Alþýðublaðið - 29.12.1966, Side 9
ívö leikrit eftir
Matthías Jóhannessen
sýnd í Þjóðleikhúsinu
Þann 8. janúar n.k. frumsýnir
Þjóðleikhúsið tvo einþáttunga
eftir Matthías Johannessen, rit-
Stjóra og skáld. Einþáttungarnir
lieita Eins og þér sáið . . . og
Jón gamli, og verða þeir sýndir
á litla sviðinu í Lindarbæ. Leik-
Stjóri er Benedikt Árnason en
L'árus Ingólfsson gerir leikmynd
ír og búningateikningar. Leikend
ur eru aðeins þrír, en þeir eru:
Yalur Gíslason, Lárus Pálsson
og Gísli Alfreðsson, en auk þess
heyrast raddir nokkurra þekktra
leikara á segulbandi. Valur Gísla
son leikur aðalhlutverkin í báð-
um leikritunum.
Þetta eru fyrstu leikritin, sem
sýnd eru á leiksviði eftir Matt-
hías, en áður hefur komið út
eftir hann eitt leikrit. Sólmyrkvi,
1962.
Þess gerist vart þörf að kynna
Matthías Jóhannessen fyrir
blaðalesendum, svo vel er hann
öllum landsmönnum kunnur sem
blaðamaður, ritstjóri og skáld
og þótt hann sé enn ungur að ár-
um, þá hefur honum unnizt tími
til að senda frá sér 5 ljóðabæk-
ur, auk nokkurra annarra bóka
í óbundnu máli. Síðasta ljóða-
bókin hans, ..Fagur er dalur“,
kom einmitt út á þessu ári. Mörg
Myndin er af höfundi.
af ljóðum hans hafa verið þýdd
og á næstunni kemur út í Dan-
mörku bók með ljóðum eftir
Matthías, sem þýdd hafa verið
á danska tungu.
Matthías er fæddur árið 1930.
Varð stúdent frá M.R. árið 1950.
Cand. mag. í íslenzkum fræð-
um frá Háskóla íslands ári'ð
1955. Stundaði framhaldsnám
við Kaupmannahafnar háskól-
ann í bókmenntum og leiklist-
arfræði. Ungur að árum hóf
hann starf sitt sem blaðamaður,
1952, og varð einn af aðalrit-
stjórum Morgunblaðsins árið
1959. Segja má að blaðamanna
starfið hafi orðið aðal starf
hans.
Miklar vinsældir hefur hann
hlotið fyrir greinar þær, ér
hann hefur ritað í samtalsformi,
undir titlinum, „í fáum orðum
sagt.“
Einþáttungar Matthíasar, Jón
gamli og Eins og þér sáið. . .,
fjalla um valdið og beitingu
þess, hvor með sínum hætti. Til
þess að geta umborið annað
fólk og skilið það og þótt vænt
um það, er nauðsynlegt að
kynnast því í réttu umhverfi
og þá helzt á stund uppgjörs
og örlagadóma.
□ □□□□□
★ HEPPNAÐIR MENN
OG MISHEPPNAÐIR
Skömmu jyrir jól birtist í Morg
unblaðinu hugleiðing um tvo
stjórnmálamenn, þá Jóliann Jóns-
son frá Hriflu og Einar Olgeirs
son. Tilefnið var. að Jónas hafði
mætt í afmælishófi Framsóknar-
flokksins, ,og Einar hafði gefið í
slcyn í þingræðu. að hann mundi
ekki verða í kjöri í kosningum í
vor og hætta bingmennsku.
í Morgunblaðsgreininni komst
liöfundur að þeirri niðurstöðu um
þessa tvo flokksleiðtoga að þeir
væru báðir misheppnaðir stjórn
málamenn. Er þetta athyglisverð
skoðun, sem er umhugsunar virði.
Bæði Jónas og Einar tóku á
löngu blómaskeiði 'ævi sinnar mik
inn þátt í stjórnmálum og voru í
jrenistu forystusveit, miklir ræðu
menn og rithöfundar á sínu sviði.
Jónas varð ráðherra um skeið, en
átti meginþátt í mótun núverandi
flokkakerfis og þeirri flóðbylgju
breytinga og framfara í íslenzku
þjóðjélagi, sem fleytt hafa þjóð
inni áfram síðustu 40 ár. Einar
boðaði róttækari breytingu þjóðfé
lagsins. sem að visu hefur ekki
orðið hér á landi, en áhrif stefnu
hans hafa þó verið mikil.
Er■ hægt að kalla menn með slík
en feril að baki ,,misheppnaða“?
Varla, nema matið byggist ein
gövgu á stöðum og vegtyllum. Eru
það eitt „heppnaðir“ menn, sem
sitja lengi í háum embættum, verða
borgarstjórar ráðherrar, ambassa
dorar úg ef til vill forsetar?
Svo virðist, sem greinarhöfund
ur Morgunblaðsins leggi þennan
þrönga og íhaldssama skilning í
það mat, hvort stjórnmálamenn
heppnast eða ekki. Er þetta eðli
legt mat? Margir vienn hafa ver
ið ráðherrar án þess að mikið lægi
eftir þá. Oft hentar bezt að kjósa
diplómata í hinar æðstu stöður,
þar sem koma þarf ‘frani fyrir þjóð
arinnar hönd og tala fagurlega í
veizlusölum.
En eru það ekki eins vel heppn
aðir menn, sem boða og fram-
kvæma stórbreytingar í þjóðfélag
inu? Eru það ekki heppnaðir menn
sem þannig hafa stórfelld áhrif á
líf og afkoviu þjóðarinnar, þótt
þeir ekki setjist í fínustu stóla
embættisapparatsins? Sumir menn
til dæmis Jón Baldvinsson eða Pét
ur Ottesen, vildu ekki slíka stóla.
Telur þjóðin þá vera misheppn-
aða menn af þeim sökum?
Mat Morgunblaðsins á þeim Jón
asi og Einari er næsta yfirborðslegt
og er vonandi, að þjóðin tileinki
sér ekki slíkar skoðanir. Nóg er
víst tildrið samt.
V
Orðsending
frá Loftleiðum
Þær breytingar verða á venjulegum afgreiðslu
háttum Loftleiða vegna næstu áramóta, er hér
segir:
1. Farþegaafgreiðslur og almennar skrifstof-
ur verða lokaðar frá kl. 16.00 á gamlárs-
dag, til kl. 13.00 þann 2. janúar n.k.
2. A ofangreindu tímabili verður ekki svar-
að í síma 20200.
Um leið og Loftleiðir biðja hina mörgu og
góðu viðskiptavini félagsins afsökunar á þess
um frávikum venjulegrar þjónustu vill félag-
ið nota tækifærið til áð þakka þeim árið. sem
nú er að Ijúka, og árna allra heilla á því, er
senn fer í hönd.
ÍOFTLEIDIR
LFORDI
FORDIL
ORDILF
RDILFO
| DILFOR
ILFORD
— Alltaf bezta láusnin. —
Einkaumboð fyrir
ILFORD-ljósmyndavörur. o
HAUKAR HF.
Garðastræti 6. — Sími 16485.
Kópavogur
Blaðburðarbörn vantar í Vesturbæ.
SÍMI 40753.
29. desember 1966 --- ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9
i