Vísir - 22.03.1966, Side 16
VISIR
Þriðjudagur 22. marz 19@6
Eldur í risíbúð
í Steinugerði
Á sunnudag um kl. hálf fimm
síðdegls, var slökkviliðið kvatt að
Steinagerði 7 í Smáíbúðahverfinu,
en það er einnar hæðar hús með
íbúð i risi.
Að því er lögreglan tjáði Vísi,
voru menn að vinna að breytingum
á rishæðinni, en skruppu frá í
kaffi rétt áður en eldurinn kvikn-
aði. Hafði einn starfsmanna hengt
úlpu á logandi rafmagnsperu sem
hékk á vegg og skildi hana eftir
þegar hann fór til kaffidrykkjunn-
ar.
En úlpan hefur sýnilega hitnað
smám saman unz það kviknaði í
henni. Varð fólk þess fljótt vart að
kviknaði var í og gerði slökkvilið-
inu þegar í stað aðvart. Er það
kom á staðinn var mikill reykur
á rishæðinni en eldur ekki að ráði,
enda var hann fljótt kæfður.
Skemmdir urðu þó nokkrar bæði '|
af eldi og reyk, en ekki sízt af
vatni, sem olli einkum skemmdum
á neðri hæðinni.
í fyrrinótt var slökkviliðið gabb-
að inn f Blesugróf. Klukkan langt
Framh. á bls. 11
Vlð boröið fremst t.h. verkfr. Landsvirkjunar Jóhann M. Maríusson og Rögnv. Þorláksson og standandl Gunnar Sigurðsson. Einnig sjást
Ilalldór Jóhannesson, skrifstofustj. og Jóhannes Nordal, formaður stjómar Landsvirkjunar, Eiríkur Briem framkv.stj.
Lægstu tilboð í rafula Búrfellsvirkj-
unar frúJapan, Svíþjóð og V. Þýzkal.
í gær voru opnuð tilboð í raf
ala Búrfellsvirkjunarinnar. Til-
boðin, sem borizt höfðu voru
21 að tölu frá 11 löndum m.a.
frá Japan, Italíu, Svíþjóð, Þýzka
landi, Sviss, Noregi, Bretlandi,
Spáni o. fl.
Tilboðin virðast vera all mis
jöfn og allt að því helmings
munur á lægstu og hæstu til-
Reynt
bílum
að bleypa stórum
yfír fjallvegi / dag
— en stórhríð í oðsigi og búizt við að vegir Bokist jafnóðum
Vegagerð ríkisins ætlaði í morg-
un að reyna að opna fjallvegi þá
sem iokuðust um helgina, en það
voru fjallvegir á Snæfellsnesi,
Brattabrekka og Holtavörðuheiði.
Tvísýna var þó talin á að það
myndi heppnast nema fyrir stærstu
bfla og var búizt við að slóðin
myndi teppast jafnharðan aftur.
Vísir átti í morgun tal við Hjör-
leif Ólafsson hjá Vegagerð ríkisins
og sagði hann, að útlitið væri yfir-
leitt ljótt á öllum þessum fjallveg-
um vegna hríðar, sem ýmist væri
brostin á eða útlit fyrir að skylli
yfir þá og þegar. Hjörleifur sagði
að hríðarveður væri bæði á Fróð-
árheiði og Kerlingarskarði, en þö
Vilja fá
útsölu
I
áfengis-
Keflavík
í vetur hefur mikið verið rætt
um það manna á meðal í Kefla-
vfk að áfengisútsölu yrði
komið þar upp á staðnum. Hef
ur ýtt undir þessar umræður
að bæjarstjómarkosningar eru
í vor og handhægt að hafa at-
kvæðagreiðslu samtímis þeim
um það hvort áfengisútsölu
skuli vera komið upp í Keflavík
eða ekki. Hefur bæjarstjórn-
inni í Keflavík nú borizt áskor
un frá 164 bæjarbúum um að
opna áfengisútsölu þar á staðn-
um. Verður málið tekið fyrir á
bæjarstjómarfundi í dag og þá
ákveðið hvort efnt verður til
atkvæðagreiðslu um það, og þá
í sambandi við bæjarstjómar-
kosningarnar í vor.
Ekki hefur verið almenn und
irskriftasöfnun í Keflavík út af
þessu máli heldur hafa nokkrir
listar verið látnir liggja frammi
á vinnustöðum, og þeir sem á-
hugsa hafa haft á málinu,
skrifað sig á þá.
Engin áfengisútsala hefur
nokkru sinni verið í Keflavík,
en einu sinni áöur hefur verið
efnt til almennrar atkvæða-
greiðslu um þaö hvort útsölu
skyldi komið á fót, var það
árið 1958 og var þá málið fellt.
Framh. á bls. 11
myndi verða reynt að ryðja báða
fjallvegina til að hleypa stórum
bflum í gegn, er biðu þess að kom-
ast yfir heiðarnar. En þótt það
Framh. á bls. 11
boðunum. Tilboðslýsingin er í
mörgum liðum en veigamestir
em þrír liðir, einn um tvo risa
rafala 38.889 kv. með 300 snún-
inga á min., einn um varastykki
í rafala og svo liður um við-
bótatilboð í fjóra rafala að auki,
sem Landsvirkjun æskir að
hafa frjálsar hendur um, hvort
keyptir verði innan fjögurra ára
eöa ekki.
Það er nokkrum erfiðleikum
bundiö aö bera tilboðin saman
á þessu stigi máls, þar eö sum
þeirra hljóða upp á ýmsa sér-
skilmála og einnig er í þeim
mörgum ekki gert tilboð f alla
liðí útboöslýsingarinnar.
Lægstu tilboöin virðast að
því að bezt verður séð frá fyrir
tækinu Mitsui í Japan, ASEA í
Svíþjóð og AEG í Þýzkalandi.
Eru þessi tilboð um 28—34
milljónir í þrjá rafala fyrir 105
þúsund kva stöð.
Auk þess kom mjög lágt til-
boð frá japanska fyrirtækinu
Mitsubishi, en ekki er enn vitað
hversu hagkvæmt það er, þar
eð ekki hefur komið fram að
hve miklu leyti flutningskostn
aöur sé innifalinn í tilboðsupp
hæðinni.
Öll fyrrgreind tilboð eru lægri
en áætlanir stjórnar Landsvirkj
unar reiknuðu með.
Harza Engineering Company
sá um gerð útboðsins, en það
var boðið út á alþjóðlegum vett-
vangi og er árangurinn 21 til-
boð frá 11 löndum auk þess
sem tekiö verður við þeim til-
boöum, sem sannanlega hefðu
komizt í póst fyrir daginn í
gær.
Sérfræðingar Landsvirkjunar
munu nú taka þessi tilboð til
athugunar og mun þess varla
langt að bíða, að uppvíst verði,
hvaða tilboði verði tekið.
HELGA MEÐ 50 LESTA
MEÐALAFLA í 9 RÓÐRUM
M.b. Helga kom í morgun til
Reykjavfkur af Breiðafjarðarmiö-
um með 60 lestir. Var þetta tveggja
nátta fiskur. — Hún hefir komið
með mest 71 lest úr róðri nú á
vertíðinni, og eitt sinn kom hún að
með 64.
Þetta var níundi róður Helgu á
vertíðinni og hefir afli hennar í
þeim numið samtals rúmum 450
lestum eða 50 lestum að meðaltali
í róðri.
Sex Skagabátar komu að í gær
kvöldi með samtals um 100 lestir.
Reykjavíkurbátar af nálægari mið
um voru með allt að 25 lestir hver.
Veður hefir verið óstillt á mið-
unum undangengna sólarhringa.
Loðnubátar eru í höfnum eða í vari.
Norðaustan stormur og éljagangur
var í morgun í Vestmannaeyjum.
Bæjarstjórnarkosningar verða í
kaupstöðum ogkauptúnum 22. maí
Nú fer að nálgast bæjarstjóm
arkosningar, en hinn 22. maí
n.k. eiga að fara fram bæjar-
stjómarkosningar f öllum kaup-
stöðum og kauptúnum. Mánuði
síðar eða 26. júnf fara fram
sveitarstjórnarkosningar í öllum
þeim hreppum þar sem kauptún
eru ekki.
Kjörskrá skal leggja fram
tveimur mánuðum áður en
kosningar fara fram, og
skal hún því lögð fram
i kaupstöðum og kauptún-
um frá og með deginum f dag.
Eiga bæjarstjómir að auglýsa
hvar hún liggur frammi og allir
hafa aðgang að henni. Kærur út
af kjörskrá skulu hafa borizt
bæjarstjómum fyrir 1. maf.
Framboð f bæjarstjórnarkosn-
ingunum eiga að berast fyrir 20.
apríl.
Hagstofa íslands hefur nú
gert yfirlit yfir fjölda þeirra
manna sem nú eru á kjörskrá.
Kemur f ljós aö í Reykjavík eru
nú á kjörskrá 45,623 en voru
41,715 árið 1962.
I Reykjavík og kaupstöðunum
samanlagt eru nú á kjörskrá
73,409 en voru áriö 1962 sam-
tals 66,485.
í kauptúnahreppunum sem
eru 39 talsins eru nú 14,987 á
kjörskrá en áriö 1962 voru
13,277 á kjörskrá.
Kauptúnahreppamir sem kjósa
á í 22. maí eru þessir:
Grindavfkurhreppur, Hafna-
hreppur, Miðneshreppur, Gerða-
hreppur, Njarðvíkurhreppur,
Garðahreppur, Seltjamames-
Framh. á bls. 11