Bókasafnið - 01.01.1975, Page 3
SIGRÚN KLARA HANNESDÓTTIR
Alþjóðlegur
barnabókadagur og íslensk barnabókavika
Alþjóðlegi barnabókadagurinn
Alþjóðlega barnabókaráðið IBBY (skamm-
stöfun fyrir International Board on Books
for Young People) var stofnað árið 1953 í
Ziirich í Sviss, og hefur nú þjóðdeildir í
rneira en 40 löndum. Aðalhvatamaður að
stofnun þess var þýsk blaðakona, Jella Lep-
man, sem flýði undan nasistum á stríðsár-
unum og dvaldi þá langdvölum í Englandi
og Bandaríkjunum. Eftir stríð flutti hún
aftur til síns heimalands og starfaði þar af
miklum eldmóði við að koma aðaláhuga-
málum sínum, barnabókmenntum, á fram-
færi.
Árið 1949 fékk Jella Lepman styrki frá
Rockefeller Foundation og American Lib-
rary Association til þess að stofna Alþjóð-
lega barnabókasafnið (Internationale
Jugendbibliothek) í Munchen. Þegar það
safn var opnað, átti það 30.000 bindi barna-
bóka frá 30 löndum og er nú ein aðalnrið-
stöð rannsókna á barnabókum í heiminum.
Tveinr árunr seinna, árið 1951, skipulagði
hún alþjóðlega barnabókaráðstefnu, sem
bar yfirskriftina „Barnabækur og alþjóð-
legur skilningur“. Þar voru alls 250 þátt-
takendur frá mörgum löndum, og upp úr
þessari ráðstefnu óx Aljrjóðlega barnabóka-
ráðið, sem hélt sinn fyrsta fund árið 1953
eins og áður var sagt. IBBY gefur út tíma-
rit, Bookbird, senr fjallar um barnabækur
á alþjóðlegum vettvangi, og er málgagn allra
þjóðdeildanna.
Alþjóðlegi barnabókadagurinn var einnig
upphaflega hugmynd Jellu Lepman, og
kom hún því til leiðar, að hann yrði árlegur
viðburður og hátíðlegur haldinn á afmæli
H. C. Andersens þann 2. apríl. Tilgangur-
inn með slíkum barnabókadegi var annars
vegar liugsaður sá, að efla skilning landa
á milli í gegnum barnabækur og hins vegar
að skapa áhuga fyrir barnabókmenntum
innan hvers af þátttökulöndunum. Þjóð-
3