi
á teningnum. KR hafði öll völd á
vellinum og lauk leiknum með
stórum sigri KR: 100:47. Má segja
að eina spennan við leikinn hafi
verið það hvort KR tækist að skora
100 stig eða ekki. Það tókst með
skoti Einars Bollasonar á sfðustu
sekúndum leiksins.
Stigin skomðu: Einar Bollason
28, Kristinn Stefánsson 23, Gutt-
ormur Ólafsson 15, Gunnar Gunn-,
arsson 11. Fyrir ÍKF skoraði I
Hilmar 24 stig og Ingi Gunnarsson
(come-back) 9 stig, en Ingi var j
fyrirliði fyrsta landsliðs íslands í'
körfuknattleik og jafnframt fyrir-
liði fyrstu íslandsmeistara iKF.1
Beztu menn KR vom Kristinn og
Einar, en varamennimir Guðmund-
ur, Jón og Þorsteinn, sem tóku við
f síðari hálfleik, áttu allir góðan
leik. Beztur ÍKF-manna var Hilmar,
en Ingi var fullgrófur á stundum.
Lélegir d ámarar vom Hólmsteinn
Sigurðsson og Guðmundur Þor-
steinsson.
KR hefur nú hlotið 10 stig eftir
5 leiki, Ármann 8 stig úr 5 leikjum,
iR 6 stig. úr 5 leikjum, KFR 2 stig
eftir 6 leiki og ÍKF er greinilega í
fal'hættunni með ekkert stig eftir
6 lelki. — G. G. —
Kosníngar —
Framh af ols 16
hreppur, Borgameshreppur, Nes
hreppur, Ólafsvíkurhreppur, Eyr
arsveit, Stykkishólmshreppur,
Patrekshreppur, Suðurfjarða-
hreppur, Þingeyrarhreppur, Flat
eyrarhreppur, Suðureyrarhrepp-
ur, Hólshreppur, Eyrarhrepp-
ur, Hólmavíkurhreppur,
Hvammstangahreppur,
Blönduóshreppur, Höíðahreppur,
Hofsóshreppur, Dalvíkurhrepp-
ur, Hríseyjarhreppur, Raufar-
hafnarhreppur, Þórshafnarhrepp
ur, Egilsstaöahreppur, Eskifjarð-
arhreppur, Reyðarfjarðarhrepp-
ur, Búðahreppur, Stöðvarhrepp
ur, Búlandshreppur, Hafnar-
hreppur, Stokkseyrarhreppur,
Eyrarbakkahreppur, Selfoss-
hreppur og Hveragerðishreppur.
Eldur —
Framh. af bls. 16
gengin 5 um nóttina var hringt til
slökkviliðsins. Var það kvenmað-
ur, sem var f símanum og tjáði að
kviknað væri f húsinu Höfða í
Blesugróf og hefði kviknað út frá
olíukyndingu. Þegar slökkvibflar
eru nýlagðir af stað í þessa kvaðn
ingu, hringdi sami kvenmaður aftur
og sagði þá að kona hefði brennzt
svo illa að senda yrði eftir henni
sjúkrabíl. Var þá .brugðið, hart viö
og júkrabifreiö send á slysstað-
inn, sem þó enginn var, þvi þégar
inn í Blesugróf kom, vom állir f
fasta svefni og hvorki eld né slas-
aða manneskju að finna.
Filippus —
Framhald af bls. 1.
hinni opinberu heimsókn f
Kanada í Ottawa á morgun og
heldur prinsinn þá í flugvél sinni
til Goose Bay, þar sem hann
mun gista aðfaranótt fimmtu-
dags. Heldur hann á fimmtu-
dagsmorgun til íslands, en vélin
hefur viökomu í Syðra-Straum-
firði til aö taka eldsneyti.
Filippus prins ferðast í flug-
vél frá Queens Flight, konung-
lega flughemum, og er það
tveggja hreyfla vél af Andover-
gerð og er hún á stærð við
Fokker-Friendship. Áhöfnin er
þrír menn. Kom vélin sem
kunnugt er fyrir nokkm við á
Reykjavíkurflugvelli á leið vest-
ur um haf til að sækja prins-
inn.
Filippus prins verður hér f
algerum einkaerindum og þvf
Breiðfirðingaheimilið h.f.
Aðalfundur Breiðfirðingaheimilisins h.f. verð-
ur haldinn í Breiðfirðingabúð föstudaginn 22.
apríl 1966 kl. 8,30.
Fundarefni: Aðalfundarstörf.
Stjórnin.
RÖSKUR MAÐUR
óskast nú þegar til aðstoðar á vörubíl.
I. BRYNJÓLFSSON & KVARAN
i ekki' sem opinber gestur, en
sendiherrann brezki mun hafa
móttöku fyrir hann, einnig mun
prinsinn sitja matarveizlu for-
r,yí,4æHsVfiðherra i 'ráðherrabústaðn
tim. Fýlgdarlið prlhsins er 6
mánns. Eins og fvrr segir er
hann væntanlegur á fimmtu-
dagskvöld klukkan hálf sjö og
heldur áfram á föstudagsmorg-
un klukkan 10.
Færðln
Frambaid af bls 16.
takist er talin mikil hætta á, að
vegimir lokist jafnharðan.
Á Bröttubrekku var veður skárra,
og hún verður rudd svo að bílar
komast yfir hana í dag.
Fyrst í morgun var talin tvísýna
á að unnt yrði að moka Holta-
vörðuheiði, en þó horfið að þvi
ráði, og mun stórum bílum verða
hleypt yfir hana f dag. Verður
reynt að aðstoða bíla sfðan eftir
þörfum bæði norður á Hólmavík
og eins norður f Skagafjörð.
Útlitið er þó engan veginn gott
því stórhríð er brostin á um allt
norðanvert landið og á 10. tíman-
um í morgun var óveðrið komið
vestur á Blönduós, en skárra vest-
ur í Húnavatnssýslum. I Skagafirði
og þar fyrir norðan var brostin á
iðulaus stórhríð.
Hellisheiði er ófær, en annars er
öllum bflum, sem stendur fært um
Þrengslaveg og þaðan áfram allt til
Víkur. Yfir Mýrdalssand er aðeins
stórum bílum fært.
Viljafá —
Framh at bls 16
Voru kosningarnar þá sérkosn-
ingar og ekki tengdar neinum
öðrum kosningum.
í umræðum fólks um þetta
mál hefur komiö fram að mörg
um finnst fremur óeðlilegt að
ekki skuli vera áfengisútsala f
Keflavík, þegar hægt er að
kaupa áfengi hindrunarlftið i
Reykjavík Ennfremur hafa Kefl
víkingar búið illa að veitinga-
stöðum og hafa hin betri veit-
ingahús þrifizt illa, en þau hafa
ekki haft vínveitingaleyfi.
Hefur matstofan Vfk fram að
þessu hýst eina veitingasalinn,
sem má kallast af betri tegund
en matstofa þessi er nú til sölu.
Hafa nokkrir aöilar grennslazt
fyrir um kaup á matstofunni, en
margir hætt við kaupin vegna
þess að ekki fylgdi vínveitinga
leyfi. Hafa Keflvíkingar því
mátt búast við því að eini veit
ingasalurinn í bænum yrði ekki
starfræktur.
Hægri umferð —
Frarrihald at bls. 1.
Þessu til sönnunar bera þeir
fyrir sig skýrslur um það, hvem
ig til hafi tekizt með breyting-
una f ýmsum löndum. Þar hefur
komið í ljós að breytingin geng
ur snurðulaust fyrir sig.
Hins vegar eru nefndarmenn
ósammála innbyrðis um það,
hvemig afla skuli fjár til að
standa undir kostnaði við breyt
inguna, en sá kostnaður er aöal
lega fólginn f breytingum á al-
menningsbifreiðum og umferðar
merkjum. Sá ágreiningur skipt
ir þó ekki meginmáli heldur er
það mest um vert segir í nefnd
arálitinu, að sú ákvörðun aö
framkvæma breytinguna veröi
ekki látin dragast. Með hverju
ári sem umferðarbreytingunni
seinkar hækkar kostnaðurinn
við hana. Má benda á það að
árið 1940 var áætlað að breyt-
ingin mvndi kosta 50 þús. kr.
Árið 1956 var hún áætluð 5.6
milljón krónur og nú er gert
ráð fyrir að kostnaðurinn nemi
um 50 milljón krónum.
Síöan bendir nefndin á það að
varanleg gatnagerð f kaupstöö
um sé nú stórlega að aukast.
Verði þær framkvæmdir nú
skipulagðar og undirbúnar með
tilliti til hægri handar aksturs
þá hefur það engan aukakostn
að f för með sér. Verði hins veg
ar enn dregið að koma á hægri
handar umferð valda þessar
framkvæmdir þvf að kostnaður
inn mun margfaldast á næstu
árum.
^ Vietcongmenn unnu hermd-
arverk nýlega, sprengdu f loft
upp strætisvagn. Fimmtðn biðu
bana og fjórir særðust. Flestir
hinna drepnu voru bændur.
Þetta gerðist nálægt Tuy Hoa,
höfuðstaðnum f Phu Yen fylki.
HESTAMENN!
2 góðir reiðhestar til sölu að Laugarbóli í Mos-
fellssveit. Uppl. kl. 20—23 næstu kvöld. Skipti
koma til greina.
'IBÚÐIR TIL SÖLU
5 herb íbúð tilbúin undir fréverk við Alfheima.
2ja herb. íbúð tilbúin undir tréverk, í Hraunbas.
Einbýlishús í smíðum í Kðpavogi.
Hef fjársterka kaupendur að:
3ja og 4ra og 5 herb. fbúðum. f borginni og Kópavogi.
FASTETGNAMIÐSTÓÐIN Austurstrætí 12
Símar 14120, 20424 og kvöldsími 10974.
■