Alþýðublaðið - 29.12.1966, Page 14
* Sífc* V ►
*'*M>Mteac-Ece« tefct«■«*»>•••» + ■*• *•*»*■ «•*•*«•*?»**»* *■" *•****■•
Wff*ff5£ B-e *
E
Sieifarlag
Framhald af bls. 1.
grennd við miðbæinn er ástand
ið þannig að verulegur hluti
gangandi vegfarenda kýs held
ur að ganga á götunum en á
gangstéttunum, sem eru einn
svellbunki og engin tilraun hcf
ur verið gerð til að hreinsa
frá því að fyrsti snjórinn féll.
Það er ein af mcginskyldum
borgaryfirvalda að tryggja
greiða og örugga umferð um
götur borgarinnar. Þessu hlut-
verki hefur alls ekki verið
sinnt í desember mánuði, þótt
eitthvað lítilsháttar liafi ver-
ið gcrt af því að dreifa salti
á göturnar í lítilli þökk bif-
reiðaeigenda.
Borgarbúar eiga heimtingu á
því að þessum málum sé betur
sinnt og gerðar verði ráðstafan
ir tii þess að lireinsa snjó af
götum og gangstéttum fljótar
og í ríkara mæli en gert hef-
ur verið það sem af er bessum
vetri.
Svíþjóð
Framhald af 3. síðu.
að ráðherra gefi opinberleea yfir
lýsingu um ástæður fyrir lausnar
beiðni Það hefur ekki gerzt síð
an Riehard Sandler Mgði af sér
sem utanríkisráðherra 1939, þar
sem hann taldi að Svíar æltu að
taka þátt í vörniim Alandseyja.
Tage Erlander forsætisráðherra
og Gunnar Strang fjármálaráð-
berra hörmuðu í dag ákvörðun
frú Lindström um að segja af
sér. í>eir kváðust báðir vera sam
mála frú Lindström um, að auka
bæri aðstoðina við þróunariönd-
in, en sögðu, að fjárhagur ríkis-
ins leyfði ekki að farið yrði að
kröfum hennar um auknar fjár-
\eitingar.
Frú Lindström sagði að fresta
hefði orðið mörgum áætlunum,
margar mikilvægar áætlanir yrðu
eklci svipur hjá sjón ef framlög
in yrðu ekki aukin verulega,
hætta yrði ef til vill öllum fram
tíðaráætlunum og á þetta hefði
hún ekki getað fallizt. Svíar hefðu
mestar þjóðartekjur á mann næst
á eftir Bandaríkjamönnum og
verja yrði stærri hluta þjóðar-
teknanna til aðstoðar við þróun-
arlöndin.
Veðmál
Framhald af bls. 1.
leika enn lausum haia. í dag bætti
lögreglan hættulegum glæpa-
manni, John Mackrell, við listann
yfir fanga sem brotizt hafa út.
Hann var dæmdur 1947 fyrir morð
á leigubílstjóra. Hann tók saman
pjönkur sínar og gekk út úr geð-
veikrahæli í úthverfum Lundúna.
Samtímis því sem lögreglumenn
og hermenn héldu áfram leitinni
að hinum týndu föngum kom Roy
Jenkins innanríkisráðherra til
að kynna sér ástandið betur. Efst-
ir á listanum yfir týndu fangana
eru fimm menn, þekktir undir
nafninu ,,London Moss“, sem brut
ust út úr Dartmoor-fangelsi á Suð
vestur-Englandi fyrir tveimur dög
um.
Eitt af því sem Jenkins mun nú
kynna sér nánar eru fréttir um,
að einn af fangavörðunum í Can-
terbury-fangelsi selji föngum
lykla fyrir 180 pund.
í kvöld var einn hinna fimm
manna úr London Mob- glæpa-
flokkuum handsamaður.
Flatey
Framhald af 3. síðn.
slík stöð sett upp í Grímsey og
var rafmagn lagt þar í öll hús.
Atvinna er lítil sem engin í
Flatey nú sem stendur en með
endurbótum á frystihúsinu og
AUGLÝSING
til símnotenda í Reykjavík, Kópa-
vogi og Hafnarfirði.
Útgáfa símaskrár fyrir árið 1967 er í undirbún-
ingi. Símnotendur eru beðnir að senda skrif-
legar breytingar við nafna- og atvinnuskrá, ef
einhverjar eru sem allra fyrst og eigi síðar en
14. janúar 1967.
Breytingar sem berast eftir þann tíma, má bú-
ast við að verði ekki hægt að taka til greina.
Nánari upplýsingar gefnar í síma 11000 og á
skrifstofunni í landssímahúsinu Thorvaldsens
stræti 4, herbergi nr. 206 á II. hæð.
Reykjavík, 27. desember 1966.
Bæjarsíminn í Reykjavík.
Metuppskera í
Sovétríkjunum
fjölbreyttrai útgerð en hingað til
hefur verið stunduð frá eyjunni
má búast við að úr rætist og af-
komumöguleikar íbúanna aukist.
Súdan
Framhald af 2. afðu.
ur liðsforingi, Khalid Hussein
sem var yfirmaður nýliðasveitar,
hafi skipað 200 nýliðum að um-
kringja forsetahöllina, útvarps-
stöðvar og standa vörð við vmsar
brjT. Því næst hefði hann lagzt
til svefns. Liðsforingjar úr hern
um afvopnuðu nýliðana, og liðs-
Joringinn var tekinn til yfir-
heyrzlu. Hann játaði, að hann
hefði ætlað'að gera byltingu, og
síðan var hann settur i stofu-
varðhald á heimili sínu, þar sem
hann lagðist aftur til svefns,
herma heimildir Reuters_
AFP hermir, að dómarar í Súd
an hafi hótað verkfalli, ef stjórn
in taki ekki aftur þau ummæli
sín, að stjórnlagasamkundan, sem
starfar sem þjóðþing, sé æðsta yf-
irvald landsins og að enginn geti
breytt gegn ákvörðunum þess.
HijóófæraSeikarar
Framhald af 3. síðu.
félagið bæta úr brýnni þörf, því
skortur hefur verið á slíkri starf-
semi. En það hefur mjög færzt í
aukana að skemmtanir eru haldn-
ar á öðrum stöðum en þeim, sem
hafa yfir að ráða fastráðinni hljóm
sveit.
Ráðningarstofa hljómlistar-
manna er opin alla virka daga frá
kl. 14 til 19 og er síminn 20255 en
hún er til húsa í skrifstofu félags-
ins að Óðinsgötu 7.
Kínverjar
Framliald af bls. 1.
nóvember að Kínverjar mundu
bráðlega gera nýja kjarnorku-
vopnatilraun.
Kínverjar sprengdu fjórðu
kjarnorkusprengju sína 27. októ
ber, og var henni skotið með eld
flaug
Pekingútvarpið og fréttastofan
Nýja Kína skýrðu frá tilrauninni
skömmu eftir að tilkynnt var um
hana í Washington. | fréttinni seg
ir, að sprengingin hafi verið nýr
sigur fyrir hugsun Mao Tse-
tungs.
Heilsuvernd
Næstu námskeið í tauga- og
vöðvaslökun og öndunaræf-
ingum, fyrir konur og karla
hefst miðvikudaginn 4. jan.
Upplýsingar í síma 12240.
Vignir Andrésson
íþróttakennari.
MOSKVU, 27. des. (NTB) - Hveiti,
uppskera hefur aldrei verið meiri |
í Sovétríkjxmum en á þessu ári og
nemur 171 milljón lesta, að því er
Vladimir Matskevitsj Iandbúnaðar
ráðherra sagði á blaðamannafundi
í Mosk\m í dag. En hann sagði, að
ýtússar mundu halda áfram aði
kaupa hveiti erlendis frá samtím-
is því sem þeir mundu reyna að
flytja út hveiti.
Landbúnaðarráðherrann sagði,
að ódýrara væri að flytja hveiti
sjóleiðis frá Kanada til Síberíu en
landleiðina úr vestri. Hann gagn-
rýndi nýræktarstefnu Krústjovs og
kvað skýringuna á aukningu land-
búnaðarframleiðslunnar vera þá,
að mikill fjöldi nýrra véla hefði
verið tekinn í notkun, að hafin
væri framleiðsla tilbúins áburð-
ar og að fólkið á landsbyggðinni
hefði nú fjárhagslegan hagnað af
Rvík, SJÓ
Eimskipafélag íslands hefur
undanfarið keypt gerilsneydda
mjólk frá Akureyri og Húsavík,
sem félagið hefur síðan tekið að
sér að frysta og þýða. Hefur þettg
gefizt mjög vel og er mjólkin sem
ný, þrátt fyrir rúmlega tve!ggja
mánaða geymslu. Er mjólk þessi
geymd í plastpokum, sem ýmist
eru 10 eða 25 lítra. 36 klst. tekur
að þíða hana aftur eftir að hún
hefur verið látin í frysti.
Blaðamönnum gafst kostur á að
bragða á þannig mjólk sem keypt
hafði verið hjá Mjólkursamlagi
KEA á Akureyri og geymd hafði
verið 70 daga um borð í Gullfossi,
og var ekki að finna á henni, að
hún hefði haft svo langa geymslu.
Hefur Eimskipafélag íslands t.d.
fengið vottorð upp á, að hálfs
mánaðar gömul mjólk liafi reynzt
fullkomiega góð. Ekki hefur Mjólk
ursamsalan enn fengizt til að gera
slíkar tilraunir, en þó var ákveð-
ið að hún seldi Eimskipafélaginu
um 1000 lítra til 40 daga ferðar
Gullfoss til Kanaríeyja og aftur
heim. Sagðist Eimskipafélagið á-
líta, að mjólk í þannig umbúðum
væri mun betri, bæði frá þjóð-
hagslegu og heilbrigðissjónarmiði.
M.a. hefðu af þeim 85.000 lítrum
starfi sínu vegna umbóta þeirra er
miðstjórnin samþykkti í marz í
fyrra.
Matskevitsj landbúnaðarráð-
herra átti í deilum við Krústjov
um stefnuna í landbúnaðarmálum
á sínum tíma, en var aftur skipað-
ur í embætti sitt eftir fall Krúst-
jovs. Á fundinum í dag sagði hann
að íbúar Sovétríkjanna væru nú
eins vel nærðir og Bretar og
Bandaríkjamenn þar sem Rússar
eyddu nú 3.000 kaloríum á dag. En
hann bætti því við, að Bandaríkja
menn borðuðu þrefalt meira magn
en sovézkir borgarar.
Matskevitsj sagði, að einkajarð-
ir samyrkjubænda gegndu ekki
miklu hlutverki i landbúnaðarfram
leiðslunni og mundu ékki gera
það í framtíðinni. Hins vegar sagði
hann að ríkið keypti fjórðung
eggja- og karföfluforða síns frá
einkajöi-ðum.
sem félagið keypti árið 1965 ver-
ið rúmur helmingur erlendis frá.
Sovétskip
óæskilegt
í Kína
PEKING, 28. des. (NTB-AFP) -
Sovézka skipinu „Zagorsk" var í
dag fylgt, út úr kínverskri land-
helgi og skipstjórinn, Naoumov,
lýstur óæskilegur í Kína um alia
framtíð vegna atburðar er gerð-
ist þegar „Zagorsk" var á leið út
úr liöfninni í Dairen 8. desember.
Fréttastofan Nýja Kína segir, að
Naoumov skipstjóri hafi neitað að
fara að fyrirmælum kínverska
hafnsögíimannsins. Skipstjórinn
neitaði að stöðva vélar skipsins
og skipaði hafnsögumanninum að
fara í land. En vegna ákveðni hafn
sögumannsins voru vélar skips-
stöðvaðar að lokum, segir Nýja
Kína. ii1;]
70 daga gömul
mjólk sem ný
jr K • B E
Od ]ýr\r og gooir tlugeldar, AÐEINS 0RVALSVARA solir og blys
HAGSTÆTT VERÐ. Garðaslræti — Sími 16770.
14 29. desertiber 1966 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ