Alþýðublaðið - 29.12.1966, Qupperneq 4
Ritstjórar: Gyiíi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndai. — Ritstjórnarfull-..
trúi: Eiöur Guðnason — Símar: 14900-14903 — Auglýsingasími: 14906,
Aðsetur Alþýðuhúsið við Hveriisgötu, Seykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-.
blað ins. — Áskiiitargjaid kr. 105.00. — í lausasölu kr. 7.00 eintaiið,
Útgeíandí Alþýðuflokkurinn.
Flórenz og Einar Jónsson
FYí :IR NOKKRUM vikum urðu miklir vatnavext-
ir á n jrðanverðri Ítalíu, sérstaklega í fljótunum Po og
Arno. Ar flæddu yfir bakka sína með óhemjulegum
áurbif-ði, settu heilar byggðir í kaf og gerðu margvís-
legan usla.
Það var sögulegt við þessar náttúruhamfarir, að
tnikla’ skemmdir urðu á listaverkum og bókum. í
Flóreuz og öðrum bæjum Norður-Ítalíu er meira af
Jist fr í liðnum öldum en á nokkrum öðrum stað, og'
skemndir eða eyðilegging þeirra er nálega óbætan-
legt t ón.
Þesí ir atburðir voru einhver mestu ótíðindi, sem
lengi rafa borizt frá heimi listanna. Allir sem kunna
að meta meistaraverk Norður-Ítalíu, taka þátt í harmi
yfir þéssum atburðum.
En hve margir íslendingar gera sér Ijóst, að einn
snarpur jarðskjálftakippur í Reykjavík gæti gereyði-
lagt meirihluta af verkum Einars Jónssonar mynd-
liöggvara?
Megnið af ævistarfi Einars, einhvers göfugasta og
inesta listamanns, sem þjóðin hefur átt, er geymt í
sáfnhyggingu á Skólavörðuhæð. Þar er myndunum
k.þmið fyrir í þröngum húsakynnum eins og hann
skildi sjálfur við þær. Húsið er að vísu rammgert, en
jfléstar myndirnar í gipsi, en aðeins fáar hafa verið
sfeyptar í varanlegt efni.
Islendingar virðast enn ekki hafa haft efni á að
steypa þessi listaverk í eir. En hafa þeir efni á að
rnissa þau?
MATVÖRUKAUPMENN hafa nýlega tekið saman
fiöndum og komið á fót stofnlánasjóði matvöruverzl-
ana. Uru nokkur ár síðan raddir heyrðust fyrst í
þeirra röðum um nauðsyn slíks sjóðs, og viðskipta-
únaálan ðherra Gylfi Þ. Gíslason hefur opinberlega
mælt neð stofnun fjárfestingasjóðs fyrir verzlunina
aiia.
Það er dýrt að koma á fót nútíma matvöruverzlun
Og hefur verið brýn nauðsyn að koma upp slíkum
Sjóð til að styrkja þá, sem sjá nýjum byggðum fyrir
matvöru. Er nauðsynlegt að aðstoða sjóðinn sem
feezt, svo að hann geti gegnt hlutverki sínu.
iUm leið og sjóðurinn tekur til starfa ættu matvöru
fcaupmenn að aíhuga vel sinn gang um fjárfestingu.
í»eir þurfa að rannsaka, hvaða stærð verzlunar veiti
hagstæðastan rekstur fyrir neytendur og verzlunina,
tryggja að einungis sé byggt á hagkvæmasta hátt og
að ekkji sé of mikið af of litlum verzlunum. Framtíð
itj er án efa stærri verzlanir með stórum bílastæðum,
e| viðskiptavinir koma sjaldnar (á bílum) og kaupa
tiieira í einu. Það er ekki lengur ástæða til að mat-
Voruverzlun sé á hverju götuhorni, enda efnahagslega
JhLpið.
Flugeldar
SKIPAFLUGELDAR
SKRAUT-
FLUGELDAR
TUNGLFLAUGAR
ELDFLAUGAR
F ALLHLÍF ABL YS
JOKERBLYS
STJÖRNULJÓS
SÖLIR
ELDGOS
BENGAL ELDFÆRI
BLYS
í öllum regnbogans
litum.
Verzlið þar sem
úrvalið er.
LAUGAVEGI 1 3)
SftSURSTÖÐIN
Sætúni 4 — Sími 16-2-27
BÚlittn er smuríur fljðíl oí Yel,
BáSJim allttf teffuaálr af sinurolíli
í DAG 29. descmber verda 7. á-
skriftartónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands á þessu starfsári
haldnir í Háskólabíói og' hefjast
klukkan 20.30. hetta verða næst
seinustu tónleikar hljómsveitar-
innar á fyrra misseri, og mun end
urnýjun áskriftarskírteina fyrir
síóasta misserið heíjast í byrjun
janúar.
Stjórnandi er að þessu sinni
Ragnar Björnsson, en fjórir ein-
leikarar koma fram, þeir Kristján
Þ. Stephensen, Gunnar Egilsson,
Hans P. Franzson og David Ince.
Öll verkin, sem flutt verða á tón-
leikunum eru eftir Mozart. Þau
kvöld
aldri, g-moll sinfónían nr. 40, sem
Mozart samdi tíu árum síðar og
forleikurinn að óperunni „Töfra-
flautan“, sem samin var nokkrum
mánuðum áður en hann dó. Verk-
efnavalið mun því veita áheyrend-
um prýðilega yfirsýn yfir feril
hins dáða snillings.
Þess má geta til gamans, að á
seinustu árum hefur verið gerð
nákvæm skoðanakönnun á met-
söluhljómplötum í Evrópu og í
Bandaríkjunum og hafa þá allar
dægurflugur verið taldar með.
Skoðanakönnunin Ihefur leitt í
ljós, að engar hljómplötur hafa
selzt betur en þær, sem flytja
eru frá ýmsum skeiðum ævi hans. Leikin verða Serenada Notturna í D-dúr, sem Mozart samdi á ung- lingsárum, konsert-sinfónía (fyrir blásarakvartett og hljómsveit), er hann samdi liðlega tvítugur að verk eftir Mozart. „Mozartplötur“ hafa ekki aðeins verið langsam- lega efstar á vinsældalistanum í áraraðir, lieldur aukast vinsældir þeirra í stórum stökkum með hverjum mánuðinum.
Héilsuvernd
Næsta námskeið í
tauga- og vöðvaslök- un og öndunaræfing- um, fyrir konur og karla, hefst miðv.d. 4. jan.
Trúlofunarhringar Upplýsingar í síma 12240.
4endum gegn póstkröín.
!?lj6i afgTCiWsía. Gluðm. Þorsteinssois Vignir Andrésson,
nallsmiður Taxskastræti 12 íþróttakennari,
á krossgötum
★ BORGARBÓKASAFNIÐ.
Starfsemi borgarbókasafnsins er afar nauð
synleg enda er safnið alla jafna vel sótt af borg
arbúum, sem fá þar ódýrt lesefni. Lessalur þess
er vistlegur, og þar er sæmilegt bókaval, þótt
liandalióf eitt virðist hafa ráðið því hvaða tímarit
þar liggja frammi fyrir gesti.
Þegar núvcrandi húsnæði var keypt og því
hreytt með ærnum tilkostnaði var marg sinnis
hent á að það mundi aðeins verða bráða-
birgðalausn á húsnæðismálum safnsins, og var
raunar alltof lítið, þegar flutt var inn. Enda munu
þess vafalaust ekki dæmi þótt víða væri leitað að
gamalt íbúðarhús hafi verið gert að bókasafni
borgar, sem telur rúmlega 90 þúsund íbúa .
Þetta fyrirliyggjuleysi borgaryfirvalda að
sníða safninu svo þröngan stakk hefur vafalaust
háð starfsemi þcss allmikið síðustu árin. Borg
in vcrður að reisa veglegt Iiús við Tiæfi yfir bóka
safn sitt og væri skömminni skárra að eyða nokkr
um milljónum í það en ráðhúsómyndina, sem allt
aí er verið að tala um að reisa eigi við Tjörnina
en lítið virðist ætla að verða úr, segir í niðurlagi
bréfs frá miðbæing.
★ MUNIÐ EFTIR
FUGLUNUM.
Dýraverndunarfélagið lætur minna okkur á
það í útvarpinu öðru hverju að gleyma ekki smá
fuglunum, sem hart sé í ári hjá núna þessa dagana
Við höfum tekið eftir því að almenningur hefur
brugðizt vel við þessu því víða við íbúðarhús má
sjá snjótittlinga tína upp korn eða brauðmola,
sem kastað hefur verið til þeirra út á fönnina.
Þótt dýraverndunarfélagið ástundi ekki mikla aug
lýsingarstarfsemi vinnur það samt þarft og gott
starf. Nægir að minna á er forsvarsmenn þess
fyrir. nokkrum mánuðum komu í veg fyrir að
cfnt yrði til hvaladráps að nauðsynjalausu hér í
borgarlandinu.
Við hér á krossgötum viljum talca undir með Dýra
verndunarfélaginu og skorum á ykkur að gleyma
ekki smáfuglunum. Það er hreinn óþarfi að kaupa
sérstakt fuglakorn. Þeir gera sér að góðu hafra
r/ijöl hrisgrjón og brauðmylsnu ekkert síður en
foðurkornið.
- Karl.
4P 29. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ