Dagur - 11.07.1998, Blaðsíða 10
26 - LAUGARDAGUR 11. JÚLÍ 1998
LÍFID í LANDINU
Jói á Hólnum erfrægur í
Vestmannaeyjum og þó
víðarværi leitað. Hann
hefurlifað viðburðarríka
ævi og á vini bókstaflega
allsstaðarí
heiminum.
Hann Jói á Hólnum, Jóhann Friðfinns-
son, kemur til dyranna eins og hann er
klæddur. Hár og beinvaxinn, með fallegt
silfurlitt hár, snyrtilega ldæddur og vin-
gjarnlegur í fasi. Hann hefur starfað við
eitt og annað, verið í bæjarstjórn Vest-
mannaeyja, var bæjarstjóri um tíma, rak
verslunina Drífanda lengi og er nú safn-
stjóri í Byggðasafni Vestmannaeyja ásamt
því að vera síðustu tvö ár safnaðarfor-
maður í Landakirkju. Jói þykir fróður
mjög um sögu Eyjanna og þegar það bæt-
ist við að hann hefur bráðgaman af því að
segja frá, er blandan fullkomin.
„Eg hef nú verið kallaður ýmislegt,"
segir hann. „Jói á Hólnum er algengast,
og mér þykir vænt um það nafn, en Jo on
the Hill er það sem oftast er skrifað á
bréfin til mín. Þó hef ég fengið bréf þar
sem utanáskriftin er fremur óljós, til
dæmis „the man on the Vestman Island“
eða þá sem mér fannst nú einna best, en
það var þýskur maður sem skrifaði mér
og á umslaginu stóð Johann á eyju fyrir
sunnan Island. En bréfið komst til mín.“
Jói í vinnunni, hann hikar ekki við að leika eða jafnvel syngja fyrir þá sem koma á Byggðasafnið til að gera atburðina lifandi.
Vinir í Japan
Þegar komið er inn til Jóa sem býr í fal-
legu einbýlishúsi er stendur efst á hól of-
arlega í Vestmannaeyjabæ, þá er sú til-
finning sterkust að maður sé á safni.
Húsið er rúmgott og hann býr einn í því
„en mín elskulega kona fór fyrir 17 árum“
eins og hann segir. A veggjum eru kort,
myndir og minjagripir sem Jói hefur feng-
ið frá vinum sínum og safnað að sér í ár-
anna rás á ferðalögum um heiminn.
„Sjáðu þetta bollasteIl,“ segir hann og
bendir á afskaplega fallega bolla sem
standa á borði. Þetta var ég að fá sent frá
vinum mínum í Japan, fólki sem ég
kynntist í fyrra. Og svo ætla ég að heim-
sækja þau í haust ef guð lofar. Hann ætl-
ar ekki bara til Japan, heldur til Kína og
Malasíu „svona af því að ég er þarna á
ferðinni hvort sem er“, en hann á vini á
báðum stöðum.
Eg kynntist þessu ágæta fólki þannig að
ég var í flugvél á Ieið til Islands og flug-
freyjan bað mig um að skipta um sæti því
maðurinn sem sat við hlið japönsku hjón-
anna var ekki sáttur við að sitja hjá út-
Iendingum, vildi víst geta talað við fólk á
íslensku. Mér fannst það ekki mikið mál
og skipti samstundis, enda alltaf tilbúinn
til að kynnast fleirum. Þetta reyndist auð-
vitað viðkunnanlegasta fólk og ég spjall-
aði við það á leiðinní. Svo kvöddumst við
og ég átti ekki von á því að sjá þau aftur.
En viti menn. Þegar ég kom á flugvöllinn
daginn eftir, á leið til Eyja, þá eru þessir
nýju vinir mínir það fyrsta sem ég sá, á
leið tii Eyja í skoðunarferð. Eg bauð þeim
auðvitað heim og sýndi þeim það sem
merkilegt er hér og kynntist þeim enn
betur. En í staðinn buðu þau mér til sín
þegar vel stæði á og það er einmitt núna
Bollastellið væna frá Japan.
íslenskir hestar
Jói var í heimsókn hjá einni af mörgum
vinkonum sínum í Danmörku fyrir
skömmu, en hún býr í úthverfi á Jótlandi.
Jói bauðst til að viðra hundinn fyrir han
einn morguninn og löbbuðu þeir félagar
út í náttúruna. Þá sá Jói sjö íslenska
hesta sem hímdu þar í morgunskímunni
og flaug þá í gegnum huga Jóa, enda bú-
inn að syngja í Landakirkju frá 1950, að
það mætti reyna að syngja fyrir þá. Hóf
hann upp raust sína og söng fullum hálsi
Srengisand. „Arangurinn var frábær,"
segir Jói. „ÖIl hrossin 7 komu hlaupandi
og róuðust ekki fyrr en ég hafði kjassað
þau öll með vel völdum íslenskum orð-
um. Römm er sú taug. En hundinum
fannst nóg um þessa samkeppni er hann
allt í einu stóð frammi fyrir!“ -VS
á haustmánuðum sem ég fer.“ Svona ger-
ast ævintýrin hjá mér!
Gyðingabrúðkaup
Jói fór til Israel í fyrra, en honum var
boðið í brúðkaupsveislu þar. „Það æxlað-
ist nú þannig að einhvem tíma
var svarta-
ráð dýr. En svo mundi ég allt í einu eftir
því að ég átti flatkökur í stórum stöflum
því stutt var í þjóðhátfð. Eg bar þetta
fram og sagði að þetta væru ósýrðu
brauðin okkar Islendinga. Faðirinn horfði
dálítila stund á þetta og kinkaði svo kolli.
Jú, þetta máttu dæturnar borða, sem þær
og gerðu með bestu lyst og allir fóru
saddir.
En
Vltl
upp veisluborð, þetta fína jólaborð með
kræsingum og hvítum dúk. Það eru
nefnilega jól 52svar á ári hjá gyðingum.“
„Skrapp frá“
I gosinu var Jói í bæjarstjórn, ásamt því
að reka verslun sína, Drífanda. „Jahá,“
segir hann og dregur svolftið seiminn.
„Það var haft á orði hér í gamla daga að
ég þekkti sokkabuxnastærð allra kvenna í
Eyjum, þá voru sko engar buxur í
„sama stærð fyrir
þoka hér og það
var hringt til mín af flugvellinum, en
þar voru þá strandaglópar þrír gyðingar.
Faðir með tveim dætrum og ég beðinn
um að skjóta yfir þau skjólshúsi vegna
þess að ekki var til gistirými. Það var auð-
sótt mál og ég sótti þau á flugvöllinn.
Eitthvað voru þau niðurlút og fannst
þetta átroðningur en ég fullvissaði þau
um að þetta væri Iítið mál og að næsta
morgun yrði komið gott veður. Sem og
varð. Eg setti svo fram morgunverðarborð
fyrir þau, en þá kom babb í bátinn. Það
var nefnilega dagur ósýrðu brauðanna og
þau máttu ekki borða þetta fínheitisbrauð
sem ég hafði borið á borð. Nú voru góð
menn. Nokkru
seinna fékk ég svo þetta fína
boðskort, á hebresku og ensku, þar sem
mér var boðið í brúðkaup annarrar dótt-
urinnar. Eg þáði það og var f ísrael f hálf-
an mánuð og skoðaði allt Iandið á meðan.
En skrítið þótti mér það er ég var að
ganga f rólegheitum og skoða mannlífið á
föstudegi, Sabbatsdegi, og þá allt í einu
var slökkkt á öllu. Það hurfu allir af göt-
unum og allar búðir lokuðu. Mér varð
ekki um sel, hélt að eitthað hefði komið
fyrir, en þá kom það í ljós að heima voru
konurnar og dæturnarn búnar að setja
alla“ eins
og nú er“. Og Jói hlær að minn-
ingunni. Frægt er í Eyjum að Jói hélt
versluninni opinni að mestu á meðan á
gosinu stóð en setti blað á hurðina þar
sem á stóð: „Skrapp frá“. Þetta hékk á
hurðinni í 3 vikur, eða á meðan Jói fór til
Norðurlandanna að kanna möguleika á
kaupum á Viðlagasjóðshúsum ásamt fleir-
um. I framhaldi af því vann hann við það
að koma fyrir 542 húsum á 23 stöðum á
landinu. Langur skreppur það og nú er
þetta spjald til á minjasafninu, þar sem
það liggur meðal gosminja.