Alþýðublaðið - 07.04.1966, Síða 11
t=RitstjórS Örn Eidssonj^f^^^
Lið íslands sem sigraöi Skota i janúar.
Hafa skal það er
sannara reynist
3. Po!ar Cup keppnin í Höfn um páskana:
Öll Norburlöndin taka
þátt í mótinu
III. Polar Cup keppnin hefst í
Kaupmannahöfn á föstudaginn
langa og lýkur á Páskadag. Mótið
er jafnframt Norðurlandameist-
aramót í Körfuknattleik og senda
Norðurlöndin öll fimm, lið til
keppninnar. íslenzka liðið mun
fara utan á skírdag og koma heim
aftur á 2. páskadag.
Polar Cup keppnin hófst í Stokk
hólmi árið 1962 í tilefni af 10
ára afmæli sænska körfuknatt-
leikssambandsins. Gáfu Svíar veg-
legan blkar úr sænskum kristal,
sem farandgrip, er keppa skal um
eftir sérstakri stigatöflu. Pinnar
hafa sigrað glæsilega á þeim 2
Polar Cup mótum, sem haldin hafa
verið, Svíar hafa hlotið arinað
sæti, íslendingar þriðja og Danir
Körfuknattleiksfélög!
Frestur til að senda þátttöku-
tilkynningar í bikarkeppni KKÍ
árið 1966 hefur verið framlengdur
til 15. apríl. Eftir þann tíma verð-
ur ekki tekið á móti þátttökutil-
kynningum. — KKÍ.
Aðalfundur Knattspymufélags-
ins Fram verður haldinn í félags
heimilinu miðvikudaginn 13. apr.
og hefst kl. 20,30.
fjórða, en Norðmenn hafa ekki
sent lið á keppnina fyrr en nú.
Norðurlandameistararnir, Finn-
ar, hafa verið í sérflokki á þessum
mótum. Þeir hafa leikið körfu-
knattleik síðan árið 1938 og hafa
langmesta keppnisreynslu þessara
liða. Finnar náðu góðum árangri
á Olympíuleikunum í Tokyo og á
Evrópumeistaramótinu í Rúss-
landi sl. sumar hlutu þeir tólfta
sæti eftir að hafa verið óheppnir
og tapað leikjum með nokkiu-ra
stiga mun.
Svíar hafa haldið öðru sæti á
Polar Cupnum, en voru næstum
búnir að tapa fyrir íslendingum
í Helsinki 1964.
Það hafa orðið miklar framfar-
ir i körfuknattleik í Svíþjóð und-
anfariö. Svíar hafa sent efnilega
körfuknattleiksmenn til Banda-
rfkjanna á skóla þar, svo sem
Hans Albertsson 200 sm. og Kjell
Rannelid 201 sm., ennfremur hafa
þeir fengið bandariska þjálfara og
haldið uppi sérstökum æfingabúð-
um.
I
Danir töpuðu fyrir íslendingum
með einu stigi í Helsinki og munu
ákveðnir í að hefna harma sinna
á heimaleikvelli, enda hafa þeir
ákveðið að leiknum við íslendinga
verði sjónvarpað.
Við höfum leikið f jóra landsleiki
við Dani, tapað tveimur, sem
leiknir voru í Danmörku, en unnið
tvo á hlutlausum velli.
Norðmenn senda nú lið í fyrsta
skipti á Polar Cup. Norskur
körfuknattleikur er að mestu ó-
þekkt stærð, hins vegar er þó vitað
að körfuknattleikur á vaxandi vin-
sældum að fagna þar í landi og
hefur íþróttin verið kennd í skól-
um um árabil.
íslenzka landsliðið er þannig
skipað:
Örn Birgis, Einar Bollason,
Agnar Friðriksson, Hólmsteinn
Sigurðsson, Hallgrímur Gunnars-
son, Kolbeinn Pálsson, Ólafur
Thorlacius, Gunnar Gunnarsson,
Þorsteinn Hallgrímsson, Einar
Matthíasson, Kristinn Stefánsson.
Meðalaldur liðsins er tæplega 22
ár, meðalhæð 188,2 sm. og sam-
eiginlegur landsleikjafjöldi er 89
að viðbættum 16 unglingalandsl.
Aðeins einn r.ýliði er í liðinu að
Framhald á 15. síðu
Stúdentar sigr
uðu í II. deild
Stúdentar sigruðu í II. deild ís-
landsmótsins f körfuknattleik að
þessu sinni og leika í I. deild
næsta ár. Þeir unnu Skarphéðinn
í úrslitaleik með 49 gegn 44.
, „Miklir menn erum við Hrólfur
minn,” var einhvern tíma sagt.
Þessi setning kom mér í hug eftir
lestur fimm dálka rammaklausu
„Alf” á íþróttasíðu Tímans um
aðalfund KRR, sem fram fór í síð-
ustu viku. „Alf” er ungur og á-
hugasamur íþróttablaðamaður og
um margt snjall, flytur oft ná-
kvæmar og fróðlegar fréttir og
greinar í blaði sínu. En stundum,
og því miður fulloft lætur hann
skapið hlaupa með sig í gönur.
Þetta er gjarnan ungra manna
siður og er varla til annars en
brosa að því. Þó getur slíkt geng
ið of langt og þannig fór í áður-
nefndri grein.
Á sl. hausti barst KRR beiðni
frá söfnuninni „Herferð gegn
hungri” um styrktarleik. — Mál
þetta var rætt á stjórnarfundi og
ekki talið fært að verða við þessu
af ýmsum ástæðum. Eins ög „Alf”
ætti að vera kunnugt, sem einn af
forystumönnum knattspyrnunnar í
Reykjavík, er leikjafjöldi hér
orðinn það mikill, að erfitt er um
vik. Það er því ávallt vandkvæð-
um bundið að koma fyrir auka-
leikjum. Sú var þó ekki aðalor-
sök synjunarinnar, heldur, að KRR
voru ávallt að berast beiðnir um
Ieiki í þágu líknarstofnana. — Á
sínum tíma var því gerð samþykkt
um, að neita öllum aðilum um
slíka leiki. Það er erfitt að gera
upp á milli hinna ýmsu góðgerða-
stofnana. f greininni í Tímanum
segir „Alf” að Ólafur Jónsson hafi
sagt í ræðu á aðalfundinum, að
KRR-menn skorti dómgreind til að
gera upp á milli líknarstofnana.
Hér er sannleikurinn meðhöndl-
aður á frjálslegan hátt, en það er
því miður ekki eins dæmi á þess-
ari arinars „ágætu” iþróttasíðu,
„Alf” ræðir mjög fjólglega um
þá miklu viðurkenningud), sem
íþróttasíða Tímans hafi hlotið I
sambandi við þetta mál (sei, sei,
sei). Varla hafi verið um annað
mál rætt á aðalfundinum o.sfrv.
Það er rétt að nokkrar umræður
spunnust um þetta leiðindamól á
fundinum, en það er hæpið að
halda því fram, að þær umræður
hafi verið viðurkenning fyrlr Tím-
ann. Íþróttasíða blaðsins kom af
stað moldviðri um málið algerlega
að ástæðulausu oe vonandi gegn
betri vitund. en álítur það síðan •
viðurkenningu fvrir sig, að það
skuli rætt á aðalfundi Knattspyrnu
ráðsins. Hvað er eiginlega að
manninum? í atkvæðagreiðslu um
stefnu KRR í málinu, stóð aðal-
fundurinn nær einróma með
stiórninni. Tiilaga um traust til
stiórnarinnar. var og staðfesting
á fvrri sámb. sem var gerð með
öllum atkvæðnm allra fulltrú-
ánna gegn einn. Sá sem greiddi
atkvæði á móti var einn af full-
trúum Knattspyrnufélagsins Fram
og formaður knattspyrnudeildar
félagsins og iþróttaritstjóri Tím-
ans, Alfreð Þorsteinsson!
Að lokum fer „Alf” nokkrum
orðum um skrá í skýrslu stjórn-
arinnar yfir fundarsetu ráðs-
manna. Honum finnst greinilega
lítið til um slíka skrá og fer um
hana háðslegum orðum, talar um
rúsínuna i pylsuendanum o.s.frv.
Þarna fór þessi ungi rpaður út
á hálan ís. Að mínu áliti á ekkl
síður að skrásetja fundi og stört
þeirra, sem inna af höndum sjálf
boðavinnu í þágu íþróttahreyfing-
arinnar, en t. d. íþróttaafrek. —
Störf þessara manna eru ómetan-
leg, þeir fórna mörgum fristund-
unum fyrir íþróttirnar, og of oft
er vanþakklætið einu launin, sem
þessir menn fá. Enda fer þeim nd
óðum fækkandi, sem fást til slíkra
starfa.
Þetta ætti „Alf” m. a. að hafa
í huga, áður en hann mundar
„sensasjons”-penna sinn næst. —.
Sanngjörn og málefnisleg gagn-
rýni er sjálfsögð og nauðsynleg
fyrir íþróttahreyfinguna sem aðra
en naglaleg og óviðurkvæmileg
skrif, eins og þau, sem „Alf” léf
frá sér fara um áðurnefndan styrkt
arleik eru engum til gagns né
sóma og sízt honum sjálfum.
Einar Björnsson.
Frétlaritari Alþýðu-
blaÖsins á Polar
Cup um páskana
Fréttaritari Alþýðublaðsins St
Polar Cup mótinu í Kaupmanna-
höfn um páskana verður Guðj^n
Magnússon, en hann hefur skrif- '
að um körfuknattleik fyrir íþróttæ
síðuna í vetur. Umsögn Guðjón* <
um keppnina birtist í fyrsta blaO-
inu eftir páska — á miðvikudag.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 7. apríl 1966 1$.
<