Alþýðublaðið - 07.04.1966, Qupperneq 9
ursborgar árið 1703 var gert páska
egg, aem'var í'íullu samræmi við
hina gömlu hefð. J>egar það vár
opnað, apratt upp lítii gullstytta
sem spennt var niður með fjöður.
Gullstyttan var af stofnanda borg
arinnar Pétri mikla, á hestbaki.
í tilefni af opnun Siberíujárn-
brautarijinar' fékk keisarafrúin
geysilega dýrmætt páskaegg úr
platínu og á það voru merktir
allir helztu viðkomustaðir frá St.
Pétursborg til Vladivo tock. Inni í
egginu var nákvæm eftirlíking af
járnbrautinni og var hún einnig úr
platínu.
En þegar heimsstyrjöldin 1914
— 1918 brauzt út fór páskaeggjun
um að hnigna. Nú var ekki lengur
auðið að leyna því, sem var að
gerast innan landamæra ríkisins
og úti í hinum stóra heimi. Árið
1915 bjó Fabergé til Rauða-kross
páskaegg úr hvítum glerjungi á
silfurgrunni með tveimur rauðum
krossum og myndum af stórher
togaynjunum Tatíönu og Olgu í
Rauða kross búningum.
Síðan gekk árið 1916 í garð.
Stríðið harðnaði og páskaegg þess
árs var úr stáli og uppi á fjórum
fallbyssukúlum. Innan í því var lít
il mynd úr stáli af keisaranum
og syni hans í viðræðum við her
foringja á vígstöðvunum.
Þetta páskaegg var síðasta gjöf
keisarans til konu sinnar. Talið
er, að Fabergé hafi gert um 57
•keisaraleg páskaegg um dagana.
Mörg þerra eru til enn þann dag
í dag, sum í eigu brezku konungs
fjölskyldunnar, önnur í Sovétríkj
unum. Sum eru líka á opinberum
söfnum eða einkasöfnum víða :im
heim. Flest páskaeggin voru ó
trúlega falleg og einstæð listaverk.
En fyrirmynd þeirra allra er hænu
eggið: tákn lífsins, upprisunnar
og frjósemi vorsins.
Páskaegg þetta er eitt hið skrautlegasta, sem veriff hefur í
eigu Rússakeisara. Þaff er úr ljósrautfum glerungi, skreytt meff
liljum, blómin eru úr perlum og litlum demöntum.
OLIVETTI
býður yður fjölbreytt úrval af
hvers konar reikni- og samlagn-
ingavélum.
Allt frá kr. 3.840,00
til - 47.750,00
Árs ábyrgð — fullkomin viðgerðarþjón-
usta.
G. Helgason & Melsteð hf.
Rauðarárstíg 1 — Sími 11644.
i
_ |
Hliðgrindur
Fjölvirkinn Kópavogi
Símar: 40450 og 40770.
------------------------------------
I
Steypuhrærivélar :
Fjölvirkinn Kópavogi [
Símar: 40450 og 40770. j
Jeppakerrur
Fjölvirkinn Kópavogi
Símar: 40450 og 40770.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 7. apríl 1966 g,