Alþýðublaðið - 20.09.1966, Side 4
Rttstjírar: Gylft Gröndal (áb.) og Benedlkt. Gröndal. — RttstjömarfuU-
trúl: EiBur GuBnason. — Símar: 14900-14303 — Auglýslngastml: 14900.
ABsetur AlþýSuhúsiB viB Hverfisgötu, Reykjavlk. — PreotsmiBJa AlþýBu
blaBslns. — Askriftargjald kr. 95.00 — I lausásölu kx. 7,00 elntaklB.
tltgetandl AlþýBuflokkurinn.
SÆNSKU KOSNINGARNAR
ÚRSLIT kosninganna í Svíþjóð hafa að vonum orð-
ið jafnaðarmönnum nokkur vonbrigði. Erlander for-
sætisráðherra Svía hafði að vísu lýst því yfir fyrir
kosningar, að jafnaðarmenn byggjust ekki við sérlega
hagstæðum úrshtum, en fæstir munu hafa búizt við að
svo færi sem fór.
Jafnaðarmenn hafa lengi verið við völd í Svíþjóð,
og undir þeirra stjórn hefur verið skapað þar eitt full
komnasta velferðarríkið í veröldinni, sem aðrar þjóð-
ir hafa á margan hátt tekið sér til fyrirmyndar. Frem-
ur en ýmsir aðrir hafa Svíar ekki sloppið við ýmsa
velmegunarsjúkdóma, sem gert hafa vart við sig í
tækniþjóðfélögum nútímans, en almenn lífskjör og
jafnrétti í reynd er óvíða á hærra stigi en í Svíþjóð.
Eitt af því sem notað var gegn jafnaðarmönnum í
kosningabaráttanni í Svíþióð var, að þeir væru búnir
að vera allt of lengi við völd og tími væri kominn
til að breyta til. Þessi áróður hefur vafalaust haft
einhver áhrif á kjósendur, enda var hann óspart
hafður í frammi af borgaraflokkunum, sem lang-
þreyttir eru orðnir á áhrifaleysi sínu. Þá hafa skatta-
málin einnig verið umdeild í Svíþjóð. Borgaraflokk-
arnir hafa heimtað skattalækkanir, en Erlander svar
að því til, að slíkt mundi auka mjög verðbólguna í
landinu. Skattar eru háir í Svíþjóð, enda verja Svíar
óhemju fé til varnarmála og fullkomið tryggingakerfi
kostar auðvitað sitt.
Það er sérstaklega athyglisverð staðreynd, að á
Norðurlöndum eiga jafnaðarmannaflokkarnir jafnan
mestu fylgi að fagna, þegar á móti blæs á einhvern
hátt, en á tímum velmegunar virðast borgara-
flokkarnir eiga meiri vinsældum að fagna. Kjósend-
ur þar treysta jafnaðarmönnum bezt til að ráða fram
úr margvíslegum erfiðleikum, en þegar erfiðustu
hjallarnir eru að baki, vex fylgi borgaraflokkanna á
ný.
í Noregi og Svíþjóð þar sem jafnaðarmenn hafa nú
goldið nokkurt afhroð undanfarið, hafa jafnaðar-
menn með störfum sínum og stefnu skapað þjóðfélög
sem eru til fyrirmyndar um flesta hluti, og þar sem
vameinuð eru hæfileg ríkisafskipti og framtak einstakl
inga og félaga. Stefnumunur er ekki lengur ýkja mik-
ill með jafnaðarmanna- og borgaraflokkum, enda rík-
ir ekki lengur ágreiningur um þá grundvallarstefnu
qg þær hugsjónir, sem jafnaðarmenn hafa árum sam-
án barizt fyrir.
j Þótt svo úrslitin í Svíþjóð séu ekki sem glæsilesfust,
ér þó langt frá því að rétt sé að líta á þau sem meiri-
líáttar ósigur jafnaðarstefnunnar á Norðurlöndum eða
í Evrópu, þvert á móti, er rétt að niinnast bess, að
ekki er ýkja langt síðan jafnaðarmeíin unnu glæsileg-
'án sigur í Finnlandi og vegur jafnaðarmanna í Vestur
Þv/kalandi fer sívaxandi, fenda gætir þar nú orðið
mikillar óánægju með stjórn Erhards.
4 20. septémber 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Útvarpstæki
Segulbandstæki
Sjónvarpstæki
Plötuspilarar
ÁRS ÁBYRGÐ-
Ábyrgðarbréf fylgir
hverju tæki.
RADflONETTE
verzlunin
Aðalstræti 18. Sími 16995.
Kaupum hreinar
tuskur.
Bdfsturi^jan
Freyjugötu 14.
VerkamannaféKagið
DAOSBE0M
Tilkynning
Ákveðið er að viðhafa allsherjaratkvæða-
greiðslu um kjör fulltrúa Dagsbrúnar á 30.
þing Alþýðusambandsins. Tillögur uppstill-
ingarnefndar liggja frammi í skrifstofu fé-
lagsins. Öðrum tillögum, með nöfnum 34
aðalfulltrúa og jafn margra til vara og til-
skildum fjölda meðmælénda, ber að skila
í skrifstofu Dagsbrúnar fyrir kl. 18.00 þriðju
daginn 20. þ. m.
Kjörsíjórnin.
Ncm og atvinna
Stúlkur, sem vilja læra gæzlu og umönnun
vangefinna, geta komizt að í slíkt nám á
Kópavogshæli í haust. Laun verða greidd
um námstímann. Nánari upplýsingar gefa
yfirlæknir og forstöðumaður.
Símar- 41504 og heima 41505.
Reykjavík, 19.9 1966.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
★ BETRA BENZÍN.
Leigubifreiðarstjóri hefur skrif-
að okkur svohljóðandi bréf: „Enn einu sinni hafa
blfessuð olíufélögin tekið höndum saman (raunar
lítur út fyrir að þau alltaf haldizt í hendur) og
tilkynnt þjónustubreytingu, eða innheimtu auka-
gjálda fyrir lánsviðskipti. Þetta kemur áreiðan-
lega illa við marga og fæstir víst ánægðir með
þessa tilkynningu frekar en ánnað, sem frá þess-
um fyrirtækjum kemur. En ástæðan til þess að
ég skrifa þetta bréf, er þó ekki fyrst og fremst
þessi tilkynning, hfeldur hitt, að hér skuli ekki
vera hægt að kaupa boðlegt benzín. Það er kunn-
ara en írá þurfi að segja, að þeir bílar, sem við
notum hér eru gerðir fyrir langtum sterkara benz-
ín en rússneska benzínið, sem hér er á markaðn-
um, og sérfræðingar telja langt frá því að vera
gott.
Hvað stendur í vegi þess að hér
sé hægt að liafa á boðstólum benzín, sem hentar
þeim bíluih, sem við notum? Fróðlegt væri að fá
að heyra það. Ef þetta benzín er ekki fáanlegt frá
Rússlandi, ættum við að geta keypt það einlivers
staðar annars staðar frá, og ef olíufélögin ekki
treysta sér til aö selja það, eða dreifa því, ætti
einhver framsýnn kaupsýslumaður, eða menn, að
taka sig saman og hefja innflutning á brúklegu
benzini; þeir. mundu áreiðanlega ekki fara halloka
í sainkeþpni við Olíufélögin íslenzku.”
-£• IÐNSÝNINGIN.
Þá er Iðnsýningunni anno 1966
lokið og liggur víst við að þriðjungur landsmanna
hafi séð sýninguna, og varla ber það vott um lítinn
áhuga fyrir íslenzkum iðnaði.
Sá, sem þetta ritar, skoðaði sýn-
inguna síðasta kvöldið, sem hún var opin. Þar
var þá múgur og margmenni og þröng við flesta
básana. Margt var þar fróðlegt að sjá, en þó verð
ég að segja, að heldur fannst mér lítið til upp-
setningarinnar koma og lítill frumleiki var þar á
ferðinni. Þykkt ryklag á vörum í sumum básunum
og á einum staðnum, þar sem lieill bíll var sýndur,
var afturpartur bílsins fullur af allskyns drasli,
pappakössum og þvílíku. Þetta setti heldur leiðin-
legan svip á.
Þrátt fyrir þetta var sýningin
engu að síður stórfróðleg, og þarna sá maður ýmis-
legt, sem mann ekki renndi grun í að framleitt
væri hér á landi. íslenzkur iðnaður hefur tekið
stór skref fram á við á undanförnum árum og
þótt svo einhver hafi kvartað yfir þvi að ekki
sæjust skór á sýningunni, ber elcki að harma það,
því við eigum að leggja áherzlu á að framleiða það
sem við getum gert betur en aðrir, eða minnsta
kosti jafnvel, og ef ég man rétt, hefur íslenzkur
skóiðnaður ekki verið samkeppnisfaer um verð eða
gæði við það, sem erlent fer. Margar íslenzkar iðn-
vörur eru betri en erlendar, eða jafngóðar, og það
eru þær, sem við eigum að leggja áherzlu á. —
Vonandi verða slíkar iðnsýningar haldnar reglu-
lega í framtíðiiini. Þær eru fullkomléga þess virði.
Karl.