Alþýðublaðið - 25.01.1967, Síða 8
Strákarnir voru galsafensnir við' ljósmyndarann.
Þurr skyldi þorri,
þeysöm góa,
votur einmánuður,
þá mun vel vora.
Þorrinn hefur heilsað okkur
bærilega þetta árið, veðrið þessa
fyrstu þorradaga verið eins og
vorveður. Á sunnudaginn fóru
margir ofan í bæ eins og siður er
á góðum sumardögum og fengu
sér gönguferð í veðrinu. Margir
komu þá við hjá Tjörninni með
brauðafgang í pokum og gáfu vin-
sælu Tjarnarbfiunum okkar, önd-
unum, svönunum og gæsunum,
sem vissu ekki hvaðan á sig stóð
veðrið svona á miðjum vetri að
fá allar þessar kræsingar og svo
mikið margmenni í kringum sig.
Fuglarnir héidu sig í hlýju vök-
inni, því að þótt sólin skini og
veðrið væri gott, þá var Tjörnin
frosin. Slétt, spegilgljáandi svell-
ið glitraði í sólskininu og létt-
klædd börn renndu sér eftir isn-
um. Nokkrir drengir voru í ís-
hockey, — en sú íþrótt virðist
vera að ryðja sér til rúms hér á
landi.
Það var auðséð að kominn var
vorhugur í alla, þó að hávetur sé
samkvæmt dagatalinu. Og á mánu-
daginn var alveg jafn gott veður.
Blaðamaður og ljósmyndari • Al-
þýðublaðsins áttu þá leið fram
hjá Laugalækjarskólanum í
Reykjavík, er börin voru í frímín-
útum. Og börnin voru komin í
vorleikina. Telpurnar voru í
teygju-twist og sumar voru í bolta-
leik. Ljósmyndarinn tók þarna
nokkrar myndir af krökkunum í
vorleikjum og vildu þau öll óð og
uppvæg fá myndir af sér eins og
venja er, þegar skólabörnin eru
heimsótt. Þeim þykir svo gaman,
þegar þeim er veitt sú athygli, að
ljósmyndari kemur til að mynda
þau, að allir vilja komast á mynd.
1 þetta skipti voru drengirnir
mun aðgangsharðari, enda telp-
urnar margar uppteknar við teygju
twistið. Svo var hringt inn, en
börnin voru ' óvenjulega lengi að
koma sér í raðir, veðrið var svo
gott — og hvers vegna endilega
að fara inn að lesa, reikna og
skrifa strax aftur?
En skjótt skipast veður í lofti
hér á okkar landi og er því ekki
að vita nema reglulegt þorraveður '
hafi gert, er þessar góðviðrismynd-
ir birtast í blaðinu.
Hún heitir Hjördís og^er í 7 ára bekk.
Allir voru að leika sér.
Hoppað i teygju-twist.
g 25. janúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ