Vísir - 11.07.1966, Blaðsíða 2
VÍSIR . Mánudagur 11. julí 1966.
KEFL VlKINGAR SIGRUBU AKUR-
EYRINGA MEÐ YFIRBURDUM 5:0
Finnbogason frá Akranesi og
dæmdi hann yfirleitt mjög vel.
herb.
Staðan:
í fyrstu deild
Eru nú komnir í efstu sætið dsumt Vul
Keflvíkingar sýndu heimamönnum á Akureyri sann
arlega í tvo heimana í leik liðanna í gær. Sigur þeirra,
5:0 var réttlátur, þeir voru ákveðnari í ölum leik
sínum, sérstaklega var vöm þeirra mjög sterk, en
Akureyrarliðið, með lítinn stuðning frá áhorfendum,
tók að vísu smáspretti, en datt aiveg niður þess á
milli. Sigur Keflavíkur er mun stærri, en menn höfðu
gert sér í hugarlund og eflaust verður liðið ekki auð-
unnin bráð í þeim leikjum íslandsmótsins, sem það
á eftir. Má segja, að með sigri sínum hafi þeir rétt
hlut sinn að mun, og séu mjög líklegir til að blanda
sér í baráttuna um efsta sætið í mótinu, en það hafa
aðdáendur liðsins ekki þorað að vona eftir fyrri leiki
Torfason sem beztu menn. í fram-
línunni voru þeir mjög góðir Karl
Hermannsson og Jón Jóhannsson
og léku oft skemmtilega saman.
Um Akureyrarliðið er það að
segja, að vöm þess brást algerlega.
Sérstaklega á það við um fram-
verðina alla. Jón Stefánsson, mið-
vörður var mjög mistækur. Fram-
línan tók smáspretti, en datt þess
á milli alveg niður. Þar var Skúli
Ágútsson beztur sem endranær,
lá aftarlega og reyndi að byggja
upp spil. Akureyrarliðið á mjög
negatviva áhorfendur og kom það
vel í ljós í þessum leik. Þeir reyna
ekki neitt að hvetja liðið og kalla
á það ókvæðisorðum, er eitthvað
gengur miður hjá því.
Dómari i leiknum var Guðjón
Staðan í fyrstu deild:
Akureyri—Keflavík 0—5 (0—3).
Keflavík 4 2 11 »—4 5
Valur 4 2 11 8—3 5
Akranes 4 12 1 5—5 4
KR 3111 3—3 3
Akureyri 4112 3—M 3
Þróttur 3 0 2 1 3—6 2
þess.
Annars áttu Akureyringar fyrsta
hættulega tækifærið í leiknum, sem
Valsteinn, vinstri útherji liðsins
misnotaði illa. Á 17. mínútu kom
fyrsta markið í leiknum. Karl
Hermannsson, innherji Keflavíkur-
liðsins skoraði það með skalla, en
Samúel í markinu var algjörlega
úr leik eftir rangt úthlaup. Á 25.
mfn. sóttu Akureyringar sig nokk-
uð, og á 28. mínútu brenndi Skúli
Ágústsson af af stuttu færi. En
Adam var ekki iengi í Paradís. Á
32. mín. skoruðu Keflvíkingar
annað markið. Var Jón Jóhanns-
son þar að verki. Hann renndi
boltanum í annað markhomið, eftir
að hafa unnið einvigi við Jón
Stefánsson, miðvörð Akureyring-
ana. Samúel 1 markinu gerði ekki
tilraun til að verja. Á 42. mín.
skoraði Jón Jóhannsson aftur, eftir
að hafa fengið langa sendingu inn
fyrir Jón Stefánsson, og þurfti
hann ekki annað en að renna
knettinum í markhomið, 3—0.
Þama brást Akureyrarvömin illa,
eins og oftar í leiknum. Það sem
Hvað gerir úrval-
ið í Laugardalnum
í kvöld?
í kvöld klukkan 8.30 fer fram á j
Laugardalsveiiinum leikur úrvals-
liðs SV-iands og úrvalsins frá
Fjóni, sem hér er statt um þessar
mundir. íslendingar hafa farið
heldur illa út úr síðustu viðureign-
um sfnum við Dani á knattspyrnu-
sviðinu og marga mun farið að I
lengja eftir hefndinni. Hvort hún
kemur í kvöld skal látið ósagt, en
óneitanlega væri það skemmtilegt.
Landsliðsnefnd hefur valið úrvals-
liðið og er það þannig skipað talið
frá merkverði til v. útherja: Einar
Guðleifsson, ÍA, Þorsteinn Frið-
þjófsson, Val, Bjami Felixson, KR,
Sigurður Albertsson, ÍBK, Anton
Bjamason, Fram, Ellert Schram,
KR, Hörður Markan, KR, Björn
Lárusson, ÍA, Jón Jóhannsson,
iBK, Helgi Númason, Fram, og
Axel Axelsson, Þrótti. Varamenn
em: Guttormur Ólafsson, Þrótti,
Ámi Njálsson, Val, Magnús Torfa-
son, IBK, Eyleifur Hafsteinsson,
KR og Hermann Gunnarsson, Val.
Dómari verður Magnús V. Péturs-
son.
BCnattspyrnumót unglinga hafið í Noregi:
Pólverjar unnu íslendinga, 5:0
— Englendingar leika við Uruguay
eftir var hálfleiksins sóttu Akur-
eyringar.
Síðari hálfleikur:
Á 10. mín. síðari hálfleiks
bregður Ævar, bakvörður Akureyr-
inganna Karli Hermannssyni og
Guðjón Finnbogason, mjög góður
dómari í leiknum, dæmir víta-
spyrnu alveg réttilega og úr henni
skorar Sigurður Albertsson ör-
ugglega, Á 24. mín. tekur Guðni
Kjartansson, bakvörður Keflavik-
urliðsins, aukaspyrnu á miðjum
vallarhelmingi Akureyringa og
spymir beint á markið, Jón Jó-
hannsson truflar markvörðinn hjá
Akureyringum með þeim afleið-
ingum, að knötturinn skoppar ró-
lega í markið, 5—0.
Á 25. mín. er Steingrími Bjöms-
syni brugðið illilega í vítateignum,
og er vítaspyma dæmd. Magnús
Jónatansson skaut, en Kjartan í
Keflavíkurmarkinu varði skotið
mjög vel og örugglega. Stuttu
síðar á Steingrímur skot i slá
Keflavíkurmarksms og augnabliki
síðar eiga Akureyringar skot
í stöng. Steingrímur Bjömsson
skorar síðan mark á 43. mín. en
það er dæmt af vegna rangstöðu j
og var það frekar harður dómur. j
Þannig lauk sem sagt leiknum með j
sanngjömum og öruggum sigri.
Keflavíkurliðsins, 5—0.
Eins og fyrr segir var sigur j
Keflvikinganna sanngjam eftir j
gangi leiksms. Þeir voru mun á-
kveðnari og fljótari á knöttinn,
vöm þeirra var mjög sterk með
Sigurð Albertsson og Magnús
Mesta mót knattspymunnar í,
heiminum, heimsmeistarakeppnin,
hefst í London í dag. Það eru sjálf-
ir gestgjafarnir, Englendingar, sem
ríða á vaðið með fyrsta leikinn og
leika þeir við Iið Uruguay. Samtals
eru þátttökuliðin í keppninni 16
talsins og er þeim skipt niður í 4
I riðla. Miklar getgátur hafa verið
undanfarið um, hvaða lið hreppi
heimsmeistaratitilinn og hallast
flestir að því, að Brazilíumenn
vinni hann í þriðja sinn í röð.
Næstir sem Ifklegir sigurvegarar
koma svo Englendingar, Rússar,
Ungverjar og Þjóðverjar, en betra
er að fara varlega í alla spádóma,
því að það hefur oft sýnt sig, að
allt getur skeð í knattspymu. Eins
og fyrr segir er liðunum skipt nið-
ur í fjóra riðla og er skiptrngfn
þannig:
A-riðill: England, Frakkland,
Mexico og Umgay.
B-riðill: Argentína, Þýzkaland,
Framh. á bls. 7.
Heimsmeistaramir í knattspyrnu, Brazilíumenn. Standandi frá v. Djalma Santos, Belini, Manga, Orlando.
Dudu, Rildo. Krjúpandi frá v. Garrincha, Ademir, Bianchini, Pelé, Reinaldo.
Pólverjar unnu íslendinga 5—0. inni sem gestir. Er þessi riðill tal-
íslenzka unglingalandsliðið (18 inn sá langsterkasti og Póiverjam-
ára og yngri) f knattspyrnu, sem j ir sagðir vcra nokkuð öruggir með
tekur þátt f Norðurlandamóti í! að vinna keppnina. 1 hinum riðl-
knatíspymu lék sinn fyrsta leik í ■ inum kepptu Noregur og Finnland
gær við Pólverja og fór leikurinn : og varð jafntefli, 2—2.
fram f bænum Horten í Noregi. j í frétt frá NTB segir að leikur
Leiknum lauk þannig að Pólverj-! Pólverjanna á móti íslandi hafi
amir sigruðu með 5 mörkum gegn ! sýnt að það veröi að telja
engu. öllum liðunum er skipt; Pólverjana nokkuð örugga með
niður f tvo riðla og em islending- j fyrsta sætið. Lið þeirra sé þraut-
amir f riðli m eð Svíum og Pól-! þjálfað, vel leikandi og spili mjög
verjum, en þeir taka þátt f keppn- I góða og hraða knattspymu. Sér-
staklega sé sókn þeirra sterk og
séu innherjar pólska liðsins á við
atvinnumenn.
Þá segir ennfremur að íslenzka
liðið hefði reynt eins og það hefði
getað, en vörn þess hafi ekki getað
komizt hjá því, að láta Pólverjana
skora fjórum sinnum í fyrri hálf-
leik. Eftir hlé hafi íslenzka liðið
aftur á móti komið inn á völlinn
eins og nýtt lið og hafi þeir f síð-
ari hálfleik átt a.m.k. 4 marktæki-
færi, en ekki hefði samt tekizt að
skora mark. Pólverjinn Kasalik
var talinn bezti maður vallarins
og skoraði hann 3 mörk. Þau tvö
fyrstu og hið síðasta, sem kom,
er tíu mínútur voru eftir af leikn-
um. Þá var og vinstri framvörður
þeirra góður. NTB-fréttastofan seg-
ir að beztu menn íslenzka liðsins
hafi verið Elmar Geirsson, Sævar
Sigurðsson og Halldór Björnsson,
en markvörðurinn, Magnús Guð-
mundsson hafði og verið mjög
góður í síðari hálfleik.