Dagur - 11.07.1998, Qupperneq 2
18-LAVGARDAGUR ll. JÚLÍ 1998
LÍFIÐ í LANDINU
Jerry Seinfeld grínisti tók því af litlum
húmor hvernig lífið lék hann á Islandi.
Mátti greinilega sjá á honum á sýningu á
fimmtudagskvöld að hann var í alvarlegri
fylu og skemmtunin frekar illa heppnuð
miðað við þær kröfur sem gerðar eru til
listamanna á heimsmælikvarða. Hann
rann vélrænt í gegnum „sjóið“ og í eina
skiptið sem brá fyrir glettnisglampa í
auga var þegar hann gerði grín að Islandi.
Meðal annars fannst honum fyndið að
það þætti sérstakt aðdráttarafl fyrir út-
lendinga að litlu hestarnir hefðu fimm
gangtegundir. So what?!
Seinfeld var sem sagt í rokna fýlu og leyndi þvf illa; skýr-
ingarnar eru til dæmis þær að honum hafi ekki tekist að
komast yfir þann kvenmann sem hann ætlaði sér (Tvíhöfð-
inn á X-inu segir að hún sé nú gift öðrum), en aðrir segja
að misheppnuð jökulferð hafí skipt sköputn. Að minnsta
kosti gerðu Jerry og upphitari hans snyrtilegt grín að
græðgi ferðaþjónustu sem sendir menn í hristing upp á jök-
ul þar sem ekkert er að sjá fyrir þoku og rigningu. Þetta eru
menn sem eru vanir að fá eitthvað fyrir peningana sína.
Dalvíkurmærin Bima Willards-
dóttir vekur athygli á nektarmynd-
unum í Playboy enda sýnir hún
þarna á sér áður huldar hliðar. En
hún vekur athygli fyrir fleira en
bara myndirnar. Bima er ein af
fáum íslensku fyrirsætanna sem
þora að koma fram undir fullu og
réttu nafni enda myndin af henni
með þeim fallegustu í ritinu,
sveitarómantísk gyðjumynd.
Anægð má hún vera yfír því. Bima Forsíða Playboy.
er þó fjarri góðu gamni, eins og
sagt er, því að hún er komin til
Lundúna að vinna fyrir brauðinu en þar hún ætlar að
reyna fyrir sér í sínum gamla bransa, fyrirsætubransanum.
Söngleikurinn Grease hefur nú verið
sýndur fyrir fullu húsi í heila viku og hef-
ur Grease-æðið varla mnnið af áhorfend-
um og leikurum. Krakkar og unglingar
hafa farið í flokkum á námskeið hjá
Henný Hermanns til að læra sporin og á
götu má sjá stúlkur í stuttum, þröngum
buxum með klauf ý la Sandy. Annars ber-
ast þær fréttir af Jóni Ólafssyni, hinum
krullhærða stjórnanda tónlistarinnar, að
hann hafi látið krullurnar fjúka og sé nú
orðinn stutthærður. Allt fyrir Ieikritið!
Ekki getur maður troðið upp í tónlist frá
sjötta áratugnum með hár út í Ioftið.
Nei, maður verður að greiða sér í stíl...
Fjölnir krúttið Þorgeirsson komst
enn einu sinni í fjölmiðla nú í vik-
unni fyrir það að vera dæmdur
ásamt Bubba Morthens fyrir
hnefaleika í beinni útsendingu á
Stöð 2. Ekki virtist dómurinn þó fá
neitt á kappann því að um kvöldið
mátti sjá þennan kvennamann yfir
rómantískum kvöldverði með
kertaljósi og tilheyrandi á Einari
Ben. ásamt síðhærðri og spengi-
legri ljósku. Ekki fylgir sögunni
hver daman er en þarna var örugg-
lega enn ein fegurðardísin á ferð.
Kannski kærastan, Marín Manda...
Hljómsveitin Skítamórall var á ferð með FM norðan heiða
og tók þá upp tónlistarmyndband við Iag sitt „Nákvæmlega"
í leiðinni á hinni hundrað ára gömlu Kútter Jóhönnu, sem
er færeysk skúta í sumarfríi á Akureyri. Þeir Skítamórals-
menn hafa nú selt yfir 3.500 einstök af nýju plötunni sinni
og ætla að taka sveitaböllin með trompi í sumar. Um versl-
unarmannhelgina verða þeir meðal annars á stórhátíðinni
„Halló Akureyri", og fara síðan austur á bóginn.
HM með langafa. María Guðbergsdóttir og Helgi Símonarson, langafi hennar, horfðu með spenningi saman á leik
Frakka og Króata á miðvikudagskvöldið. „Það er alltaferfitt að segja til um lokatölur leiks, en eigum við ekki að segja
að lyktir úrslitaleiksins verði 2-1 fyrir Brasilíumenn. Frakkar tapi, “ segir Helgi.
mynd: sbs.
102jaára
og horfir á HM
Helgi Símomrson á
Þverá í Svarfaðardal,
102ja ára,fylgist af
spenningi meðHM í
knattspymu. Hann hef-
urhorftáalla leiki sem
sýndirhafa verið og
hann spáirBrasilíu-
mönnum sigri,2-l,í
útslitaleiknum við
Frakka á sunnudags-
kvöld.
Af miklum spenningi hefur öld-
ungurinn Helgi Símonarson á
Þverá í Svarfaðardal fylgst að
undanförnu með sjónvarpssend-
ingum frá HM í knattspyrnu.
Hann hefur fylgst með öllum
þeim leikjum sem sýndir hafa
verið í Sjónvarpinu og ætlar síð-
ast af öllu að missa af úrslita-
leiknum. „Hann afí þarf að vera
töluvert lasinn ef hann missir af
þeim leik,“ segir Guðrún Lárus-
dóttir á Þverá, afabarn Helga.
Góðir, fljótir og spennandi
„Skemmtilegasti Ieikurinn var
milli Dana og Brasilíumanna og
þá sat ég spenntur hér fyrir
framan sjónvarpið. Þá hélt ég
með Dönum, vegna þess að þeir
eru frændþjóð okkar, en þegar
þeir féllu úr keppni fór ég að
halda með Brasilíumönnum.
Þeir leika virkilega skemmtilega
knattspyrnu; eru góðir, fljótir og
þar af Ieiðandi er leikur þeirra
spennandi. Reyndar var leikur
þeirra við HoIIendingana erfíð-
ur, en þar var það vítaspyrnan
sem bjargaði þeim,“ segir Helgi.
Helgi Símonarson á Þverá er
102ja ára að aldri og hefur alla
tíð haft brennandi áhuga á
íþróttum. Ekki einasta sem
áhorfandi, heldur einnig sem
þátttakandi. „Ég er fæddur árið
1895 og ætli ég hafi ekki verið
um tvítugt þegar við hér í Svarf-
aðardal kynnstumst fyrst fót-
bolta. Þá stunduðum við hér á
austurkjálka dalsins saman
þessa skemmtilegu íþrótt. Þetta
hefur verið milli 1915 og 1920.
Þegar ég kom úr námi í Kenn-
araskólanum í Reykjavík árið
1923 og hóf kennslu á Dalvík
bauð ég nemendum mínum
stundum í fótbolta, sem þeim
þótti skemmtilegt. Þegar ég
flutti síðan hingað heim að
Þverá hafði ég það fyrir reglu að
bjóða Svarfdælingum uppá að
minnsta kosti tvær knattspyrnu-
æfíngar á sumri hér á heimatún-
inu eftir að slætti var lokið. En
síðan hætti ég því, þegar ég sá
að túnin vildu skemmast vegna
þessa,“ segir Helgi.
2-1 fyxir Brasilíu
Þegar blaðamaður Dags kom að
Þverá á miðvikudagskvöld stóð
yfir síðari hálfleikur í undanúr-
slitaleik Frakka og Króata. Fyrir
leikinn var Helgi búinn að spá
því að Frakkar færu með sigur af
hólmi og það gekk réttilega eftir.
Lyktir leiksins urðu 2-1 fyrir
Frakka. En hvernig fer þá leik-
urinn á sunnudagskvöldið? „Það
er alltaf erfítt að segja til um
slíkt og að nefna tölur, en eigum
við að segja 2-1 fyrir Brasilíu,"
segir Helgi.
Þrátt fyrir háan aldur er Helgi
á Þverá við sæmilega heilsu og
hefur daglega fótavist. Sjón og
heyrn eru reyndar farin að gefa
sig, en hann getur vel fylst með
sjónvarpi sitji hann nærri við-
tækinu. Helgi getur ekki Iengur
Iesið bækur og blöð, en engu að
síður er hann áskrifandi að Degi
einsog hann hefur verið frá ár-
inu 1927. -sbs.
Maður vikimnar er
hestur
Maður vikunnar er þarfasti þjónninn, þar til bílaöld
hófst. íslenski hesturinn. Landsmót hans og tvífætlinga
sem stússa kringum hann er haldið á Melgerðismelum
þessa dagana og saman kominn rjóminn aföllu þvi
besta í tslenskri hrossaætt. Til hamingju með mótið
hestarl Dagur þakkar ykkur þjónustu við þjóðina um
aldir, og ómælda skemmtun á þessari og inn í þá næstu.
Skjóni lengi lifil
í.