Bókasafnið - 01.08.1974, Qupperneq 26
Stofnun starfsmannafél. Borgarbókasafns Reykjavíkur
Sunnudaginn 3. nóvember sl. var efnt til umræðu-
fundar innan Borgarbókasafns Reykjavíkur. Tilefni
fundarins var stofnun starfsmannafélags safnsins. Fund-
urinn var vel sóttur. Þangað komu 32 af 53 starfsmönn-
um stofnunarinnar. Fimm manna undirbúningsnefnd
gerði grein fyrir bugmyndum sínum. Samþykkt var, að
umrædd nefnd gerði lagatillögu, sem lögð skyldi fyrir
næsta fund.
Framhaldsstofnfundur var síðan haldinn sunnudag-
inn 8. desember og þar voru iög félagsins samþykkt.
Heili félagsins er Starfsmannafélag Borgarbókasafns
Reykjavíkur. Stofnendur voru 39. E. B. G.
Islensk bókatíðindi
Nýlega hefur Bókasafninu borist 1. li. íslenskra bóka-
tíðinda, sem gefin eru út af Bóksalafélagi íslands. Eina
efni þessa heftis er íslensk bókaskrá jan,—nóv. 1974,
tekin saman af þjóðdeild Landsbókasafns íslands. Þar
sem hér er um niýjung að ræða, leitaði lilaðið upplýs-
inga hjá Ólafi Pálmasyni um útgáfu þessa. Ólafur sagði,
að þetta hefti væri upphaf að samvinnu Bóksalafélags
íslands og Landsbókasafnsins. Stæði til, að Bóksalafélag
íslands legði safninu til eilt eintak af hverri bók, eins
og hún er lögð á búðarborðið, en Landsbókasafnið
annaðist gerð bókaskrár, sem birtist í þessu tfmariti,
íslcnskum bókatíðinduin. Slík samvinna ætti sér fyrir-
myndir á hinum Norðurlöndunum. Gert mun ráð fyrir,
að íslensk bókatfðindi flytji einnig annað efni en bóka-
skrána eina.
Um bókaskrána er annars það að segja, að við gerð
hennar er um nokkra nýjung að ræða. Notaður er
svokallaður IFLA-staðall, sem endanlega var gengið frá
á IFLA-þinginu í Grenoble 1973. Er íslaml fyrst
Norðurlanda lil að taka upp þennan slaðal bókar-
lýsingar, en nánar verður gerð grein fyrir honum f
inngangi bókaskrár ársins 1974, sem gert er ráð fyrir að
út komi 1975. P.S.
Alþjóðasamband bókavarða
Aljrjóðasambaiid bókavarða (IFLA) heldur næsta |>ing
sitt f Oslo dagana 11,—16. ágúst 1975. Þeir, sem hafa
hug á þátttöku í þingi þessu, skulu liafa samband við
Bókavarðafélag íslands fyrir 1. maí 1975 P.S.
Skylduskil til safna
Lagt hcfur verið fram á alþingi frumvarp til laga
um skylduskil til bókasafna, en samhljóða frumvarp var
lagt frain á alþingi í fyrra. Megihbreytingar þær, scm
felast í frumvarpinu, eru í því fólgnar, að eintökum,
sem skylt er skila er fækkað úr 12 í 4, en aftur
á móti er gert ráð fyrir, að skilaskyldan nái einnig til
hljómplatna og hliðstæðs efnis, sem nú er ekki skilað.
Þá er í I. gr. frumvarpsins gerð grein fyrir tilgang-
inum með skilaskyldunni og í 5. gr. kveðið nánar á um
varðveislu efnisins.
Annars er of snemmt að gera nánari grein fyrir jressu
máli, þar sem óvfst er, hver örlög frumvarpið hlýtur á
aljnngi. P. S.
Bogens Verden
J0rn 'rpnncsen ritstjóri Bogens Verdcn, málgagns
danska bókavarðafélagsins, sat landsfund bókavarða í
sept. sl. sem fulltrúi danskra bókavarða. Mæltist hann
til þess, að Bókasafnið og Bogens Verden skiptust á
greinum og öðru efni. Rétt cr að hvetja íslenska bóka-
verði til að kaupa Bogens Verden, því ]>ar er fjallað
um mál á nokkuð annan hátt en liór er gert og er hollt
að kynnast framandi sjónarmiðum. Blað jretta verður
kynnt rækilegar síðar ásamt ýmsum öðrum tímaritum.
P.S.
Frá Menningarstofnun Bandaiíkjanna
Dagana 12.—24. júní sl. kom ungfrú Anne Davis í
fjórða sinn til íslands. Hún er íslenskum hókavörðum
að góðu ktinii frá fyrri heimsóknum og hefur hún
heimsótl flest söfnin í Reykjavík og hitt marga bóka-
verði. Bókavörðum var boðið í safnið 18. júní til jress
að ræða við ungfrúna og heyra um nýjungar í amer-
fskum bókasöfnum.
Dr. Lester E. Asheim prófessor í bókasafnsfræðum
við Háskólann í Chicago hélt í safninu þann 7. okt.
fyrirlestur, sem nefndist „The future of libraries".
Hann hcimsótti einnig Háskóla íslands og ræddi við
starfsmenn jiar. P. S.
Greinar um íslensk bókasöfn
Nýlega er komið út 11. bindi safnverksins Encyclo-
pedia of Library and Information Science, með upp-
flettiorðum, sem byrja á H og I. Þeir Einar Sigurðsson
og Finnbogi Guðmundsson rita þar sína greinina
livor; Einar um bókasöfn á íslandi og Finnbogi um
Landsbókasafnið sérstaklega. í greinum jressum kemur
fram mikill fróðleikur um bókasöfn á Islandi og mál-
efni tengd þeim. P. S.
Héraðsbókasafnið í Höfn
Héraðsbókasafnið í Hornafirði er um þessar mundir
að flytja í ný húsakynni í þjónustuhúsi sveitarfélags-
ins. Þar verða skrifstofur hreppsins, lögreglustöð o. fl.
Fær bókasafnið þarna um 70 ferm. húsrými á götu-
hæð. Er ætlunin að auka þjónustu þess að talsverðu
leyti frá |ní sem áður var. Áður var safnið í félags-
heimilinu Sindrabæ og bjó við mjög þröngan húsakost.
S.J.
58