Alþýðublaðið - 07.04.1966, Blaðsíða 16
sidan
UT VIL EK
Aðeins ein kynbomba get-
ur á hálfri klukkustund ó-
nýtt verk sem í hálft ár hef-
ur verið byggt upp af hundr
að herprestum. Þegar hinar
línusterku konur hafa yfir-
gefið orrustuvöllinn eru her-
mennirnir í uppnámi og
fjandinn er laus ..
Alþýðublaðið.
Óskiip er að sjá á eftir öllu
'|»essu fólki í hafiö, sagði gamla
konan, þegar hún sá Moggaun
*f gær með borgarstjórnarlistan
•um. . „
Karlinn var settur í krók-
inn í gær fyrir að vera of
töff í túlanum. Sigga systir
sagðist þurfa að fá sér nýtt
dress á tíu þúsund spírur.
Þá laumaði karlinn út úr
sér: Auðvitað þarf stelpan
að fá nýjan kjól til þess að
- hún hafi eitthvað til að fara
úr-------
Filippía frænka mótmælir
;þessu langa páskahaldi, ekki
vegna vinnutaps, heldur
,vegna magans---------
AF ER sem áður var að páskar
voru haldnir sem gleðidagar
kristinnar þjóðar og jafnframt
hitt að föstudagurinn langi sé
helgaður minningu um pínu
frelsara mannkyns. Hins vegar er
páskafríið nær eingöngu helgað
ferðalögum utan lands og innan.
Sjaldan munu ferðaskrifstofur
og aðrir þeir aðilar sem sjá um
ferðalög hafa eins mikið að gera
og á upprisuhátíðinni. Þegar
henni lýkur spyrja menn ekki kunn
ingja og samstarfsmenn í hvaða
kirkju 'þeir hafi farið eða á hvaða
presta hafi verið hlýtt, heldur
hvert hafi verið ferðast og hvort
ekki hafi verið agalega gaman.
Utanlandsferðum mörlandans
fjölgar með hverju árinu sem
líður og varla getur maður, sem
ekki fer til útlanda, að minnsta
kosti einu sinni á ári, litið blygð-
unai'laust framan í náungann. —
Jafnframt að ferðum f jölgar
lengjast þær að sama skapi. Nú
orðið er ósköp púkó að fara bara
til Danmerkur eða Skotlands, sem
þóttu mikil ferðalög upp úr 1950,
þegar hópferðir hófust. Nú dugir
varla minna en ferð til Miðjarð-
arhafslanda og Afríku.
Flestar ferðaskrifstofur skipu-
leggja fjölmennar hópferðir til
fyrrgreindra landa um páskana, og
komast færri með en vilja yfir há-
tiðina og munu skinnhvítir og
glænepjulegir íslendingar flat-
maga á sólbökuðum ströndum
Suðurlanda og koma til baka blóð-
rauðir á litinn með auma húð og
fá svo kvef í vornepjunni á Fróni,
og óska þess að þeir hefðu heldur
keypt lóð á Kanaríeyjum og alls
ekki komið til baka aftur, og
látið ábyrgðarmennina sem skrif
uðu upp á ferðaVíxlana um að
borga þá.
Eitthvað verða þeir að gera sem
ekki hafa aðstæður til að komast
,til útlanda í páskafríinu, sem er
; lengsta frí ársins, að undanskildu
| sumárleyfi, þeirra sem það fá, sem
er nokkuð misjafnlega langt eftir
starísgreinum og aðstöðu ein-
stakra manna, eða allt frá þremur
víkum og upp í 6 mánuði. Margir
leggja land undir fót og ferðast
innanlands og verða þá að fara í
stórum ferðabílum, eða í bílum
með drifi á öllum lijólum, því
venjulegum bílum er ekki fært
að kafa þjóðvegi landsins á þess-
um árstíma. Siður mun flestra
þeirra sem láta sér nægja innan-
landsferðalög að fara á Snæfells-
nes og bíða í tvo til þrjá daga
eftir að þokubakkanum létti af
Snæfellsnessjökli, svo eitthvað sé
í varið að ganga á jökulinn, síðan
er farið heim. Enn hefur ekki
heyrst um ferðamannahóp sem
þurft hefur að leggja á sig jökul-
gönguna í páskaferð á Snæfells-
nes. Veðurguðirnir, nú eða Bárð-
ur gamli, sjá fyrir því. Öræfa-
ferðir eru og mjög í tízku enda
héraðið rómað fyrir veðursæld í
páskahretinu. í auglýsingum
ferðaskrifstofa er á það bent, að
í sveitinni sé skjól fyrir öllum
áttum og því alltaf logn þar um
slóðir. Hins vegar er aldrei á það
minnst að stundum rignir á Suð-
Austurlandi.
Hvað um það, út vil ek, sagði
kerlingin, eins og karlinn sagði.
Allt er betra en að híma heima
um hátíðina. Enda flestar stofn-
anir sem mættu verða fólki til
dægrastyttingar lokaðar. Það eina
sem stendur fólki opið er flótti
að lieiman og kirkjur. Og þarf
enginn að fara í grafgötur með
livor kosturinn er vinsælli.
Einn er þó sá sem auðsjáan-
lega er ætlað að híma heima og
láta sér ekki leiðast. Það er mað-
urinn sem keypti aðskiljanlegar
áfengistegundir í ríkinu í gær fyr-
ir nær fimm þúsund krónur. Þegar
afgreiðslumaðurinn hafði látið
birgðirnar í kassa og njörvað vand
lega utan um gleöigjafann, tví-
sté karl og var enn eitthvað að
vanbúnaði og sagði:
— Ég held að það sé rétt ég
fái eina 1 vasan*.
C=3
Hann kjaftaði sig út úr því!
■ i