Vísir - 09.03.1967, Blaðsíða 4

Vísir - 09.03.1967, Blaðsíða 4
Hún er áhrifamesta konan í Bretlandi - Marcía Williams er ung og falleg - hún er einkaritari Wilsons og sumum finnst hún hafa of mikið vald yfir honnm JAMES BOND hefur löng- um þótt harður af sér í bardaga, hvort sem hann hefur þurft að berjast við Goldfinger, Dr. No eða einhverja aðra slíka paura. Sean Connery, sá sem stendur að baki James Bond er einnig harð- ur baráttumaður og velur sér ekki baráttumál af lakara taginu. Nú hefur hann meira að segja sagt brezku' stjóminni stríð á hendur. I-íann Meldur því fram aö England kúgi Skotland, en sjálfur er Conn ery eins og kunnugt er Skoti.. Þessi skoðun Sean Connerys kom fram í kosningabaráttu skozka stjómmálamannsins Ge- orge Leslir, þegar hann var að reyna að vinna sæti í brezka þinginu. Sem „tromp“ í kosninga baráttunni gerði hann opinbert bréf frá Sean Connery, þar sem hann segir: — Ég er sannfærður um að við, með allan okkar styrk og dugnað, erum einfær um aö gera Skot- land að ríku, áreiðanlegu og sjálf stæðu Iandi, sem mun vinna virð- ingu alls heimsins. Til þess að undirstrika þessa skoðun sína er sagt að Connery hafi látið tattóvera á sig orðin „Scotland forever“. Þessi orð fáum- við þó ekki aö sjá á briósti hetjunnar þegar hann bregður sér næst í gerfi Jam Bond bví að Bond myndafram- leiðandinn mun sjá um að þessi orð verði vel hulin með farða. Elizabet drottniny er jafnan tal in valdamesta konan í Bretlandi, en svo er þó ekki. Það stendur ein kona henni framar, Marcia Williams. Hver er þessi Marcia Willi- ams ? spyrja nú margir, en i Bretlandi spyrja víst fáir þessarar spumingar, þvf að allir vita að Marcia Willlams er einkaritari Wilsons forsætisráðherra. Marcia Williams nýtur mikillar virðingar og aðdáunar, þ. e. a. s. þeirra sem hlynntir eru Wilson — andstæðingar hans óttast hana. Fræg er sagan um að hún eigi að hafa svarað háttsettum ráðuneyt- isstarfsmanni, er hann þurfti að spyrja hana einhvers: „Því mið- ur hef ég ekki tíma núna — en kannski getið þér talað við for- sætisráðherrann í staðinn'. Marcia Williams er 33 ára að aldri og hefur verið einkaritari Wilsons f 10 ár. Margir háttsett- ir starfsmenn eru mjög afbrýði- samir vegna þess álits, sem hún nýtur, en vinir og nánustu sam- starfsmenn Wilsons lofa hana og prisa gáfur hennar, dugnaö og skipulagshæf ileika. Vinnan kostaði eiginmanninn Þessi fallega stúlka — því að falleg er hún — var aðeins 23 ára, þegar hún hóf starf f stöðv- um verkamannaflokksins og gerö ist einkaritari Wilsons. Þá hafði hún nýlokið háskólaprófi í sögu. Hún var gift verkfræðingi, en starfið fyrir flokkinn tók hug hennar allan og eftir fjögurra ára hjónaband skildi hún við manninn. Hún hafði svo mikið að gera hjá Wilson að hún mátti ekki vera að því að vera gift. Marcia fór meö Wilson í kosn- ingaleiðangra og var við hans hlið í lestunum, á blaðamanna- fundum á hótelum og annars staðar þar sem hann fór. Myndir voru teknar af henni með Wilson og konu hans og frú Wilson hef- ur lýst því yfir að Marcia sé fjöl- skylduvinur. Marcia fylgir Wilson, þeg- ar hann fer f. opinberar heim- sóknir til annarra landa og fór m. a. með honum til Moskvu í fyrra. Eftir heimkomuna fékk Wilson fyrirspum i þinginu um hver hefði greitt fargjaldið fyrir hana. „Hún borgaði farmiðann sjálf“, svaraði Wilson og þar með var umræðu um það mál lokið — opinberlega. Þar sem Wilson er þar er Marcia Þegar Wilson hitti Ian Smith forsætisráðherra Rhodesiu í des- ember, en það fór allt fram með mestu leynd eins og menn minn- ast ,þá var Marcia með honum. Wilson segir sjálfur að Marcia sé duglegasti einkaritari sem hann hafi nökkum tíma kynnzt og það sé ekki óalgengt að vinnu dagur hennar sé 18 stundir. Margir háttsettir embættis- menn svo 'og íhaldsmenn sem eru „afbrýðisamir“ halda þvi fram að Marcia hafi alltof mikið vald yfir Wilson. — Eiginmaður hennar var f^lagi I kommúnista- flokknum og sjálf hefur hún ver- ið mjög vinstri sinnuð. Eins og vænta má hafa mörg blöð gefið í skyn að samband Wilsons og Marciu sé annað og meira en það sem það „á‘‘ aö vera. „Konan með glaðlegu aug un og járnviljann er. alls staða með. Þau eru fá leyndarmál sem hún veit ekki,“ skrifaöi brezka blaðið News of The World og fyrirsögnin á grein- inni um Marciu var: „í forsal valdsins". Fjölskylduvinur — trúnaðarvinur Hvert svo sem samband Wil- sons og Marciu er, þá ber ekki á öðru en frú Wilson sé ánægð með ástandið — og vlst er að Marcia er einn nánasti trúnaðar- vinur Wilsons. Þegar Wilson flutti inn í Down- ing Street 10 hneyksluðust marg- ir á því að hann innréttaöi skrif stofu fyrir Marciu í einu fínasta herberginu í húsinu, svokölluðu VlPherbergi, þar sem venja var að vísa mikilsháttar mönnum inn er þeir biðu eftir forsætisráðherr anum. Þetta herbergi er næst herbergi ráðherrans. Marcia er eina konan I hópi Wilson forsætisráðherra með konurnar tvær: Marcia, einkaritarinn, til vinstri, og eiginkonan Mary til hægri. ráðgjafa Wilsons og titill hennar þar er „Personal political secre- tary“ — og af framansögðu ætti enginn vafi að leika á að hún er áhrifamesta konan í Bret- landi í dag, þótt hún beri hvorki kórónu, veldissprota né fínan tit- il. „Takk, elsku Cassini... Hér er franska ljósmyndafyrir sætan Kyra að faðma tízkufröm uðinn Oleg Cassini og ástæðan er sú að hún er svo glöð yfir því að hann á að teikna búning- ana sem húii á að klæðast í ' fýrstu kvikniýndinni sém hún leikur í — „Natt Helm“, sem tekin verður I HoIIywood. Kyra, sem er 23 ára, er ein af vinsælustu forsíöustúlkunum í Frakklandi og eftir að hafa séð myndir af hcnni fékk Hollywood-kvikmyndafélagið Columbia áhuga á henni og vildi gera úr henni leikkonu. En Kyra afþakkaði boðið því að hún kvaðst ekki geta hugsað sér að yfirgefa París. En Columbia- menn voru ekki af baki dottnir. Þeir fengu tízkufrömuöinn Cass ini í liö með sér og fengu hann til að reka erindið. „Þegar Cassini sagði mér að hann væri búinn að teikna alla kjólana handa mér fyrir mynd- ina gat ég ekki sagt nei“, sagði Kyra, sem hingað til hefur að- eins veriö þekkt áf fornafninu. Eftimafn hennar er Radistcheff og það nafn hyggst Columbia nota þegar að því kemur að kvikmyndin verði auglýst og síöar sýnd. Torfæra í Kópavogi „Kópavogsbúi“ skrifar: „Ég ætla að biðia þig að koma á framfæri tilmælum um dálitla vegaviðgerð. Á Hafnarfjarðar- veginum á vegamótunum gegnt Blómaskálanum í Kópavogi var einhvem tíma í haust nauðsyn- l«gt að grafa í gegnum akbráut- ina og skerða þar með malblk- ið. Þegar fyllt var upp í aftur, misseig skurðurinn og voru gerð ar lagfæringar í fyrstu, og síða- an sett malbik eða olíumöl, en siðan hefur myndazt slæm geil i vcginn, og er svo búið að vera Iengi án þess að borið hafi ver 18 vlð aö laefæra brautina. Þó að tiðarfar á vetrum sé ekki gott tU vegaviðgerða, þá er þama um of mikla umferðar- götu að ræða til aö ekki sé látln fara fram bráöabirgöaviögcrö á þessu vonda hvarfi, sem verð- „Ég las einhvern tima í haust blaðagrein um umferðarmál, þar sem talið var, að ungir menn, fram, hvort ekki væri nauð- synlegt að færa upp aftur lág- marksaldur þeirra, sem hafa ur að haida við, þar til varan- Ieg viðgerð getur farið fram. Kópavogsbúi." Ungir glannar Borizt hefir bréf um unga menn, sem gerast glannafengn- ir á bílum : nýbúnir aö taka próf, yllu oft árekstrum og umferðaróhöppum vegna of hraðrar keyrslu og gá- leysis. Ungir menn eru oft með stór og kraftmikil „tryllitæki“, sem þeir ösla á í umferðinni, til- litslausir um allt og alla. Vegna þessa hefir því oft verið slegið Ieyfi til að aka bíl. Ég slæ því fram þeirri hugmynd, viðkom- andi aðilum til athugunar, hvort ekki gæti verið hentugt, að öku- skírteini t.d. 17 ára unglings væri miðað við akstur þifreiðar sem ekki hefðu of stórar vélar, og væri sem sagt stílað á há- marks-hestaflafjölda bifreiðar- innar. Þannig mætti hefta “tryllitækja“akstur 17 ára gam alla táninga, en ckki er eins hægt að „gefa 1“ á litlu bilun- um. Að loknum eins árs akstri á smábil mætti gefa út „fullt“ ökuskírteini, ef ekkert hefði komið fyrir á smábílnum. Kosturinn við að hafa glanna á smábíl er, að ef þeir lenda í árekstri eða öðru slíku, þá valda þeir síður stórspiöllum á öðr- um farartækjum. Bið ég þig að taka betta til athugunar. Öku-Þór.“ Ég þakka bréfin og kem þeim hér meö á framfæri, viökomandi aðilum til athugunar. Þrándur í Götu.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.