Dagur - 15.11.1997, Síða 9

Dagur - 15.11.1997, Síða 9
LAUGARDAGUR ÍS.HÓVEMBER 1997 - 25 LÍFIÐ í LANDINU á góða vinkonu sem hefur sjálf reynt sorg og sem hefur starfað með sorgarsamtökum, hún studdi mig mikið. Síðan þegar ég fór að koma fram opinberlega og segja frá því að ég hefði orðið fyrir þessari reynslu fór fólk að tala við mig um sína reynslu." Þú hugsar ritgerðina sem wpp- fyllingu á þessu tómi? „Já, hún getur hjálpað að- standendum og fagfólki sem sinna þessari sálgæslu. Það er svo nauðsynlegt að þekkja á hvaða tilfinning- um maður getur átt von á. Eg fór í gegnum sektar- kennd, sam- viskubit, sorg, depurð og reiði. Eins fann ég að ég gerði bara það sem mér var sagt að gera, ef mér var boðið í kaffí eða mat gerði ég það án þess að hugsa um hvort mig langaði eða ekki. Aftur á móti gerði ég ekkert sjálf, hafði ekki frumkvæði, maður verður að sumu leyti eins og strengjabrúða." Er hægt að stytta þann vanlíð- unar tíma? „Nei, ekki endilega en það er hægt að hjálpa fólki við að horfast í augu við að gera ráð fyrir þessum tíma. Maður þarf að fara í gegnum sorgina, það er ekki hægt að komast framhjá henni. Þegar maður hefur ekki stuðning og skilur ekki hvaða til- finningar það eru sem maður getur staðið frammi fyrir þá heldur maður að maður sé alveg einn, að engum hafi liðið svona og að maður hljóti að vera að tapa glórunni, áður en næsta vika verði búin þá verði maður kominn inn á geðdeild." Eggert Freyr Kristjánsson var tæplega 18 ára þegar hann fyrirfór sér. Gaf hann vanlíðan sína á einhvern hátt til kynna, sérðu í dag ákallið um hjálp? „Nei, við höfum ekki get- að séð það hjónin. Hann var eins og unglingar eru á þessum aldri að byrja að vera sjálfstæðari og allt sem því fylgir.“ Þau Guðrún og Kristján Frið- geirsson eiga eina dóttur i dag. Hún var 74 ára þegar bróðir hennar lést en er 19 ára í dag. Stundum gýs allt upp aítur „Ég held að ég sé búin að vinna úr mjög mildu, hef horfst i augu við þessar tilfinningar og tekist á við þær en það er ekki þar með sagt að allt sé að baki. Stundum telur maður sig vera búinn að klára eitthvað, t.d eins og þetta með sektarkenndina, en það þarf lítið til þess að allt gjósi upp aftur. Bara að horfa á mynd í sjónvarpinu getur verið erfitt. Ef kemur fram að heimili þessa og þessa unglings, sem lent hef- ur á villigötum á einhvern hátt, hafi verið svona og svona og því ekki við öðru að búast gýs upp tilfinningin að maður hafi ekki verið nógu góð- ur en líka reiðin að þetta skuli alltaf vera sett svona fram.“ Samhand ykk- ar hjóna, hvem- ig kom það út úr þessari reynslu? „Okkur hefur tekist að vera samstíga og styðja hvort annað, það var svo skrýtið að þegar sveiflurnar voru mestar, upp og niður, þá var annað okkar alltaf aðeins ofar og gat togað hitt upp. Svona at- burðir hafa auðvitað alltaf áhrif á samband fólks, ef það er brot- ið fyrir er þetta eins og fleinn í brotið. Það sem hjálpaði okkur var að fá aðstoð við okkar sorg- arvinnu og þá að gera okkur grein fyrir því hvaða tilfinningar það eru sem geta fylgt. Þetta er svo mikilvægt þvf ef hellast yfir annan aðilann tilfinningar sem hitt er ekki búið að reyna eða veit ekki að von getur verið á þá getur slíkt svo auðveldlega kom- ið fram sem höfnun á makan- um. Manni getur fundist maður óhreinn og skríður inn „Maðurheldurað maðursé alveg einn, að engum hafi liðið svona og að maður hljóti að vera að tapa glórunni, áðuren næsta vika verði húin þá verði maðurkom- inn inn á geðdeild. “ í eigin skel og þá má enginn koma nálægt manni, hvað þá taka utan um rnann." Fordæming sjálfsvíga I ritgerðinni er fjallað um hinn sögulega þátt sjálfsvíga, hvernig kirkjan á sínum fyrstu dögum Ieit á sjálfsvíg. „Þegar trúin varð ríkistrú í Rómarríki var fólk ekki lengur tekið af lífi vegna trúar sinnar og hafði þar með ekki lengur möguleikann á að fá að deyja píslarvættisdauða fyrir trú sína. Þá fóru margir að fremja sjálfsvíg til þess að komast til himna, til þess að komast í dýrð- ina. Til þess að stemma stigu við þessu fór kirkjan að for- dæma sjálfsvíg og það voru því félagslegar aðstæður sem ollu því að það var farið að fordæma sjálfsvíg, það er ekkert í Biblí- unni um slíkt þó lögð sé áhersla á lífíð og það að líf og dauði sé hendi Guðs." Skömniin og sektin Sorgarhópar starfa víða og tók Guðrún þátt f tveimur slíkum, vandinn er bara sá að það eru alls ekki allir sem sækja slíka fundi og því er von Guðrúnar að bókin sem kemur út fyrir jólin hjá Islendingasagnaútgáfunni Munanum muni hjálpa þeim. „Sjálfsvíg eru tengd við skömm og sektarkennd og því er fólk oft ekki tilbúið að ræða tilfinningar sínar. I raun þyrfti sér sorgar- hópa fyrir aðstandendur þeirra sem hafa fyrirfarið sér. Við hjón- in höfum farið og talað við hjón sem hafa misst sitt barn á sama hátt og slíkt er mikilis virði. Ég vinn núna sem djákni við Þor- lákskirkju við nokkrar heilbrigð- isstofnanir í Arnesprófastsdæmi. Starf mitt snýst ekki sérstaklega um áfallahjálp eða sálgæslu eftir sjálfsvfg í sjálfu sér en ég held að ég muni þó alltaf leitast við að aðstoða þar sem sjálfsvíg hef- ur átt sér stað, eftir því sem ég get.“ -MAR ,AÖstandendur fylíast oft mikilli sektarkennd... Einnig geta þeir fundið fyrir því að aðrir ætlist til þess að þeir finni fyrir sektarkennd - jafnvel meiri sektarkennd en þegar dauðsfallið verður af völdum slyss eða sjúk- dóms... Og kemur þá inn í myndina sú almenna skoðun að einhverjum hljóti að vera um að kenna. „Að lifa af eftir sjálfsvig er eins og að ferðast á vegi sem liggur upp og niður mismunandi fjallatoppa og dali." Að- standendur verða sjálftr að velja hvort þeir halda áfram, horfast i augu við sársaukann og læra að lifa áfram, eða hvort þeir staðnæmast í einhverjum dalnum. Dauðinn er að vísu endir lífs, en hann er líka upphaf lifs. Hann er upphaf nýs lífs þeirra sem eftir lifa. Þau þurfa að takast á við nýtt líf án ástvinarins sem látinn er. Þegar um sjálfsvig er að ræða þarf einnig að takast á við sektarkennd og skömm sem löngum hefurfylgt sjálfsvígum. Hyrnan Deildarstjóri Kaupfélag Borgfirðinga auglýsir starf deildarstjóra í Hyrnunni, bensínstöð, laust til umsóknar. Starfið felst m.a. í: Verkstjórn og umsjón með innkaupum fyrir bensínstöðina. Yfirumsjón og eftirliti með húsnæði Hyrnunnar og umgengni utanhúss og innan. Deildarstjórinn gengur vaktir á stöðinni. Umsóknarfrestur um starfið er til 25. nóvember nk. og skal skila umsóknum ásamt upplýsingum um fyrri störf og reynslu skriflega til kaupfélagsstjóra. Kaupfélag Borgfirðlnga. RAFVEITA AKUREYRAR Utboö Rafveita Akureyrar, fyrir hönd Akureyrarbæjar, óskar eftir til- boðum í göngubrú á Glerá, sem byggja skal ofan á Gler- árstíflu. Um er að ræða stálgrindarbrú með 22 m hafi, en heildar- lengd er 48 m. Brúargólf er úr timbri. Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. október 1998. Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofu Sigurðar Thorodd- sen hf., Glerárgötu 30, Akureyri. Tilboð skulu hafa borist á skrifstofu Rafveitu Akureyrar, Þórsstíg 4, eigi síðar en þriðjudaginn 2. desember 1997 kl. 11 fh., og verða þau opnuð þar í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Rafveita Akureyrar. Tilboð á Smáauglýsiiigum Fyrsta birting 800. kr. Endurbirting 400. kr. Plastiðjan Bjarg Laust er til umsóknar starf verkefnisstjóra Plastiðjunni Bjargi. Verkefnisstjóri ber ábyrgð á markaðs- og sölumálum auk þess að sjá um hráefniskaup, framlegðarútreikninga og mánaðarleg uppgjör. Viðkomandi kemur einnig að áætlanagerð innan Plastiðjunnar. Staða verkefnisstjóra er staðgengilsstaða forstöðumanns. Krafist er menntunar og/eða reynslu á sviði markaðs- og sölumála auk þess sem reynsla af stjómun er æskileg. Einnig kemur sér vel að viðkomandi hafi reynslu af starfi með fötluðum. Megin hlutverk Plastiðjunnar er að þjálfa og undirbúa fatlaða ein- staklinga fyrir störf á almennum markaði. Jafnframt er stefna fyrir- tækisins að bjóða upp á úrval samkeppnishæfra plastafurða. Laun skv. kjarasamningi STAK og Launanefndar Sveitarfélaga. Upplýsingar um starfið veitir forstöðumaður Plastiðjunnar í síma 461 2578. Einnig eru veittar upplýsingar um kaup og kjör í starfsmanna- deild Akureyrarbæjar í síma 462 1000. Umsóknareyðublöð fást í starfsmannadeild Akureyrarbæjar, Geislagötu 9. Umsóknarfrestur er til 28. nóvember 1997. Starfsmannastjóri.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.