Vísir - 11.07.1966, Blaðsíða 15
VlSIR . Mánudagur 11. júlí 1966.
CATHERINE ARLEY:
TÁLBEITAN
15
KVIKMYNDASAGA
TÚNABiÓ
með svarinu.
„Hvemig kynntust þér, herra
Richmond?“
„Ég réðist á snekkjuna sem
hjúkrunarkona fyrir milligöngu
ráðningarskrifstofu.“
„Vissuö þér hve auðugur hann
var?“
„Það gat ekki farið fram hjá mér
til lengdar."
„Hvað gekk yður til, að þér smygl-
uðuð líkinu af eiginmanni yðar frá
borði og hingað inn í húsið?“
Hilda leit á hann. Hann hafði
ekki hækkaö röddina. Bar fram
spuminguna, rétt eins og hún væri
þýðingarlaus í sjálfu sér, en leit þó
ekki af henni.
„Ég bíð svarsins," mæiti hann
lágt og vingjarnlega.
„Ég kýs að láta þeirri spurningu
ósvarað".
Hún bjóst við að hann mundi
hreyfa mótmælum. En hann gerði
einungis að kinka kolli.
„Hafið þér verið gift áður?“'
',,Nei“.
„Eigið þér nokkur böm?“
„Nei“.
Hún gat ekki gert sér grein fyr-
ir tilganginum með þessum tveim
síðustu spumingum. Voru þær ein-
hver gildra, eða vildi hann aðeins
vita sem nánast um hagi hennar
„Hvað hugöust þér fyrir með lik-
ið af eiginmanni yðar? Finnst yður
það sjálfri ekki ótrúlegt, frú Rich-
mond, að þér hafið lagt svo mikið
á yður í því skyni, án þess að
það hefði einhvem fyrirfram ákveð
inn tilgang?"
Leynilögreglumennimir tveir bentu Hildu að koma með sér.
T
il
Z
A
N
Manstu eftir nokkru frá þessu fyrsta
skeiöi ævi þinnar, Tarzan?
Nei, Pétur. Pabbi skrifaöi sitt af hverju
á frönska í dagbók sína, — um allt, sem
gerðist. Það var heppilegt fyrir mig, þvi
annars hefði ég ekki vitað neitt um fortíö
mína.
Hún reyndi að brosa.
„Veitti enginn um borð því at-
hygli, að hann var látinn? Þér svar-
ið þvi ekki, enda er spumingin í
sjálfu sér óþörf. Ekki gátuð þér
keypt alla áhöfnina til að þegja.
Þar að auki eru þeir ófáir, sem
eiga í einhverjum útistööum við
lögregluna, og eru alltaf reiðubúnir
að veita henni upplýsingar, ef svo
ber undir, i von um að hún sjái
þá fremur í gegnum fingur við þá.
Fyrst enginn sagði okkur neitt,
þýðir það að enginn hafi orðið neins
var. Samkvæmt því hlýt ég að
álykta, að þér séuð frábær leik-
kona og ráðsnjöll, því auðvelt hef-
ur það áreiðanlega ekki verið að
leyna dauða gamla mannsins. Hve
lengi eiginlega?“
„Það hef ég ekkert sagt um“.
„Jæja, ég kemst aö raun um það
í kvöldj.þegar krufningunni er lok-
ið. En ég verð að viðurkenna það,
að meira en litla leikhæfileika hef-
ur þurft til að smygla líkinu frá
boröi, fyrir augum forvitinna áhorf
enda. Hefði bílstjóranum ekki fund
izt þetta eitthvað grunsamlegt og
gert okkur viðvart, mundi enginn
hafa fengið neitt að vita og til-
gangur yðar heppnazt. En þér vilj-
ið ekki segja mér hver hann var?“
Hún hristi höfuöið, og þar sem
sigarettustubburinn var farinn að
brenna góma hennar, síökkti hún í
honum á öskubakkanum.
„Eigið þér sjálf peninga, frú Rich
mond?“
„Nei“.
„Hve gömul eruð þér?“
„Þrjátíu og fjögurra ...“
„Bandarískur ríkisborgari?"
„Nei, Þýzkur“.
„Þá verð ég að hrósa yður fyrir
það hve frábærlega þér talið ensku.
Hafið þér verið áður í Bandaríkj-
unum?“
„Þetta er í fyrsta skiptið, sem ég
kem hingað".
„Hvers vegna myrtuð þér mann-
inn yðar, frú Richmond?"
Hilda starði á hann furðu lost-
in og vildi ekki trúa sínum eigin
I eyrum. Svo tók hún andköf og
■ hrópaði upp yfir sig.
„Ég myrti hann ekki. Ég sver,
að ég myrti hann ekki...“
Yfirlögregluþjónninn benti henni
að sitja rólegri.
„Missið ekki taumhald á yöur,
frú Richmond“, mælti hann sef-
andi. „Þetta var ekki annað en
i blindskot, þvi að ég get ekki vit-
að hvort um morð hefur verið að
ræða fyrr en skýrslan um krufn-
inguna liggur fyrir. Það er að
minnsta kosti rökrétt ályktaö, er
ekki svo“.
Það var með naumindum að
I henni tókst að ná aftur valdi yfir
! tilfinningum sínum. „Ég svara ekki
orði fyrr en ég hef ráðfært mig
við lögfræðing", mælti hún, án
þess að' Kta framan í Kané':
Hann stakk blýantinum í brjóst-
vasa sinn, fékk sér sígarettu úr
pakkanum, sem hann hafði áður
rétt að henni. Kveikti sér í henni
og mælti að því búnu við Hildu:
Sefjum upp
Mælum upp
Loftfesting
Veggfesting
lindargMu 25
simi 13743
*...HE ALSO HNJOVE7 KEM’ING TO ,
/AOTHEK-THEKEBV RELIEVING THE
AAONOTONY OF THEIK STRANGE LIFE..
' BUT OME VEAK TO THE VKi OF MV BIRTH-
MOTHEK 7IEP... FATHER NEVEK FULLY
REALIZE7 THE FEAKFUL KESPONSlBlHTy
OF TRYING TO KNSE AM INFANT CH1L7! *
Hann hafði líka gaman af að lesa upphátt
fyrir mömmu og lffga þannig upp á fá-
breytileikann í lífi þeirra.
En daginn fyrir fyrsta afmælisdag minn
dó mamma. Pabbi gerði sér ekki fyllilega
grein fyrir því, hve mikill ábyrgðarhluti
það var að reyna að ala upp smábam.
Stráhattar
Nýkomið mikiú úrvai
af ódýrum
STRÁHÖTTUM
Stór númer, aðallega
í dökkum litum.
Verð kr. 495,00.
HATTABÚÐIN
Huld
Kirkjustræti
Sími 13660
METZELER hiölbarðarnir • eíT|. þekktir
fyrir gæði og endíngu*
Aðeins það beztá er nóga gotf.
Sölusfaðir.j HJÖLBARÐA-
&BENZINSÁLAN
v/Vitatorg. simi23900
BARÐ1NN9É ,
.Árniúli 7 simt 30501
ÁLMENNA METZELER omloSiS
VERZtUNARFÉlAGR)”
SKIPHOLT 15 SÍDUMÚU 19
S(MI 10199 Si/yii 35553
lacjnjngin
betur
meö
W
wLeíf
Elanz-
iirlestli
glans
hárlagningar-
vökva
Hllt»ðU)»UC0lk
fSLENZK ERLENDAVEKtyNARFÉlAGIÐ HF
rtAMUIOUUKtTTIKVI AMAHTI NI1
■waaa