Alþýðublaðið - 29.12.1966, Síða 11
l=RitstiótTOm ESdsson
Fram lék ágætlega-
siaraði Hauka 26:14
Annað leikkvöld íslandsmóts-
ins var leikið í fyrrakvöld og fóru
J)á fram tveir leikir. Fyrri leikur-
inn var milli Fram og Hauka úr
Hafnarfirði. Nokkur spenna ríkti
fyrir þennan leik þar sem þetta
var fyrsti leikur Haukanna á þessu
leikári, en eins og kunnugt er þá
stóðu Haukar sig með mikilli prýði
í íslandsmótinu í fyrra. En í fyrra
kvöld brugðust Haukarnir vonum
manna með' vægast sagt lélegum
leik, en þeir sýndu þó af og til í
leiknum að þeir eru til alls vísir
þegar þeir ná meiri keppnisreynslu
í vetur og trúað gæti ég að þeir
verði erfiðir viðureignar þefcar
líða tekur á mótið og þá fyrir
hvaða lið sem er.
Lið Fram sýndi góðan leik með-
an þeir léku rólega, en það var
eins og þeir réðu ekki við hrað-
ann, sem þeir settu oft upp og
varð þá mikið um rangar send-
ingar bjá þeim. Annars gekk leik-
urinn sjálfur hálf einkennilega fyr
ir sig því að á 25. mín. stóðu leik-
ar 7:1 fyrir Fram. Á þessu tíma-
bili höfðu Framarar leikið vel
og gætilega og opnuðu hvað eftir
annað vörn Haukanna og skoruðu
þrátt fyrir góða markvörzlu Pét-
urs í marki Hauka. En þær fimm
mín. sem eftir voru af hálfleikn-
Unglingamót
í badminton
um jafnaðist leikurinn því nú skor
uðu Haukar 6 mörk gegn 2 frá
Fram þannig að í hálfleik var
staðan 9:7 fyrir Fram. Seinni hálf-
leik byrja Framarar vel og skora
7 fyrstu mörkin og er staðan því
orðin 16:7 á 11. mín. En það sem
eftir er leiksins halda Haukar í
horfinu og leikurinn endaði 26: j
14 fyrir Fram. Beztu menn Fram-
liðsins voru þeir Guðjón, Sig. Ein-
arsson og Gunnlaugur. Á köflum
varði Þorsteinn mjög vel.
Beztir hjá Haukum voru Matthías
og Pétur sem var í markinu í fyrri
hálfleik. Flest mörk skoruðu fyrir
Fram Gunnlaugur 9, Ingólfur 5,
og Sig. Einarsson 4. Fyrir Hauka:
Matthías 5, Ásgeir og Stefán 3
hvor. Dómari var Valur Benedikts
son og dæmdi hann vægast sagt
hryllilega.
Geir Hallsteinsson skorar fyrir FH í fyrrakvöld
FH átti ekki í erfið-
jr
Unglingamót í Badmiriton ein
liðaleik, var haldið í íþróttahúsi
Vals, laugardaginn 17. des. í mót
inu tóku þátt um 30 unglingar frá
TBR, KR og ÍA. Þetta er í annað
skipti, sem unglingamót er haldið
og er ætlunin að halda það fram
vegis síðasta laugardag fyrir jól. í
mótinu voru leiknir margir
skemmtilegir leikir og sýndu ungl
ingarnir mjög mikinn áhuga. Keppt
var í þremur flokkum. í unglinga
flokki sigraði Haraldur Kornelí
usson TBR Hörð Ragnarsson ÍA
15-9 og 15-12, í drengjaflokki sigr
aði Jóhannes Guðjónsson ÍA Jaf
et Ólafsson TBR 11-6 og 11-3 og í
sveinaflokki sigraði Jón Gíslason
TBR Helga Benediktsson TBR 15-
10, 9-11 og 1-11.
Fyrstu og önnur verðlaun voru
veitt í hverjum flokki. Auk þess
voru veitt sérstök verðlaun fyrir
góðan leik og var það vandaður
badmintonspaði og hlaut hann Jó
hannes Guðjónsson ÍA. Spaðann
gaf Leifur Muller, einn af félög
um TBR.
leikum með Armann
Seinni leikurinn í fyrrakvöld
var milxi F.H. og Ármanns og
óyrjaði hann með mörkum frá
báðum aðilum á fyrstu mín. Birg-
ir skoraði fyrir FH og Grímur
' jafnaði, en síðan fylgdu sjö mörk
frá FH og var staðan á 16. mín.
8:1 fyrir FH. Og það sem eftir
var hálfleiks skoruðu FH-ingar 2
mörk fyrir hvert eitt sem Ár-
inenninigar gerðu og lauk hálf-
leiknum með sigri FH 17:6.
Seinni hálfleikur var kannski
heldur jafnari en sá fyrri en á-
fram héldu yfirburðir FH og lauk
leiknum 30:13.
Lið Ármanns reyndi í þessum
leik það eina sem rétt var, það er
að segja að halda knettinum til
að forðast markasúpu frá FH.
Þetta tókst þeim allvel. Bezti mað
Gylfi Jóhannsson skorar fyrir Fram í leiknum við *iauka. (Myndir: Bj. Bj.)
Happdrætti ÍSÍ
Frá Landshappdrætti ÍSÍ: Dregið
hefur verið hjá Borgarfógetanum
í Reykjavík, upp komu þessi núm
er:
54775 Kappsiglari. íþróttabanda-
lag Akraness.
45414 Ford Taunus íþróttabanda
lag Hafnarfjarðar.
32820 Willy's Jeep. íþróttabanda
lag Akraness.
29647 Plastbátur me'ð utanborðsvél
íþróttabandalag Reykjavíkur.
31440 Husqvarna saumavél íþrótta
bandalag Reykjavíkur.
19718 Husqvarna saumavél íþrótta
bandalag Reykjávíkur.
3939 Husqvarna saumavél íþrótta
bandalag Reykjavíkur
20513 Ilusqvarna saumavél íþrótta
bandalag Reykjavíkur .
47305 Husqvarna saumavél Ungm.
samb. V-Húnvetninga.
12475 Kelvinator kæliskápur Hér-
aðssamband Strandamanna.
6524 Kelvinator kæliskápur íþrótta
bandalag Siglufjarðar.
11795 Kelvinator kæliskápur Ung
mennasamband Skagafjarðar.
ur liðsins var Grímur Valdimars-
son og skoraði hann 5 mörk. Þá
skoraði Ástþór einnig 5 mörk.
Lið FH er sýnilega í góðri æf-
ingu og verður gaman að fylgjast
með leik FH og Fram nú eftir ára-
mótin. Beztu menn liðsins voru
Geir sem skoraði 9 mörk og Ragn-
ar sem skoraði 7 mörk. í marld
FH var ungur piltur, Birgir Finn-
bogason og lofar hann góðu.
Dómari var Óli Ólsen og dæmdi
hann vel og er hann mjög efni-
legur dómari, en má vanda betur
bendingar sínar eftir að hann hef-
ur flautað á brot.
I. V.
Fram-Valur og
Víkingur-Haukar
leika í kvöld
í kvöld kl. 20,15 heldur ís-
landsmótið í I. deild áfram í
iþróttahöllinni. Fyrst leika
Fram og Valur og sá leikur verð
ur vajalaust skemmtilegur á að
horfa. Síðari leikur kvöldsins
verður milli Víkings og Hauka.
en ógjörlegt er að spá nokkru
iiiii úrslit fyrirfram. .Ekki er
vafi á því að góð skemmtun
verður í íþróttahöllinni í kvöld.
29. desember 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ