Vísir - 01.11.1966, Qupperneq 3
VlSIR. Þriðjudagur 1. nóvember 1966,
3
Þessi mynd er tekin við háborðið. Þar eru talið frá vinstri: Bjami Bragi Jónsson, formaður Hagfræðafélags íslands, próf. Árni Vilhjálmsson, dr. Gylfi Þ. Gíslason, viðskipta- og
menntamálaráðherra, Steinar Berg Björnsson, formaður Félags viöskiptafræðinga, próf. Ólafur Björnsson, Jónas H. Haralz, forstöðumaður Efnahagsstofnunarinnar, og próf. Guð-
laugur Þorvaldsson, ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu. Á myndinni sjást einnig frúr þeirra.
Eins og sagt hefur verið frá
í fréttum er um þessar mundir
liðinn aldarfjórðungur frá bví að
kennsla í viðskiptafræðum hófst
við Háskóla íslands. Að vísu
hófst kennsia við Viðskiptahá-
skólann nokkru áður eða árið
1938 en 3 árum síðar var Við-
skiptaliáskólinn sameinaður Há
skóla íslands og eftir það nefnd
ist deild sú, sem annaðist
kennslu í viðskiptafræðum Laga
og hagfræðideild. Árið 1962 voru
þessar tvær deildir siðan skild
ar í sundur, og eftir það nefndist
deildin Viðskiptadeild Háskóla
íslands og svo hcitir hún enn
þann dag í dag. Á þessum aldar-
fjórðungi hefur vissulega margt
breytzt varðandi kennslu- og
kennslufyrirkomulag í deildinni
um leið og námsefni hefur tekið
breytingum. Árið 1964 var gerð
allvíðtæk skipulagsbreyting.
Náminu var skipt í tvo hluta,
fyrri og síðari hluta. Um
leið var bætt við nokkrum
nýjum námsgreinum, og í fyrsta
skipti í sögu Háskólans var tek-
ið upp á því að gefa nemendum
kost á að velja milli nokkurs
hluta námsgreina. Þá voru og
sett tímatakmörk varðandi
Ijúkningu prófa frá deildinni skv
nýja skipulaginu verður nem-
andi hafa lokið fyrri hluta prófi
mlnnst tveim árum eftir að
hann innritast og mest þremur
árum eftir að hann innritast í
deildina. Hið sama er að segja
um síðarahluta próf. Af þessu
má sjá, að nemandi sem hyggst
leggja stund á nám í viöskipta
fræðum getur ekki lokið námi
á skemmri tíma en fjórum ár-
um, en hann má heldur eigi
vera lengur en sex ár við nám.
Við þessa tímatakmörkun má
því segja að skapist nokkurt að-
hald.
Kennarar við deildina eru nú
3 prófessorar, þar af einn sett
ur, þá eru 2 dósentar og all
nokkrir aukakennarar. Að bví er
forráðamenn deildarinnar hafa
látiö í Ijósi, vonast beir til, að
fjórða prófessorsembættið verði
lögfest í vetur.
Mun það vera vegna aukinnar
aðsóknar að deildinni um leið
og gerðar eru auknar kröfur um
sérmenntun prófessora. í vetur
er próf. Ámi Vilhjálmsson deild
arforseti og próf. Ólafur
Björnsson er varaforseeti Við-
skiptadeildar.
Félagslíf viðskiptafræðinema
má segja að sé mjög líflegt. Fé-
lagið gengst á ári hverju fyrir
kynnisferðum þar sem fyrir-
tæki eru heimsótt og hafa kynn
isferðir þessar náö miklum vin
sældum meöal deildarmeðlima
Þá hefur og deildarfélagiö haft
allnáið samstarf við erlenda stú
denta sem stunda sambærilegt
nám og viðskiptafræöinemar
hér á landi. Formaður Félags
viðskiptafræðinema nú er Stein-
ar Berg Bjömsson. Þá má aö
lokum geta þess, að Félag við
skiptafræðinema gefur út all-
myndarlegt tímarit, Hagmál, þar
sem fróðir menn rita greinar
um efnahags- og fjármál.
Til þess að minnast hinna
merku tímamóta í kennslu við
skiptafræða við Háskóla íslands
hét Félag viðskiptafræðinema
myndarlega afmælishátíö á laug
ardagskvöld að Hótel Borg en
fyrr um daginn hafði verið há-
tíðarsamkoma f Hátíðarsal Há-
skóla íslands.
Myndsjá Vísis birtir hér
nokkrar myndir, sem teknar
voru á samkomunni að Hótel
Borg en þar var eins og nærri
má geta samankomiö margt
stórmenna.
Á þessari mynd sjást m. a. taliö frá vinstri: Torfi Ásgeirsson ráðuneytisstjóri, Klemenz Tryggvason
hagstofustjóri, K. Guðmundur Guömundsson dósent og Svavar Pálsson dósent.
Nokkrir viðskiptafræðlnemar á afmælishátíðinni.