Alþýðublaðið - 25.01.1967, Page 4
Ritstjórar: Gylfi Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — RitstjórnarfulU.
trúi: EiBur GuOnason — Símar: 14900-14903 — Auglýsingasími: 14906,
Aðsetur Alþýðuhúsið við Hveríisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðu-i
blaðsins. — Áskriftargjald kr. 105.00. — í lausasölu ki'. 7.00 eintakið,
Útgefandi Alþýðuflokkurinn.
1 (
Áróður og iönaður
FYRIR FÁUM ÁRUM kepptust framsóknarmenn
og kommúnistar um að boða þjóðinni þá kenningu,
að forustumenn stjórnarflokkanna væru ekki sannir
íslendingar, heldur gengju erinda erlendra ríkja og
auðhringa. Ekki tókst þessi áróður, enda mun ætt-
jjarðarást Alþýðuflokksmanna og Sjálfstæðismanna
sízt minni en annarra stjórnmálamanna.
Nú hefur verið gripið til annars áróðurs. Það er
foorið út landshorna á milli, að ríkisstjórnina skorti
trú á landið. Stórfelldar nýjungar í atvinnuháttum,
Svo sem stóriðja með erlendri þátttöku, eru túlkað-
ar sem vantrú á íslenzka atvinnuvegi og ísland sjálft.
Ekki mun þessi rógsherferð bera meiri árangur en
"hin fyrri, enda á almanna vitorði, að framsóknar-
«nenn hefðu samþykkt erlenda álverksmiðju, ef hún
feefði verið reist við Eyjafjörð, og kommúnistar hefðu
fagnað erlendum verksmiðjum, ef þær væru reist-
ar af skoðanabræðrum þeirra austan tjalds.
Framsókna-rmenn eru ekki af feaki dottnir, þótt
Jpessi aðför hafi misheppnazt eins og hin fyrri. Nú
stendur yfir enn ein áróðurssókn, og er henni beint
gegn íslenzkum iðnaði. Opnar nú enginn framsókn-
iarmaður svo munninn, að hann ekki tali um „eymd“
og „hrun“ íslenzks iðnaðar. Gengur þessi söngur svo
liangt að hann gæti skaðað iðnaðinn með því að
ápilla þeim sóknarhug, sem hefur einkennt þá at-
vinnugrein, svo sem Iðnsýningin leiddi í ljós.
Undanfarin ár hafa orðið grundvallarbreytingar í
afvinnuvegum margra þjóða, sérstaklega hvað iðnaði
viðkemur. Vegna liinna nýju viðskiptabandalaga og
foreytinga á tollamálum, sem virðast fyrr eða síðar
ætla að ná til allra þjóða, hafa sumar greinar iðn-
aðar dregið saman segl en aðrar fært út kvíar í
ttágrannalöndum okkar. Þessi þróun mun þegar fram
líða stundir, leiða til þess, að hver þjóð hefur þann
iðnað, sem hún getur rekið hagkvæmastan, og fram-
leiðni verður meiri en áður og kjör fólksins betri.
Hér á landi hafa verið stigin fyrstu skrefin til að
'foúa þjóðina undir þau áhrif, sem þróun viðskipta-
málanna mun hafa hér fyrr eða síðar. Ýms iðnfyrir-
tæki, sem hafa starfað í skjóli óhóflegra verndar-
tolla hafa þurft að draga saman seglin, en önnur
hafa aukið starfsemi sína. Er sjálfsagt að veita þeim
aðstoð, sem þurfa að brejda rekstri sínum. Jafnframt
.jþessum breytingum hafa gerzt stórtíðindi á sviði ís-
lenzks iðnaðar með tilkomu margvíslegrar, nýrrar
tækni og nýrra iðngreina, þar á meðal áls og kísil-
fúrs. Lánveitingar til iðnaðar hafa verið stórauknar
Og reynt að greiða fyrir eðlilegri heildarþróun.
Atvinnuvegir hljóta að breytast í sífellu, ekki sízt
jþegar tækni og viðskiptakjör breytast ört. Þess vegna
verður að líta á þróun iðnaðarmálanna í heild og
munu menn þá sjá, að verið er að skapa grundvöll
undir meiri og traustari iðnað í framtíðinni.
4 25. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ÚTSALA
Á KARLMANNASKÖM
UTSALA
A KULDASKÓM KARLMANNA
Karlmannaskór úr leðri, stærðir 37 til 46. — Verð frá kr. 198.
Kuldaskór lágir, stærðir 38 til 42. — Verð kr. 295.
Kuldaskól úrl eðri fyrir drengi ogkvenfólk, stærðir 35 til 40.
Verð kr. 150.
Inniskór karlmanna. — Verð kr. 100.
Notiö þetta einstæða tækifæri
SKÖBÚÐ AUSTURBÆJAR
LAUGAVEGI 100
á krossgötum
★ LÉLEG GATNAHREINSUN
K. G. hefui' sent okkur eftirfar-
andi bréf : — „Mikið hefur undanfarið verið rætt
um gatnahreinsunina hér í borginni, sem okkur
hefur nú verið tjáð, að kosti Reykjavíkurborg ekki
minna en hálfa milljón króna á hverri viku. Þetta
Þykir mér undarlega há tala, því satt bezt að segja
verður maður svo afskaplega lítið var við, að hér
séu göturnar yfirleitt nokkurn tíma hreinsaðar,
nema einstaka sínnum í snjóþyngslum, þegar fönn-
inni er rutt upp á gangstéttirnar jafn skemmtileg
og gáfuleg vinnubrögð, sem það verða nú að teljast.
Um daginn birti Morgunblaðið
mynd af mönnum, sem voru með vatnsslöngur og
voru að reyna að skola burt óhreinindin af ein-
hverri götunni í grennd við miðbæinn. Þóttu þess-
ar tiltektir mannanna, eða öllu heldur borgaryfir-
valdanna svo merkilcgar, að talið var sjálfsagt að
birta af þeim sérstaka fréttamynd. Sannleikurinn
er hins vegar sá, að það ætti að vera svo sjálfsagð-
ur hlutur, að götur hér séu þvegnar, að ekki ætti
að þurfa að minnast á það. Hins vegar verður þess
ekki varl, að þetta sé gert, nema ef til vill einu
sinni á ári.
★ NÝ OG BETRI VINNU-
BRÖGÐ
Það er áreiðanlega tími til kom-
inn að starfsmenn borgarinnar læri að notfæra sér
einhver ný vinnubrögð við þessa gatnahreinsun.
Eins og er, þá er alltaf hjakkað í sama gamla far-
inu, engu breytt og því er í óefni komið í þessum
málum.” —. G.
Lengra er bréf K. G. ckki, en ó-
hætt er að taka undir flest af því, sem hann segir.
Við liér á krossgötunum höfum orðið varir við
mikla óánægju meðal almennings í bænum, með
ástandið bæði að því er varðar gatnahreinsunina
og viðhald gatnanna i borginni, sem eftir rosana
undanfarið eru sumar hverjar nánast alófærar öll-
um farartækjum og kalla þó ekki íslendingar allt
ömmu sína í þeim efnum.
Núverandi borgarstjóra í Reykja-
vík hefur stundum verið hælt fyrir að hann hafi
fundið upp malbikunarvélina, enda vissu Reyk-
víkingar varla hvað malbikun var hér fyrr á árum.
Það er í senn skömm og skaði, ef ekki verður nú
þegar gert átak til þess að bæta ástand þessara
mála hér í borrginni. —■ K a r 1.